Katla - Kennsla og ráðgjöf

Katla - Kennsla og ráðgjöf Kontaktoplysninger, kart og anvisninger, kontaktformular, åbningstider, tjenester, stjerner, fotos, videoer og meddelelser fra Katla - Kennsla og ráðgjöf, Uddannelse, Copenhagen.

Markmið Kötlu - kennslu og ráðgjafar er fyrst og fremst að veita faglega og einstaklingsmiðaða þjónustu og stuðla þannig að framgangi íslenskrar tungu og menningar.

07/02/2026

Tilvalið í vetrarfríinu ☺️

✨🇮🇸Þemahefti um íslenskar hefðir með einföldum texta 🇮🇸✨

Gleðilegt ár 💥Hér er lítið verkefni sem hægt er að láta nemendur vinna í tengslum við markmiðssetningu fyrir árið.  Verk...
05/01/2026

Gleðilegt ár 💥

Hér er lítið verkefni sem hægt er að láta nemendur vinna í tengslum við markmiðssetningu fyrir árið. Verkefnið hentar bæði sem einstaklingsverkefni og hópverkefni. Þá hentar verkefnið einnig sem kveikja að munnlegri tjáningu eða hvers konar framkomu og framsögu.

Hlekkur á verkefnið í aths.

Kv. Jórunn

‼️Nýtt ÍSAT námsefni með skólaorðforða á heimasíðunni! 📝 Sjálfstýrandi verkefnahefti og sprengjuspil 💣. Sjá hlekk í prof...
08/08/2025

‼️Nýtt ÍSAT námsefni með skólaorðforða á heimasíðunni!

📝 Sjálfstýrandi verkefnahefti og sprengjuspil 💣.

Sjá hlekk í profile

13/01/2025

Væntanlegt í lok janúar - verkefnahefti með áherslu á sjálfstýrandi verkefni. Jórunn Einarsdóttir

Eitt af markmiðum ársins er að sinna betur námsefnisgerð fyrir fjöltyngda nemendur. Fyrsta verkefni ársins er reyndar ve...
04/01/2025

Eitt af markmiðum ársins er að sinna betur námsefnisgerð fyrir fjöltyngda nemendur.

Fyrsta verkefni ársins er reyndar verkefni sem hægt er að láta alla nemendur vinna í tengslum við markmiðssetningu fyrir árið. 💪

Verkefnið hentar bæði sem einstaklingsverkefni og hópverkefni. sem hægt er að skala upp eða niður. Þá hentar verkefnið einnig sem kveikja að munnlegri tjáningu eða hvers konar framkomu og framsögu. 🎙️

Sjá hlekk 📄
https://www.katla.org/nmsefni/gleilegt-r

Gleðilega hátíð 🎄
24/12/2024

Gleðilega hátíð 🎄

28/11/2024

Ég er byrjuð að prófa mig áfram við námsefnisgerð.

Undanfarið hef ég verið að dunda mér við að færa þau verkefni sem reynst hafa mér vel í kennslu fleirtyngdra barna yfir á heimasíðuna mína.

Ég er rétt að byrja en sumt af því sem ég set þar inn er ykkur að kostnaðarlausu.

Annað, sem tekur smá tíma að útbúa, sel ég fyrir nokkrar evrur

Bráðum koma blessuð jólin er íslenskunámskeið fyrir börn á aldrinum 7-12 ára.Á þessu námskeiði verður farið yfir helstu ...
28/10/2024

Bráðum koma blessuð jólin er íslenskunámskeið fyrir börn á aldrinum 7-12 ára.

Á þessu námskeiði verður farið yfir helstu atriði sem snúa að hefðum og venjum íslenskra jóla. Þá verða einnig tekin fyrir staðsetningarhugtök eins og fyrir framan, aftan, undir, við hliðina.

Við leysum fjölbreytt verkefni og föndrum saman rammíslenskt jólaskraut.

Skráning fer fram í gegnum [email protected]

Verð 650.-

Þessir frábæru kennarar úr Njarðvíkurskóla komu til mín á námskeið um móttöku nemenda með erlendan bakgrunn. 🤩Á námskeið...
09/08/2024

Þessir frábæru kennarar úr Njarðvíkurskóla komu til mín á námskeið um móttöku nemenda með erlendan bakgrunn. 🤩

Á námskeiðinu fór ég yfir móttökuferla nemenda með erlendan bakgrunn í Kaupmannahöfn, kennslu í móttökubekkjum ásamt því að kynna þær kennsluaðferðir og skipulag sem reynst hefur vel til að styrkja þátttökumöguleika í fjölbreyttum nemendahópum. 💪

Námskeiðið var í tveimur hlutum. Við byrjuðum á skólaheimsókn og kynningu á Vesterbro Ny Skole og færðum okkur svo yfir í Jónshús þar sem seinni hluti námskeiðsins fór fram.

Það er mikill metnaður í íslensku skólasamfélagi og virkilega gaman að fá að deila minni reynslu og þekkingu með kennurum úr Njarðvíkurskóla. 👩🏼‍🏫

Takk fyrir komuna. Þið voruð frábærar.
😍

Að fara eftir munnlegum fyrirmælum. 🗣️Ég nota þessa aðferð töluvert til að þjálfa hlustun. Nemendur teikna eftir myndban...
01/03/2024

Að fara eftir munnlegum fyrirmælum. 🗣️

Ég nota þessa aðferð töluvert til að þjálfa hlustun. Nemendur teikna eftir myndbandi (how to draw á Youtube) en ég útskýri og gef fyrirmælin - hér á dönsku.

Í þessu verkefni mátti hvorki nota blýant né strokleður og einungis bleikan og brúnan lit.

Verkefnið hentar mjög vel með aldursblandaðan nemendahóp.

Vorið er á næsta leiti og því við hæfi að teikna kirsuberjatré. 🍒

Virkilega vel heppnuð Þrettándagleði í Jónshúsi þar sem Katla - Kennsla og ráðgjöf og Hafnarbræður sameinuðu krafta sína...
10/01/2024

Virkilega vel heppnuð Þrettándagleði í Jónshúsi þar sem Katla - Kennsla og ráðgjöf og Hafnarbræður sameinuðu krafta sína í frábærri fjölskylduskemmtun ☺️

Adresse

Copenhagen
2000

Underretninger

Vær den første til at vide, og lad os sende dig en email, når Katla - Kennsla og ráðgjöf sender nyheder og tilbud. Din e-mail-adresse vil ikke blive brugt til andre formål, og du kan til enhver tid afmelde dig.

Genveje

Del