13/03/2026
Í morgun voru valdir 6 nemendur úr 7.bekk til að keppa fyrir hönd skólans á Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar, sem fram fer í Bolungarvík fimmtudaginn 19.mars. Alls lásu 12 nemendur í morgun sögubrot og tvö ljóð, en allir nemendur 7.bekkjar hafa æft framsögn frá því á Degi íslenskrar tungu 16.nóvember s.l.
Dómarar í dag voru þau Gylfi Ólafsson, Rannveig Halldórsdóttir og Esther Ósk Arnórsdóttir. Þeim var svo sannarlega vandi á höndum, en niðurstaðan varð sú að þau Aino Magnea Norðdahl Widell, Baldur Ernir Stefánsson, Eiríkur Bjarkar Jónþórsson, Emilía Dögun Emilsdóttir, Glódís Ingudóttir og Guðrún Eva Þorvaldsdóttir verða okkar fulltrúar í keppninni. Til vara verða þær Emelía Eivör Daníelsdóttir og Kristjana Malen Pálsdóttir.
Við erum virkilega stolt af öllum nemendum 7.bekkjar sem hafa tekið miklum framförum í framsögninni síðustu vikurnar og hlökkum til að fylgjast með í næstu viku.
10/03/2026
Dagana 24. - 25. febrúar fóru Sólmyrkvaleikarnir fram í Edinborgarhúsinu á Ísafirði, en leikarnir eru hluti af barnamenningarhátíðinni Púkanum, sem stýrt er af Vestfjarðastofu.
Sólmyrkvaleikarnir fóru þannig fram að nemendur 5. - 7. bekkjar byrjuðu á fyrirlestri hjá Sævari Helga Bragasyni sem er betur þekktur í þeirra hópi sem Stjörnu-Sævar. Hann sagði þeim á sinn innblásna hátt frá almyrkva á sólu sem Vestfirðingar verða í kjöraðstæðum til að upplifa þann 12. ágúst næstkomandi – í eina sinn á lífsleiðinni fyrir þau sem fædd eru eftir 1954.
Að fyrirlestri loknum tóku við vinnustofur þar sem allir fengu að taka þátt í skuggaleikhússmiðju með Aude og Emblu frá Þykjó, vísindasmiðju með Sævari og Ninnu frá Þykjó og tónlistarsmiðju með Sigga og Ingibjörgu. Með í för var kvikmyndagerðarmaðurinn Janus Bragi sem myndaði það sem fram fór til að skapa úr því stuttmynd sem sýnd verður þegar Púkinn fer fram dagana 27. apríl-8. maí. Þar mun líka hljóma lag sem Siggi og Ingibjörg hafa sett saman upp úr tónlistarsmiðjunum og útsett.
Ungmennaráð Vestfjarða valdi hafið sem þema Púkans í ár og vildu þau jafnframt sjá samspil lista og vísinda, og samstarf eiga sér stað. Í allri vinnu Þykjó í kringum þetta verkefni hefur verið lögð áhersla á að uppfylla óskir ungmennaráðsins.
06/03/2026
Nemendur 3.bekkjar vinna í myndmennt út frá kveikju við eigin listsköpun, bæði í tví- og þrívíðu formi samkvæmt Aðalnámskrá. Einnig læra þeir ýmis hugtök og heiti myndlistar og styrkja fínhreyfingar sem og ímyndunaraflið. Þetta hafa þeir þjálfað undir leiðsögn Solveigar Eddu Vilhjálmsdóttur, myndlistarkennara.
Í morgun var einn hópur árgangsins að vinna með mynsturgerð og klippingu, ýmist í svarthvítu eða í lit og úr urðu hin litríkustu og fjölbreyttustu verk eins og sjá má á meðfylgjandi myndum.
02/03/2026
Nýjum mánuði fylgir nýr matseðill og svei mér þá ef ekki glittir í páskafrí og vor!
24/02/2026
Fimmtudaginn 26. og föstudaginn 27. febrúar er vetrarfrí og á mánudaginn 2. mars er starfsdagur - án nemenda. Við vonum að allir njóti þessarar löngu helgar sem best og komi endurnærðir til baka á þriðjudaginn.
23/02/2026
Undanfarið hafa nemendur 10.bekkjar verið í skemmtilegu hópverkefni í stærðfræðinni, þar sem reynir á margskonar hæfni. Megintilgangur náms og kennslu í stærðfræði er að nemendur öðlist alhliða hæfni og skilning til að nota stærðfræði sem verkfæri í fjölbreyttum og margs konar tilgangi og við ólíkar aðstæður í daglegu lífi, leik og starfi. Til þess þurfa þeir að fá tækifæri til að ígrunda ólíkar aðferðir og líkön sem nýtast við lausn viðfangsefna og leggja mat á niðurstöður. Verkefni þurfa að vera fjölbreytt og áhugaverð og byggja upp hæfni þar sem nemendur eru virkir þátttakendur.
Í umræddu hópverkefni átti hver hópur að hanna og búa til öskju utan um jólapakka sem er u.þ.b. 2-20 dl. Reikna átti allt sem hægt er í sambandi við viðfangsefnið og sýna útreikninga, sköpun og frumleika ásamt viðeigandi hugtökum stærðfræðinnar. Einnig átti hver hópur að halda dagbók yfir vinnuna og verkefnaskiptingu. Til að fá fullt fyrir verkefnið þurftu öll þessi atriði að koma fyrir: sívalningur, þrístrendingur eða ferstrendingur, keila eða pýramídi, rúmmál og yfirborðsflatarmál, a.m.k. 2 tegundir flutninga og regla Pýþagórasar.
Afraksturinn var glæsilegur eins og sjá má á meðfylgjandi myndum og voru nemendur vitanlega alsælir með vinnuna og árangurinn.
10/02/2026
Grunnskólinn á Ísafirði hefur nú verið skráður til þátttöku í þróunarstarfi um Heilsueflandi grunnskóla.
Markmiðið er að vinna markvisst að heilsueflingu í okkar starfi með því að skapa skólaumhverfi sem stuðlar að andlegri, líkamlegri og félagslegri heilsu og vellíðan nemenda og starfsfólks í samvinnu við heimili og nærsamfélag. Verkefnið sem slíkt hefur hvorki upphaf né endi, heldur er hér um að ræða nálgun sem nýtist í starfinu til framtíðar. Hver skóli vinnur á þeim hraða sem hentar og er reiknað með að taka sér allt að ár í innleiðingarferli.
Við erum spennt að hefjast handa á þessu verkefni sem tekur á heilsu og vellíðan nemenda og starfsfólks og fléttar heilsu og velferð saman við daglegt skólastarf, námskrá og árangursmat.
06/02/2026
Við höldum áfram með orðaverkefnin okkar í febrúar og bjóðum öllum að taka þátt í leiknum og æfa sig á notkun þeirra.
29/01/2026
Enn líður að mánaðamótum og þeim fylgir nýr matseðill. Febrúar er stuttur að venju og enn styttri vegna samráðs/foreldradags og vetrarfrís.