Fab Lab Ísafjörður

Fab Lab Ísafjörður almenna opnunartíma má sjá á: www.fabisa.is Í smiðjunni eru fimm tölvustýrðar (cnc) vélar sem hægt er að nýta til ýmiskonar sköpunar.

Roland Modela Fínfræsari, er lítill yfirfræsari með mikla nákvæmni. Hann er notaður til að fræsa út fíngerða smíði svo sem rafrásir í tvívídd, plastmót og gifsmót í þrívídd og fleira. Við höfum einnig nýtt hann til að skanna litla þrívíða hluti inn. Vinnuflötur fræsarans er 203X152X60 mm

Roland Vínilskeri er tölvustýrður dúkaskeri sem er mikið notaður til að skera út límmiða og gluggafilmur. Hann er einnig hægt að nýta til að skera út mjúkar rafrásir. Vinnuborð dúkaskerans er 120cm á breidd og eins langt og dúkrúllan leyfir. Epilog 40w laserskeri er laserskurðarvél sem getur skorið með mikilli nákvæmni efni eins og acrylplast, þunnan krossvið, balsavið, pappír, leður og fleira. Skerann er einnig hægt að nýta til að grafa í þau efni sem áður hafa verið nefnd sem og gler og húðaða málma. Vinnuborð skerans er 30x60cm, en einnig er hægt að setja í hann sívala hluti allt að 50cm langa og 20cm í þvermál. Þetta má til dæmis nýta til að skera í glös og blómavasa. Shopbot fræsari er stór fræsari sem hefur vinnuflöt uppá 150x300cm. Þessi fræsari er mikið notaður til að skera út húsgögn úr tré, stór mót fyrir plastsmíði og fleira. hann vinnur á þrem ásum þannig að hægt er að fræsa út í 180° þrívídd í honum. Önnur efni sem þessi fræsari hefur verið nýttur í eru ýmiskonar plastefni og þunnir málmar. Cube þrívíddarprentari prentar hluti úr ABS plasti. Vinnusvæði prentarans er 25x25x25 cm og hann nýtist til að smíða flókna smáhluti sem erfitt er að fræsa eða skera út. Þar sem erfitt er að skilja að hægt sé að prenta þrívíða hluti þá ætlum við að setja myndband hérna á síðuna sem sýnir hvernig tækið vinnur. Að auki eru í Fab Lab á Ísafirði fullkomið rafeindaverkstæði og saumavél. Stefnt er að því að bæta við fleiri tækjum með tímanum. Allar vélar í Fab Lab eru valdar með einfaldleika að leiðarljósi og í flestum tilvikum eru hlutirnir sem búnir eru til, prentaðir frá PDF skjali. Teikningar að hlut sem gerður er í Fab Lab má gera í hvaða teikniforriti sem er, Autocad, Inventor, Corell, en við bendum þeim sem ekki hafa aðgengi að dýrum teikniforritum á ókeypis hugbúnað svo sem Inkscape (www.inkscape.org) fyrir tvívíddar teikningar og Google Sketchup (sketchup.google.com) eða Autodesk 123D (www.123dapp.com) fyrir þrívíddarteikningar. Við bjóðum ekki upp á námskeið að svo stöddu, en allir sem koma í Fab lab fá handleiðslu á staðnum og aðstoð við að komast í gang með verkefnin sín. Við aðstoðum einnig við teikningavinnu og gefum góð ráð um efnisval og hönnun. Við mælum eindregið með að þeir sem ekki hafa reynslu af tölvuteikningu nýti sér kennsluefnið sem Fab Lab á Íslandi er búið að koma á vefinn, en mikið af kennsluefni liggur nú þegar fyrir á www.fablab.is/wiki . Veljið íslensku sem tungumál til að komast í íslenska hlutann. Fyrir þá sem vilja formlegri kennslu er hægt að snúa sér til Menntaskólans á Ísafirði, sem býður uppá áfanga í Fab Lab.

25/06/2026

Í dag er síðasta opna húsið hjá okkur fyrir sumarfrí. Kíkið við á milli kl. 15 og 19. Svo sjáumst við aftur í ágúst.

19/05/2026

Mitja Ruotsalainen, nemandi við samstarfsskóla Menntaskólans á Ísafirði, Omnia í Espoo í Finnlandi, hefur lokið fjögurra vikna starfsnámi sínu við skólann. Mitja stundar nám í Media Design og er að útskrifast frá Omnia nú í vor.

