Heimspekiverksmiðjan

Heimspekiverksmiðjan Verksmiðja sem framleiðir heimspekitengt efni svo sem hlaðvarp og fleira. Kannski.

Heil og sæl, nær og fjær! Við höfum tekið eftir aukinni umferð inn á heimspekiorðabókina undanfarið og langaði að minna ...
21/01/2018

Heil og sæl, nær og fjær!

Við höfum tekið eftir aukinni umferð inn á heimspekiorðabókina undanfarið og langaði að minna á síðuna sem inniheldur lauslega yfirfarnar þýðingar. Einnig vildum við kalla eftir nýjum orðum. Eins og er þá er orðabókin full af ismum og logy-um (stefnum og straumum) og okkur þætti einstaklega vænt um að fá fleiri orð og hugtök sem dvelja innan þessara isma og logy-a, því að með hugtökunum klæðum við merkingarheim okkar!

https://heimspekiordabokin.wordpress.com/

Endilega kíkið inn á google skjalið okkar þar sem við öll höfum orðið og bætið við orðum og hugtökum sem hafa verið þýdd eða vantar þýðingar - Engin pressa á að skila þeim fullþýddum aðeins bæta þeim við svo þau séu til staðar fyrir þýðara framtíðar.

https://docs.google.com/document/d/10gZz1iNMZVNv2ajO0F8mNQBQ-4A5JjndPb7an2M7cCI/edit

Góðar stundir

Verkefnið heimspekiorðabók June 7, 2017June 7, 2017 heimspekiordabokinLeave a comment Velkomin í heimspekiorðabókina. Orðabókin er samvinnuverkefni okkar allra og hlutverk hennar er að þýða og finna upp ný íslensk orð og hugtök fyrir erlend heimspekileg orð og hugtök. Á íslensku ...

Mælum 134% með. Smá eins og bannaði parturinn af bókasafninu í Harry Potter, ef við miðum við Þjóðarbókhlöðuna.
05/11/2017

Mælum 134% með. Smá eins og bannaði parturinn af bókasafninu í Harry Potter, ef við miðum við Þjóðarbókhlöðuna.

Bókasafnið loks sameinað á ný eftir nokkra ára aðskilnað í Andrými, róttæku félagsrými í Reykjavík sem staðsett er á Vonarstræti 3 (2. hæð, Iðnó)!

Ekki nóg með að það sé sameinað, heldur bættust fullt af nýjum titlum í safnið.

Frá og með morgundeginum er Andrými opið sunnudaga-fimmtudaga frá 12:00-18:00 og bókasafnið aðgengilegt öllum sem áhuga hafa. Komið og lesið þessar bækur í tætlur.

Nánari upplýsingar má finna á www.andrymi.org

Okkur langar að vekja athygli á róttæka sumarháskólanum sem fer af stað í næstu viku.
11/08/2017

Okkur langar að vekja athygli á róttæka sumarháskólanum sem fer af stað í næstu viku.

bíðurðu eftir byltingu? ef svo er, þá ertu líklega smá að misskilja eðli byltinga...nú er þó ákveðin bið á enda því bylt...
06/06/2017

bíðurðu eftir byltingu? ef svo er, þá ertu líklega smá að misskilja eðli byltinga...
nú er þó ákveðin bið á enda því byltíngur, tímarit heimspekinema við háskóla íslands, kom út í þriðja sinn í vor. hér er netútgáfa af blaðinu, þema blaðsins er "bið".

Tímarit heimspekinema við Háskóla Íslands, þriðji árgangur. Apríl 2017.

Tímamótabók Simone de Beauvoir Hitt kynið kom út árið 1949 og greinir á nákvæman háttu stöðu kvenna í samtíma Beauvoir. ...
23/04/2017

Tímamótabók Simone de Beauvoir Hitt kynið kom út árið 1949 og greinir á nákvæman háttu stöðu kvenna í samtíma Beauvoir. Þó margt sé umdeilanlegt í skrifum Beauvoir er fullvíst að bókin var og er enn uppspretta frjórrar femínískrar hugsunar um kyngervi, kynverundir, mismun og jafnrétti.
Í kaflanum um lesbíuna má sjá hvernig Beauvoir tætir óhrædd í sig karlrembu sálgreina sem ákváðu hver og hvernig konan væri, hvernig kynlíf hún stundaði og hvers vegna. Á tímum rétt eftir seinni heimstyrjöld fjallar hún opinskátt um samkynhneigð, kynlíf kvenna, reðursýki karlmanna og tilvistarlegt frelsi. Elinborg Harpa skrifar um kaflann og veltir fyrir sér takmörkun hans og tækifærum.

Það verður að hafna óljósum hugtökum eins og æðri, óæðri og jafngildi, sem hafa afvegaleitt alla umræðu, og byrja aftur upp á nýtt. Simone de Beauvoir Hér verður fjallað um 4. kafla í öðru bindi Hi…

Jæja er ekki kominn tími til að skoða innra samræmi okkar eigin skoðana? Standa þær þvert á aðra eða mynda þær samhljóm?...
12/03/2017

Jæja er ekki kominn tími til að skoða innra samræmi okkar eigin skoðana? Standa þær þvert á aðra eða mynda þær samhljóm?

Ásdís Nína Magnúsdóttir kafar hér í skilgreiningu Hönnuh Arendt á dómgreindinni og veltir fyrir sér hvaða hlutverk dómgreindin fer með í samfélagi okkar.

