Verið stillt

Verið stillt Tek að mér píanóstillingar og viðgerðir á píanóum. Endilega sendið mér skilaboð og fái?

Ég er nú kominn heim frá Englandi, þar sem ég stundaði nám í píanóstillingum og viðgerðum í þrjú ár. Ég lauk Diploma námi í píanóstillingum og viðgerðum við Newark College, Nottinghamshire. Aðalkennarar mínir voru John og Josh Lord, sem eru mjög virtir innan þessa geira í Englandi. Reynslan af því að vera í fullu námi í Englandi í þrjú ár var ótrúleg og þroskandi og þar kynntist ég líka alveg sérstaklega skemmilegu og fróðu fólki.
Á fyrsta ári var aðaláhersla lögð á stillingar með eyranu og minniháttar viðgerðir. Á öðru ári var haldið áfram með stillingarnar, en okkur var líka úthlutað gömlum (ónýtum) píanóum, sem við gerðum upp að öllu leyti, bæði innan og utan. Á þriðja ári var áhersla lögð á diplóma prófið í stillingumog einnig var okkur aftur úthlutað illa förnum hljóðfærum, í þetta sinn flyglum, sem við gerðum upp á sama hátt áður.
Ég er aðallega staðsettur á Suðurlandi, en er viljugur að fara víðar ef þess er óskað. Í framtíðinni sé ég fyrir mér að ég muni ferðast í kringum landið og muni þá auglýsa fyrirfram hvenær ég verð á hverjum stað.

Gæða stund með litla manninum mínum.
21/06/2021

Gæða stund með litla manninum mínum.

14/12/2020

Sæl öll. Ég er að leita að Kawai eða Yamaha píanó fyrir vinafólk mitt. Ef einhver hefur hug á að selja svoleiðis grip endilega sendið mér skilaboð :)

Þessi helgi var svolítið eins og vera kominn aftur í skóla, að heyra í öðrum stilla í næstu stofu og svo gott spjall á m...
14/10/2019

Þessi helgi var svolítið eins og vera kominn aftur í skóla, að heyra í öðrum stilla í næstu stofu og svo gott spjall á milli píanóa. Takk fyrir mig Píanóstilling - Elvar Óskarsson , þú ert mikill fagmaður og öðlingur. Unnustan var líka mjög fegin að ég fékk útrás með allt píanó talið mitt, gott að fá smá frí.

Árið 2017 tók ég við píanóstillingum á Austurlandi, allt frá Djúpavogi að Vopnafirði. Þegar ég var staddur á Vopnafirði ...
09/08/2019

Árið 2017 tók ég við píanóstillingum á Austurlandi, allt frá Djúpavogi að Vopnafirði. Þegar ég var staddur á Vopnafirði það ár, opnaði maður á vegum bæjarfélagsins félagsheimilið fyrir mig. Hann var mjög vingjarnlegur og sýndi mér hvar píanóin voru, en sagði svo: “Ekki láta þér bregða ef þú verður var við draugagang”, og svo skildi hann mig einan eftir .......

Þegar maður planar stillingu um versló en fór á Papar ball kvöldið áður.  ..JáTakk10Bolla
04/08/2019

Þegar maður planar stillingu um versló en fór á Papar ball kvöldið áður. ..JáTakk10Bolla

Fékk “private tour” um Studio Silo á Stöðvarfirði. Frábær staður og ekkert nema fagmennska. Það er ótrúlegt hvað er hægt...
29/07/2019

Fékk “private tour” um Studio Silo á Stöðvarfirði. Frábær staður og ekkert nema fagmennska. Það er ótrúlegt hvað er hægt að gera ef viljinn er fyrir hendi. Þau sérhæfa sig í að taka upp á, vona að ég fer rétt með, segulbandstæki eins og gert var hérna áður fyrr. Einnig er hægt að taka upp á nútíma máta.

25/07/2019

Jeeee hvað þetta var flott hjá þeim. Hitti á þessa snillinga á Egilsstöðum í minni árlegu stilliferð 😀 ég verð bara að skella mér á bræðsluna og sjá þetta á stóra sviðinu

Alltaf gott að koma á Borgarfjörð eystri!
19/07/2019

Alltaf gott að koma á Borgarfjörð eystri!

Árið 2012 spilaði ég með lúðrasveit Þorlákshafnar og þá var mjög spennandi verkefni framundan. Jónas Sig og LÞ ætluðu að...
25/05/2019

Árið 2012 spilaði ég með lúðrasveit Þorlákshafnar og þá var mjög spennandi verkefni framundan. Jónas Sig og LÞ ætluðu að gera plötu saman og halda svo 3 tónleika. Með Jónasi voru margir stuðboltar og einn af þeim var Ingi Björn Ingason. Innlifunin hjá þessum snilldar bassaleikara dáleiddi mann algjörlega. Í gær stillti ég flygilinn hjá honum 7 árum síðar og komu þá margar góðar minningar upp í hugann frá þessum tíma.
Takk fyrir mig Ingi Björn.

Þessi engill heitir Aðalbjörg Halldórsdóttir og þetta fyrirtæki mitt gengi ekki án hennar. Hún vinnur í fullu starfi sem...
21/05/2019

Þessi engill heitir Aðalbjörg Halldórsdóttir og þetta fyrirtæki mitt gengi ekki án hennar. Hún vinnur í fullu starfi sem læknaritari og svo eftir þá vinnu svarar hún öllum email samskiptum, býr til alla reikninga og hjálpar mér stundum með viðgerðir. Ég er líka svo heppinn að vera trúlofaður henni.

Í gær fékk ég að stilla minn fyrsta Fazioli. Þetta hefur verið pínu draumur hjá mér lengi. Það eru ekki margir svona gri...
19/05/2019

Í gær fékk ég að stilla minn fyrsta Fazioli. Þetta hefur verið pínu draumur hjá mér lengi. Það eru ekki margir svona gripir hérlendis.

Address

Þorlákshöfn
815

Telephone

8686935

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Verið stillt posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Verið stillt:

Shortcuts

Share