Einfaldasta ískaffið✨
Ég fæ þráhyggjur yfir sumu. Einu sinni var það ískaffi. Ætlaði að mastera það!! Vistaði yfir 100 uppskriftir á insta og pinterest. Síðan fór ég í kaffi til konu í Belgíu sem sýndi mér þessa ofur einföldu uppskrift😅 Stundum erum við að flækja hlutina of mikið😉 Sýnir sig enn og aftur að tengsl og samvera er besti innblásturinn og þar fær maður oft bestu hugmyndirnar❤️
Deili henni med ykkur og endilega vistið fyrir seinna eða búið strax til✨
P.s ég elska að nota Alpa protein vanillu bragð mjólk
Erla Súsanna
Námskeiðið 5 rými vaxtar - ræktaðu það sem styrkir - Þakklætisdagbókin - Hjartaskrif
Erla Súsanna
Ræktaðu það sem styrkir þig.
Í gegnum þakklætisiðkun, líkamsvitund og djúpa ígrundun styð ég konur í að lifa með meiri skýrleika, innri styrk og jafnvægi.
05/05/2026
Ég byrja allar setningar á Takk fyrir í Þakklætisdagbókinni. Ég byrjaði á því vegna þess að mér fannst skrifin koma meira frá hjartanu þegar ég hóf setningar á þann hátt og mér fannst ég komast í betra skrifflæði. Skrifin urðu minna eins og verkefnalisti og meira einlægari. Ég byrja alltaf á því að skrifa fyrstu þrjár setningarnar í þessari möntru og síðan kemur runa af alls kyns sem ég þakka fyrir.
04/05/2026
Þakklætisiðkun breytti sýn minni á lífið.
Þetta byrjaði sem forvitni og áhugi.
Áhugi á því hvað gerir lífið þess virði að lifa því.
Áhugi á hamingjunni og hvað við getum sjálf gert til að hlúa að eigin velferð.
Ég fór að skrifa í þakklætisdagbók.
Ég fór að iðka þakklæti.
Ég fór að lesa mér til um þakklæti.
Það opnaðist fyrir mér nýr heimur.
Ég trúði varla hversu öflugt þetta fyrirbæri þakklæti er.
Fyrr en ég fór að finna það á eigin skinni.
Hugsanir mínar fóru smám saman að breytast.
Minni pirringur, minni streita og meiri þrautseigja.
Gleðistundir jukust.
Lífið varð fallegra.
Þakklætisdagbókin varð til.
Hún aðstoðaði mig að temja mér daglega þakklætisiðkun.
Það eru örfá eintök eftir á lager.
Sendu mér skilaboð ef þú vilt eignast hana.
20/04/2026
Mánudagskrifin eru djúp
Hversu oft höfum við hlustað á innsæið okkar?
Hvað kom út úr því?
Hversu oft höfum við ekki hlustað?
Hvað kom út úr því?
Skrifaðu svarið í dagbókina þína í dag. 🌿
19/04/2026
Ég á enn nokkur eintök eftir af þakklætisdagbókinni minni.
Það hefur verið svo yndislegt að upplifa hversu margir hafa tengt við hana.
Fyrir mig hefur hún aldrei verið bara bók.
Heldur svo miklu meira.
Leið til að staldra við.
Taka eftir.
Og nálgast lífið á annan hátt.
Miklu betri hátt.
Ef þú hefur fundið fyrir löngun til að byrja…
þá eru enn nokkur eintök til 💛
Sendu mér skilaboð og ég sendi þér hvernig þú getur nálgast hana.
15/04/2026
Gratitude was never about adding more to my life.
It was about learning to see what was already there.
To slow down.
To notice.
To be with what is.
And over time, something shifted.
12/04/2026
Það eru 40 eintök eftir af Þakklætisdagbókinni 🤎
Síðustu eintökin áður en ég loka þessum kafla.
Þessi bók hefur fylgt mér í gegnum svo margt — og það er eitthvað sérstakt við að vita að hún er að klárast.
Ef þú vilt kaupa bókina, sendu mér skilaboð með Þakklæti 💌
Photo
01/03/2026
Síðustu vikur hafa kallað fram meiri skýrleika um það hvað ég vil gera og hvaða stefnu ég vil taka með þessum miðli.
Að skapa og leiða nýjasta námskeiðið mitt gerði mér eitt ljóst —
Töfrakistan á ekki lengur við.
Ég tengi ekki lengur við það elsku verkefni sem var upphaflega skapað fyrir kennara og uppalendur.
Töfrakistan var upphafið.
En nú er ég tilbúin að standa fullt og heilt undir mínu eigin nafni.
Erla Súsanna.
Dýpri rætur.
Skýrari stefna.
Nýr kafli.
Kafli þar sem námskeiðið mitt fær að vaxa og dafna og fleira uppbyggilegt 🌸
Klikk her for å få din Sponsede Oppføring.
Sted
Kontakt skolen
Nettsted
Adresse
Sandbrekkevegen 13
Bergen
5231