Hvað er góð dómgreind? Af hverju hafa sumir góða en aðrir slæma dómgreind? Er þetta áunnninn eiginleiki eða meðfætt persónuleika einkenni, eða eins og flest, sitt lítið af hvoru? Hvernig tileinkar …

Við erum mögulega að spá í að gefa út eitthvað svona tímaritslíki með myndmáli og skrifmáli. Silvía Sif tók saman texta ...
26/02/2017

Við erum mögulega að spá í að gefa út eitthvað svona tímaritslíki með myndmáli og skrifmáli. Silvía Sif tók saman texta og myndir, hér er dæmisopna. Væri það eitthvað sem myndi kynda undir áhuga þinn?

Annar sunnudagur og annar pistill. Við biðjumst velvirðingar á því að hann innihaldi Trump.„Að setja sjálfan sig á siðfe...
12/02/2017

Annar sunnudagur og annar pistill. Við biðjumst velvirðingar á því að hann innihaldi Trump.

„Að setja sjálfan sig á siðferðilega háan hest er að sanna sig siðferðilega, skilgreina sig sem réttsýna og siðferðilega þenkjandi veru, sýna að maður er siðferðilega aðdáunarverður. Það er oft gert opinberlega til þess að skapa rétta ímynd af sjálfum sér, til þess að fólk í kring treysti manni og líti upp til.“

Síðastliðið haust skrifaði ég um kjaftæði: „Kjaftæði er skemmilegt hugtak. Kjaftæði er bull[sh*t], vitleysa, jafnvel ósannindi. Eðli kjaftæðis er ekki að vera lygi, heldur að vera misvísandi. Kjaft…

Nýr sunnudagur, nýr bandaríkjaforseti, ný ríkisstjórn, nýir tímar. Eða endurtekur sagan sig kannski og gamlir tímar snúa...
23/01/2017

Nýr sunnudagur, nýr bandaríkjaforseti, ný ríkisstjórn, nýir tímar.
Eða endurtekur sagan sig kannski og gamlir tímar snúa aftur í nýjum líkömum?
Nýjar og gamlar ógnir blasa við, nýjar og gamlar vonir hvetja okkur áfram í baráttunni fyrir, frelsinu?
Sunnudagspistillinn samanstendur af stuttum hugleiðingum og viðtali við Jamie og Plum, tvo af forsprökkum Andrýmis

Hér fyrir neðan má hlusta á viðtal við Jamie og Plume tvo af forsprökkum Andrýmis, rótæks félagsrýmis í Reykjavík. Fyrsti þáttur heimspekiverksmiðjunnar var um frelsið, enda á frelsið heima …

Ertu búin/n að fá þér kaffi í dag? stóðst það væntingar eða var það skrifstofukaffi, ofsoðið í könnunni eða bensínstöðva...
15/01/2017

Ertu búin/n að fá þér kaffi í dag? stóðst það væntingar eða var það skrifstofukaffi, ofsoðið í könnunni eða bensínstöðvar-brúna-vatnið, drukkið aðeins fyrir koffeinið? Er kominn tími á annan bolla og kannski eitthvað meððí?

Við mælum með smá lestri með næsta bolla dagsins. Hér rökstyður Snorri Rafn ást sína á drykknum ásamt því að ígrunda hið veigamikla hlutverk sem kaffið leikur í lífum okkar.

Síðasta sumar útskrifaðist ég með meistaragráðu í heimspeki, frá virtum háskóla, með 11,25 af 12 möguleikum í meðaleinkunn og 12 fyrir meistarariðtgerðina mína. Nú í janúar, þessum dimmasta og kald…

Heimspekiverksmiðjan snýr aftur úr fríi núna um helgina með nýjum pistli eftir Snorra, sem ber nafnið „Hlutskipti 25 ára...
11/01/2017

Heimspekiverksmiðjan snýr aftur úr fríi núna um helgina með nýjum pistli eftir Snorra, sem ber nafnið „Hlutskipti 25 ára hemspekings - eða - af hverju ég elska kaffi.“

Hér er smá smakk til að halda ykkur heitum fram á sunnudag. Góðar stundir.

„Kaffi er drykkur fyrir ástina. Við gefum áhuga okkar á mögulegum tilvonandi maka til kynna með því að bjóða þeim kaffi. Við sitjum saman, tölum, látum í ljós hver við erum og sjáum hver þau eru. Hlýjan frá bollanum í höndunum á okkur er notaleg og við opnum okkur. Ef manneskjan sem við höfum áhuga á drekkur ekki kaffi, getum við undir eins farið að leita annars staðar. Þetta verður aldrei að neinu hvort sem er.“

Er ekki kominn tími á eitthvað annað þessi jólin? Ertu búin/n að sjá í gegnum takmarkaða heimspekihefð hvítu karlanna? O...
21/12/2016

Er ekki kominn tími á eitthvað annað þessi jólin? Ertu búin/n að sjá í gegnum takmarkaða heimspekihefð hvítu karlanna? Og hvað er eiginlega málið með þessi pólítísku loforð?

Við glugguðum í bók Björns Þorsteinssonar sem leitar á aðrar slóðir og lætur sig varða allt frá því sem er til þess sem ekki er og einnig þessa vandræða-veru sem stendur þar á milli og spyr sig.

Út er komin bókin Eitthvað annað eftir Björn Þorsteinsson. Bókin er safn greina eftir höfund frá síðustu tveimur áratugum. Greinarnar eru ýmist ritrýndar fræðigreinar, heimspekilegar hugleiðingar e…

Adresse

Copenhagen

Underretninger

Vær den første til at vide, og lad os sende dig en email, når Heimspekiverksmiðjan sender nyheder og tilbud. Din e-mail-adresse vil ikke blive brugt til andre formål, og du kan til enhver tid afmelde dig.

Kontakt Skolen

Send en besked til Heimspekiverksmiðjan:

Genveje

Del