Tónlistarskóli Ísafjarðar

Tónlistarskóli Ísafjarðar Tónlistarskóli Ísafjarðar starfar í Ísafjarðarbæ. Tónlistarskóli Ísafjarðar er einn af elstu tónlistarskólum landsins.

Hann var stofnaður árið 1948 að tilhlutan Tónlistarfélags Ísafjarðar og þó einkum fyrir frumkvæði Jónasar Tómassonar, tónskálds, organista og bóksala á Ísafirði. Áður hafði Jónas stofnað tónlistarskóla haustið 1911, sem mun hafa verið fyrsti tónlistarskóli landsins, en sá skóli hætti störfum vorið 1918 eftir frostaveturinn mikla. Markmið Tónlistarskóla Ísafjarðar hefur frá upphafi verið að veita almenna tónlistarfræðslu, einkum í hljóðfæraleik, og vinna að eflingu tónlistarlífs á Ísafirði með ýmsu móti. Í reglugerð skólans segir m.a. að skólinn skuli:
*kenna sem flestar greinar tónlistar, þar sem börnum, jafnt sem fullorðnum, gefst kostur á að stunda tónlistarnám
*efla sköpunargleði og hugmyndaflug nemenda
*leggja áherslu á félagslegt gildi tónlistariðkunar með þátttöku nemenda í samleik, kór- og hljómsveitarstarfi
*búa nemendur undir framhaldsnám í tónlist

Starfsdagur mánudaginn 7. september 2026. Það verður ekki kennsla þennan dag þar sem starfsfólk heldur á svæðisþing tónl...
04/09/2026

Starfsdagur mánudaginn 7. september 2026. Það verður ekki kennsla þennan dag þar sem starfsfólk heldur á svæðisþing tónlistarskóla á Vestfjörðum sem haldið verður á Þingeyri að þessu sinni. Þar verður fræðsla og erindi er verða fjölbreytileika í faglegri tónlistarkennslu og meira til.

28/08/2026
20/08/2026

🗓Í dag hófust starfsdagar hjá kennurum sem hefja nú handa að fara í gegnum nemendalistann sinn og taka stöðuna á nýju skólaári. Þeir sem eru að hefja tónlistarnám og sendu inn umsókn í vor munu fá upplýsingar um stöðu umsóknar á næstu dögum en vonandi munu allir þeir sem sótt hafa um fá pláss. Ef einhverjar spurningar vakna endilega hafið samband með því að hringja í 4508340 eða senda tölupóst á [email protected]

🔔Skólasetning er 25. ágúst kl .17 - Nemendum gefst kostur á að hitta á kennara sinn að því loknu í kennslustofu viðkomandi kennara.
Vonandi sjáum við sem flesta - kjörið tækifæri til að ræða óskir um hentuga spilatíma.

🔰Kennsla hefst 26. ágúst

🥰Hlökkum til komandi Tónlistarskólaárs 🎶🎶🎶

Forskóli fyrir 1. -2. bekk samstarf við Grunnskólann Það eru gleðitíðindi að segja frá því að nú í samstarfi við Grunnsk...
19/08/2026

Forskóli fyrir 1. -2. bekk samstarf við Grunnskólann

Það eru gleðitíðindi að segja frá því að nú í samstarfi við Grunnskólann á Ísafirði mun forskólastarf Tónlistarskólans vera í stundatöflu nemenda í 1 og 2 bekk þar sem kennararnir Ásta Kristín og Jórunn Björk munu sjá um starfið á skólatíma. Skráning fyrir nemendur er því óþörf og fá yngstu nemendur grunnskólans að kynnast öllu því forskólinn hefur upp á að bjóða.

Í forskóla fá börn í 1. og 2. bekk að kynnast tónlist á fjölbreyttan, skapandi og leikandi hátt. Þar er unnið með söng, hreyfingu, hrynjandi, hlustun, tónlistarleiki og einföld hljóðfæri – allt í gegnum leik og gleði. Forskólinn gefur börnum tækifæri til að upplifa tónlist áður en þau þurfa að velja sér hljóðfæri. Þau fá að prófa sig áfram, uppgötva hvað þeim finnst skemmtilegt og kynnast ólíkum hliðum tónlistar.
Tónlistarnám getur stutt við margvíslegan þroska barna. Í forskólanum æfa þau meðal annars að hlusta, muna, einbeita sér, fylgja leiðbeiningum og vinna saman. Þau læra að finna takt, greina hljóð og mynstur og tjá sig með rödd, líkama og hljóðfærum.
Þannig getur tónlistin stutt við færni sem nýtist víðar í námi – til dæmis við málþroska, rökhugsun, einbeitingu, samhæfingu og félagsfærni.
Hlökkum til samstarfsins í vetur og það verður gaman að fylgjast með stórum hóp kynnast töfraheimi tónlistarinnar.

