Brekkubæjarskóli

Brekkubæjarskóli Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Brekkubæjarskóli, Elementary School, Vesturgata 120, Akranes.

Á morgun fimmtudaginn 1. október er samtalsdagur hjá okkur í Brekkubæjarskóla. Frístund verður opin fyrir nemendur 1. og...
30/09/2026

Á morgun fimmtudaginn 1. október er samtalsdagur hjá okkur í Brekkubæjarskóla.
Frístund verður opin fyrir nemendur 1. og 2. bekkjar frá kl. 12:00 fyrir þá nemendur sem skráðir eru í frístund.

Kæru foreldrar, takið tímann frá fyrir þetta athyglisverða erindi 👇Foreldrafélag Brekkubæjarskóla
29/09/2026

Kæru foreldrar, takið tímann frá fyrir þetta athyglisverða erindi 👇
Foreldrafélag Brekkubæjarskóla

Í dag fengu foreldrar tölvupóst frá Foreldrafélag Brekkubæjarskóla. Í póstinum eru upplýsingar um stjórn foreldrafélagsi...
28/09/2026

Í dag fengu foreldrar tölvupóst frá Foreldrafélag Brekkubæjarskóla. Í póstinum eru upplýsingar um stjórn foreldrafélagsins, markmið og áherslur vetrarins og upplýsingar um árgjald (sem er valfrjáls greiðsla).

Einnig eru upplýsingar í póstinum um fræðslukvöld foreldra sem fram fer þann 13. október nk. kl. 17:30 í Tónbergi. Nánari upplýsingar eru í póstinum og við mælum með að foreldrar taki tímann frá og mæti.

Brekkubæjarskóli hefur hafið innleiðingu Heillaspora.Brekkubæjarskóli hefur hafið innleiðingu Heillaspora (e. Nurture).H...
24/09/2026

Brekkubæjarskóli hefur hafið innleiðingu Heillaspora.

Brekkubæjarskóli hefur hafið innleiðingu Heillaspora (e. Nurture).
Heillaspor er heildræn og tengslamiðuð nálgun í skóla- og frístundastarfi þar sem áhersla er lögð á öryggi, tengsl, inngildingu og virka þátttöku allra barna. Fræðilegur grunnur Heillaspora leggur áherslu á að góð tengsl og tilfinningin fyrir því að tilheyra séu mikilvægar forsendur fyrir vellíðan, þroska og námi.
Innleiðingin er þróunarferli sem felur meðal annars í sér fræðslu, ígrundun og sameiginlega þróun starfshátta. Markmiðið er að tengslamiðuð og inngildandi vinnubrögð verði sýnilegur og sjálfsagður hluti af menningu og daglegu starfi í Brekkubæjarskóla.
Á næstunni munu frekari upplýsingar um Heillaspor birtast á heimasíðu skólans.

Nánar má lesa um Heillaspor:
https://island.is/s/midstod-menntunar-og-skolathjonustu/heillaspor

https://www.brekkubaejarskoli.is/is/moya/news/category/1/innleiding-heillaspora-hafin

Ísland.is er upplýsinga- og þjónustuveita opinberra aðila á Íslandi. Þar getur fólk og fyrirtæki fengið upplýsingar og notið margvíslegrar þjónustu hjá opinberum aðilum á einum stað í gegnum eina gátt.

Skipulagsdagur á mánudaginn.Á mánudaginn kemur, 21. september, er skipulagsdagur í skólanum því fellur skólahald niður. ...
18/09/2026

Skipulagsdagur á mánudaginn.

Á mánudaginn kemur, 21. september, er skipulagsdagur í skólanum því fellur skólahald niður. Starfsfólk frístundarinnar tekur einnig þátt í skipulagsdeginum og því verður lokað þar líka.

Skólahald hefst að nýju þriðjudaginn 22. september, sem og starfsemi frístundarinnar.

Með kveðju, skólastjórnendur.

Þriðjudaginn 15. september hófst Svakalega lestrarkeppnin 2026. Keppnin er haldin á landsvísu og að þessu sinni ákváðum ...
18/09/2026

Þriðjudaginn 15. september hófst Svakalega lestrarkeppnin 2026. Keppnin er haldin á landsvísu og að þessu sinni ákváðum við í Brekkó að vera með! Í Svakalegu lestrarkeppninni keppast nemendur í 1.-7. bekk við að lesa sem flestar mínútur í þrjár vikur. Sá skóli, þar sem nemendur lesa flestar mínútur að meðaltali, vinnur keppnina og fær titilinn Svakalegasti lestrarskóli landsins!

Nánar á heimasíðu Brekkubæjarskóla.

Þriðjudaginn 15. september hófst Svakalega lestrarkeppnin 2026. Keppnin er haldin á landsvísu og að þessu sinni ákváðum við í Brekkó að vera með! Í Svakale

Á meðal valgreina á unglingstigi er í boði að velja menningarferð til Reykjavíkur en farið var með hóp unglinga í strætó...
15/09/2026

Á meðal valgreina á unglingstigi er í boði að velja menningarferð til Reykjavíkur en farið var með hóp unglinga í strætó í höfuðborgina í góðu veðri í fylgd listgreinakennara skólans.

Á meðal valgreina á unglingastigi er menningarferð til Reykjavíkur.

Alþjóðlegur dagur læsis er þann 8.september og við í Brekkubæjarskóla höldum alltaf upp á hann með lestrarstundinni ,,Öl...
08/09/2026

Alþjóðlegur dagur læsis er þann 8.september og við í Brekkubæjarskóla höldum alltaf upp á hann með lestrarstundinni ,,Öll lesa". Þá setjast öll niður með bók í hönd, jafnt nemendur sem starfsfólk, og lesa í 20 mínútur hvar sem fólk er statt. Á degi læsis er foreldrum boðið að koma líka og lesa með börnunum og eiga með þeim notalega lestrarstund.
Myndir frá lestrarstundinn má sjá með því að smella á hlekkinn hér að neðan.
https://photos.app.goo.gl/1YJLBmpFtkEqoD3S9

Af gefnu tilefni minnum við á að börn undir 13 ára aldri mega ekki nota rafhlaupahjól. Virðum aldurstakmarkið og förum e...
04/09/2026

Af gefnu tilefni minnum við á að börn undir 13 ára aldri mega ekki nota rafhlaupahjól. Virðum aldurstakmarkið og förum eftir settum reglum til að tryggja öryggi barna í umferðinni.
https://island.is/rafmagnshlaupahjol

Föstudaginn 4. september er treyjudagurinn. Treyjudagurinn er á vegum styrktarfélagsins Börn með krabbamein og er fólk h...
02/09/2026

Föstudaginn 4. september er treyjudagurinn. Treyjudagurinn er á vegum styrktarfélagsins Börn með krabbamein og er fólk hvatt til að klæðast uppáhalds treyjunni sinni þennan dag og sýna þannig börnum með krabbamein stuðning og samstöðu.
Við í Brekkubæjarskóla, jafnt nemendur sem starfsfólk, ætlum að sjálfsögðu að sýna samstöðu og mæta í treyjum á föstudaginn♥️

Address

Vesturgata 120
Akranes
300

Opening Hours

Monday 07:45 - 15:00
Tuesday 07:45 - 15:00
Wednesday 07:45 - 15:00
Thursday 07:45 - 15:00
Friday 07:45 - 12:00

Telephone

+3544331300

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Brekkubæjarskóli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Brekkubæjarskóli:

Shortcuts

Share