Á meðan dvöl hans stóð hefur hann komið að fjölbreyttum verkefnum innan skólans, meðal annars í Fab Lab þar sem hann hefur lært á ýmis forrit, tæki og vélar. Þá hefur hann einnig aðstoðað við ýmis verkefni tengd miðlun og hönnun.

Mitja er afar fær í myndbandsvinnslu og hefur meðal annars útbúið stutt myndband frá dvöl sinni á Ísafirði sem gefur skemmtilega innsýn í heimsóknina og verkefnin sem hann vann að á meðan á starfsnáminu stóð.

Menntaskólinn á Ísafirði Omnia Fab Lab Ísland

Það verður ekki opið hús í Fab Lab í þessari viku vegna þátttöku starfsmanns í leiksýningu Litla leikklúbssins. Í næstu ...
03/02/2026

Það verður ekki opið hús í Fab Lab í þessari viku vegna þátttöku starfsmanns í leiksýningu Litla leikklúbssins. Í næstu viku kemst aftur regla á opna húsið.

Make almost anything with us and get expert support to bring creative ideas to life in the Westfjords. visit us to innovate and collaborate!

Opna húsið í dag er frá 15-16:50 vegna undirbúnings fyrir leiksýningu Litla leikklúbbsins. Í næstu viku verður hefðbundi...
22/01/2026

Opna húsið í dag er frá 15-16:50 vegna undirbúnings fyrir leiksýningu Litla leikklúbbsins. Í næstu viku verður hefðbundinn opnunartími.

Make almost anything with us and get expert support to bring creative ideas to life in the Westfjords. visit us to innovate and collaborate!

06/01/2026

Gleðilegt ár! Opna húsið í þessari viku er kl. 15-18.

Þann þriðja desember höldum við kvöldnámskeið í að hanna og búa til forritanlegt jólaljós. Þetta er tækifæri til að kynn...
25/11/2025

Þann þriðja desember höldum við kvöldnámskeið í að hanna og búa til forritanlegt jólaljós.

Þetta er tækifæri til að kynnast hönnun fyrir laserskurð og þrívíddarprentun, ásamt því að lóða rafrásir.

Komdu með unglinginn á heimilinu að föndra. Smíðaðu þinn eigin lampa með laserskurði, þrívíddarprentun og forritaðu örstýringu sem þú svo tengir við snjalltæki. Tveir fyrir einn námskeið, aldursviðmið er 13 ára.

13/11/2025

Í vísindaporti vikunnar fáum við Svavar Konráðsson, verkefnastjóra Fab Lab á Ísafirði, í heimsókn. Fab Lab Ísafjörður kynnir Fab Academy – s*x mánaða nám þar sem þátttakendur læra að hanna og smíða (nánast) hvað sem er og fá innsýn í nýjustu tækni og stafrænar framleiðsluaðferði. https://www.uw.is/is/vidburdir/visindaport-taeknimenntun-a-heimsmaelikvarda-i-fab-lab
Þú finnur tengil á zoom í athugasemdum⬇️

Spennandi nýjung í Fab Lab netverkinu: Fab Futures - Mánaðarlöng námskeið sem koma þér af stað með að beita nýjustu tækn...
22/10/2025

Spennandi nýjung í Fab Lab netverkinu:

Fab Futures - Mánaðarlöng námskeið sem koma þér af stað með að beita nýjustu tækni. Námskeiðin, sem eru hugsuð sem 21. aldar starfsnám, eru kennd af fagfólki sem er framarlega á sínu sviði í heiminum. Þú getur lært að hanna örflögu eða tölvuleik (og margt fleira)!

Öllum opið, taktu eitt námskeið eða fleiri eftir hentugleika.

Skoðið framboðið á https://futures.academany.org/classes/

Address

Torfnes
Ísafjörður
400

Opening Hours

Monday 10:00 - 15:00
Tuesday 10:00 - 19:00
Wednesday 10:00 - 15:00
Thursday 10:00 - 19:00
Friday 10:00 - 15:00

Telephone

+3544504408

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fab Lab Ísafjörður posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Fab Lab Ísafjörður:

Shortcuts

Share