Kistan

Kistan Atvinnu-og nýsköpunarsetur í Langanesbyggð.
Útleiga skrifborði. Frekari upplýsingar á [email protected]

22/09/2026

Sunnudaginn 27. september verður í fyrsta sinn boðið upp á Samflot í Íþróttamiðstöðinni á Þórshöfn.

Viðburðurinn er hluti af dagskrá Sundlaugarsumars 2026 en það verkefni var sett af stað í kjölfar skráningar íslenskrar sundlaugarmenningar á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf og er það það styrkt af Þjóðminjasafni Íslands (Þjóðminjasafn Íslands/ National Museum of Iceland)

Fyrirkomulag þessa fyrsta viðburðar verður með þvi sniði að íbúum í Langanesbyggð gefst kostur á að bóka sér búnað á þeim tíma sem hentar. Mest geta verið 8 í einu á hverjum hálftima.

Tímarnir eru eftirfarandi:

20:00-20:30
20:30-21:00
21:00-21:30

Til að skrá sig má hringja í Íþróttamiðstöðina á Þórshöfn í síma 468-1515 og óska eftir ákveðnum tíma eða senda póst á [email protected].

Gufubaðið og heitir pottar verða að sjálfsögðu opnir samhliða viðburðinum.

20/08/2026
Fullkomin byrjun á helginni að fá sér góðan mat á Bakkafirði!
26/06/2026

Fullkomin byrjun á helginni að fá sér góðan mat á Bakkafirði!

„Við ættum einhvern tímann að gera þetta...“Áttu svona hugmynd?Notaðu sumarið til að þróa hana áfram. Uppbyggingarsjóður...
19/06/2026

„Við ættum einhvern tímann að gera þetta...“

Áttu svona hugmynd?

Notaðu sumarið til að þróa hana áfram. Uppbyggingarsjóður Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra - SSNE styrkir fjölbreytt verkefni sem skapa verðmæti fyrir samfélagið, atvinnulíf, menningu og nýsköpun.

Kannski er þetta árið sem hugmyndin verður að veruleika!

Opnað verður fyrir umsóknir 16. september og umsóknarfrestur er til 21. október kl. 14:00.

Nánari upplýsingar hér:
https://www.ssne.is/is/um-ssne/frettir/umsoknarfrestur-uppbyggingarsjods-akvedinn

09/05/2026

🎹🎹 FarNorth býður ekki eingöngu upp á ferðaþjónustu heldur einnig menningarviðburði. Þegar við tókum við rekstri á gistiheimilinu í gamla skólanum í hjarta Bakkafjarðar þá sáum við strax fyrir okkur að við myndum skipuleggja röð menningarviðburða allt árið um kring til að lífga upp á hversdagslífið.

Með þetta í huga erum við spennt að tilkynna þann fyrsta af vonandi mörgum slíkum: Söngkonan Erla Dóra mun syngja nokkur sígild lög við undirleik Alexanders Edelsteins á flygilinn á sunnudaginn kl. 17.00. Takið daginn frá og njótið tónlistar kvöldsins með okkur og þiggið hressingu að dagskránni lokinni. Við lofum að ykkur mun ekki leiðast!

📍 Bakkafjörður
🗓 Sunnudagur 10. maí
🕔 17:00
🎟 Aðgangseyrir: 2.500 kr.

----------------------------------------

🎹🎹 FarNorth is not just about tourism, but about culture as well! When we took over the old school guesthouse in the very heart of Bakkafjörður, we immediately envisioned hosting a series of cultural events throughout the year that would enrich our everyday lives.

With that in mind, we are excited to announce the first of what we hope will be many such events. Singer Erla Dóra Vogler and pianist Alexander Smári Kristjánsson Edelstein will perform a classical music concert on Sunday at 5 p.m.

Save the date and join us for this musical evening, followed by refreshments and light bites afterwards.

Good times guaranteed!

📍 Bakkafjörður
🗓 Sunday, May 10
🕔 17:00
🎟 Admission: 2,500 ISK

----------------------------------------

🎹🎹 FarNorth to nie tylko turystyka, ale także kultura! Kiedy przejęliśmy starą szkołę w samym sercu Bakkafjörður, od razu wyobraziliśmy sobie organizację szeregu wydarzeń kulturalnych przez cały rok, które wzbogacą nasze codzienne życie.

Mając to na uwadze, z radością ogłaszamy pierwsze z wielu, mamy nadzieję, takich wydarzeń. Wokalistka Erla Dóra i pianista Alexander Edelstein wystąpią z koncertem muzyki klasycznej w niedzielę o godzinie 17:00.

Zarezerwujcie sobie termin i dołączcie do nas na ten muzyczny wieczór, po którym czeka na Was poczęstunek i lekkie przekąski.

Dobra zabawa gwarantowana!

📍 Bakkafjörður
🗓 Niedziela, 10 maja
🕔 17:00
🎟 Bilet wstępu: 2500 koron. Do zobaczenia!

Nuddpjónusta á Þórshöfn!Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að ný nuddstofa mun opna á efri hæðinni i Kistunni.Aníta Dr...
29/04/2026

Nuddpjónusta á Þórshöfn!

Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að ný nuddstofa mun opna á efri hæðinni i Kistunni.

Aníta Dröfn hefur lokið fyrsta hluta náms og er nú tilbúin að taka á móti ykkur!

Hún mun byrja a bjóða upp á nudd samkvæmt tímapöntunum frá og með 7. maí.

Ef þú hefur áhuga á að bóka tíma, vinsamlegast hafðu samband við Anítu i gegnum Facebook
Messenger eða í síma 864 2848

Skapandi sumarstörf í Langanesbyggð árið 2026Í ár er verkefnið með aðeins breyttu sniði og sóttu þrír einstaklingar um s...
28/04/2026

Skapandi sumarstörf í Langanesbyggð árið 2026

Í ár er verkefnið með aðeins breyttu sniði og sóttu þrír einstaklingar um styrk til að vinna að sínum skapandi sumarstörfum. Það er okkur einstök ánægja að tilkynna að öll verkefnin hlutu styrk.

🥳Til hamingju Bjarney Hulda Eyþórsdóttir, Ása Margrét Sigurðardóttir og Katla Bríet Líndal Benediktsdóttir !🥳

Þær byrja að vinna að sínum verkefnum í byrjun júní og verða svo með sameiginlega sýningu á Kátum dögum í júlí.
Hlökkum svo sannarlega til að vinna með þessum öflugu ungu konum og sjá afraksturinn.

Christina og Ólína verkefnastjórar.

Address

Fjarðarvegur 5/Kistufell
Þórshöfn
680

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Kistan posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Kistan:

Shortcuts

Share