16/08/2023
Góðan daginn,
Nú styttist í skólasetningu hjá flestum krökkum hér við Genfarvatn. Ég er að velta því fyrir mér að vera með Ísl.skóla eins og undan farin ár. Það verður eldra holl og yngra holl. Ég miða við það að þau börn sem kunna nú þegar stafrófið séu í eldra hollinu. Vissulega verður kennslan mest megnis í gegnum leik, söng og list. Og helsta markmiðið er að hvetja börnin til að þora að tjá sig á þessu temmilega flókna tungumáli sem Íslenskan er.
Ég hef í hyggju að hafa þetta tvo sunnudaga í mánuði fram að jólum.
Fyrsti tíminn verður 10. september, svo 24 september.
Svo verðum við tvo fyrstu sunnudagana í október: þe 1. og 8 október.
Nóvember: 5. og 19.
Síðasti hefðbundni íslenskugleðin verður 3. desember.
Svo verður að öllum líkindum smá jólagleði Laugardaginn 16.desember en staður og stund verður ákveðin um mánaðarmótin nóv/des.
Verðið er 250 CHF fyrir barn, börn yngri en 3ja ára fá að vera með í fylgd með foreldrum.
Eins og undanfarin tvö ár verður íslensku kennslan í Morges í nálægð við lestarstöðina. Mér þætti vænt um að ef þið þekkið einhvern á Lausanne/Genfarsvæðinu að láta íslenskuboðskapinn berast.
Ég býst við að yngra hollið sé frá 11-12:30 og eldra hollið 12:45-13:30.
Kærar kveðjur,
- Ólöf Steinunnard.