26/01/2026
Frábæru námskeiði lokið um helgina á Akureyri með Dr Raymond Perrin um ME og fibromyalgia.
The Perrin Technique – ME/CFS og langvarandi orkuleysi. Orðið ME er mikið í deiglunni þessa mundir og stendur fyrir Myalgic Encephalomyelitis:
🔹 Myalgic = tengist vöðvaverkjum
🔹 Encephalo- = heili
🔹 -myelitis = bólga í mænu
Dr Perrin Technique byggir á kenningu um að einkenni ME/CFS stafi af töfum eða bakflæði í vessa- og heilahólfa-leiðum, sem leiðir til uppsöfnunar eiturefna í heila og mænu sem hafa áhrif á taugakerfið.
Heilinn er með hreinsi kerfi sem kallast glymphatic / sogæðatengt hreinsikerfi.
Þetta kerfi flytur úrgang út úr heilanum,
niður með vessa- og sogæðaleiðum,
og áfram í almenna sogæðakerfið líkamans.
Þetta gerist mest þegar við erum í djúpa svefninum.
Ástæðan fyrir því að sogæða flæðið verðið hægara/óskilvirkara eða jafnvel það verði bakflæði eru:
-langvarandi streita (taugakerfið í „fight or flight“) og brenglun verður á sympatíska kerfinu okkar , langvarandi léleg líkamsstaða á hrygg
,svefntruflanir, hormónaójafnvægi o.fl. En það eru samspil margra þátt til langs tíma sem verður til þess að einstaklingur getur fengið ME.
Hvernig geta einkenni lýst sér?
-Heilaþoka
-þungt höfuð,
-þrýsting aftan í hnakkann,
-höfuðverki,
-mikla þreytu eftir áreynslu,
-næmi fyrir ljósi eða hljóði,
svefn sem endurnærir ekki.
Þökk sé Dr Perrin þá hefur meðferðin við ME sýnt ágætis árangur