Vek athygli á þessari píanóhátíð sem fram fer um þessar mundir víðsvegar um Vestfirði. Á morgun verða tónleikar í Hömrum...
18/08/2026

Vek athygli á þessari píanóhátíð sem fram fer um þessar mundir víðsvegar um Vestfirði. Á morgun verða tónleikar í Hömrum kl. 20:00.

Nú styttist óðum í hátíðina.
06/06/2026

Nú styttist óðum í hátíðina.

Það styttist í tónlistarhátíðina á Ísafirði og Morgunblaðið gerir dagskránni góð skil í blaði dagsins. Hlekk á hátíðarpassana má finna í athugasemd.

Þessa dagana er starfsfólk Tónlistarskólans í námsferð í Prag. Á dagskrá eru tvær skólaheimsóknir, leiðsögn um tónlistar...
04/06/2026

Þessa dagana er starfsfólk Tónlistarskólans í námsferð í Prag. Á dagskrá eru tvær skólaheimsóknir, leiðsögn um tónlistarsafn og almenn gleði.
Matur spilar stórt hlutverk og höfum við m.a. farið á Japanskt, Ítalskt, Eþíópískt og Mexikanskt veitingahús. Kaffið á morgunverðinum er vont en herbergin fín og rúmgóð og veðrið yndislegt.

Þær Sunna Karen og Björg kunna sitt lítið af hvoru í tónlist með börnum og ungmennum. Skemmtilegt, fræðandi og skapandi ...
02/06/2026

Þær Sunna Karen og Björg kunna sitt lítið af hvoru í tónlist með börnum og ungmennum. Skemmtilegt, fræðandi og skapandi námskeið fyrir alla krakka🥳🥳 skráning Við Djúpið Music Festival

Skólaslit fóru fram þann 29. maí sl. og hlutu nokkrir nemendur verðlaun fyrir góðan árangur í tónfræðagreinum og þeir ne...
01/06/2026

Skólaslit fóru fram þann 29. maí sl. og hlutu nokkrir nemendur verðlaun fyrir góðan árangur í tónfræðagreinum og þeir nemendur sem þreyttu áfangapróf; 1 framhaldspróf á píanó, 1 miðpróf á píanó, 1 grunnpróf á fiðlu og 5 grunnpróf á píanó fengu bókaverðlaun fyrir frábæran árangur.
Kristín Þóra Henrysdóttir mikilvægur meðlimur lúðrasveitar skólans fékk heiðursverðlaun fyrir yrir ómetanlegt framlag og óþrjótandi elju en með samviskusemi og kærleika til tónlistarinnar hefur hún verið sveitinni sannur styrkur og öðrum innblástur. Kristín Þóra fær kærar kveðjur og hjartans þakkir fyrir ósérhlífni, gleði og ótrúlegan dugnað sem hefur sett mark sitt á starfið í skólanum.
Skólalokum fylgja breytingar en Ágústa Þórólfsdóttir píanókennari hefur lokið störfum eftir 43 ára kennsluferill. Ágústa er traustur kennari og kær samstarfsfélagi og vinkona sem við í skólanum eigum eftir að sakna mikið. Matilda H. Mäekalle píanókennari mun hefja nám við Listaháskólann næsta vetur og mun láta ljós sitt skína þar eins og hún hefur gert hér. Skúli Þórðarson gítarkennari hyggur á flutninga til höfuðborgarinnar næsta vetur og er það með með miklum trega sem við vinnufélar kveðjum hann Skúla og vonum að hann rati til fljótt tilbaka.
Það verður hægt að nálgast námsskírteini næstu daga á skrifstofu skólans. 2. júní kl. 11-14 // 4. júní 14-16
Innritun verður auglýst fljótlega og mun hún fara fram á Abler

Address

Austurvegi 11
Ísafjörður
400

Opening Hours

Monday 12:30 - 16:00
Tuesday 12:30 - 16:00
Wednesday 12:30 - 16:00
Thursday 12:30 - 16:00
Friday 12:30 - 16:00

Telephone

+3544508340

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Tónlistarskóli Ísafjarðar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Tónlistarskóli Ísafjarðar:

Shortcuts

Share