Ég er eigandi & yfirþjálfari hjá Kvennastyrk líkamsrækt.
Ég býð upp á afreksþjálfun handboltastelpna en ég hef undanfarin ár veriðr styrktarþjálfari meistaraflokkanna í handbolta hjá Val. Viðar Bjarnason er reynslubolti á sviði þjálfunar og hefur umsjón með tímum Kvennastyrks ásamt því að kenna þá ansi marga. Hann er einkaþjálfari frá Intensive PT í Svíþjóð og er þrautreyndur á sínu sviði en hann hefur meðal annars verið yfirþjálfari þreks hjá RVK MMA og sá um styrktarþjálfun yngri flokka hjá Val síðustu misseri.
„Ég er eigandi og yfirþjálfari í líkamsræktarstöðinni Kvennastyrk sem ásamt eiginkonu minni, Halldóru Önnu Hagalín. Einnig er ég þrekþjálfari meistaraflokks kvenna í handbolta hjá Val.
Í Kvennastyrk eru tímarnir fjölbreyttir og höfum við tekið til allt það sem okkur finnst skemmtilegast í æfingum. Við höfum verið að breiða aðeins út starfsemina okkar frá því að vera einungis á staðnum í að bjóða upp á annars vegar sérhæfða fjarþjálfun fyrir konur og nú fjarþjálfun fyrir stráka sem einblínir á að styrkja sig í ræktinni.“
👉 Viltu koma þér almennilega í gang og vinna markvisst að þínum markmiðum? Viltu breyta um lífsstíl sem þú getur viðhaldið og fá hvatningu, fræðslu og kennslu? Viltu koma með okkur í KarlaKraft?
👉 KarlaKraftur er hópfjarþjálfun fyrir stráka sem langar að lyfta, styrkja sig og auka þrek. Innifalið í hóflegu mánaðargjaldi er æfingarplan, vikulegir online fundir, ráðgjöf varðandi næringu, kennslumyndbönd af æfingum, vinnubók og ráðgjöf varðandi æfingar.
„Ástæðan fyrir því að við ákváðum að setja af stað verkefnið KarlaKraftur er sú að okkur langar að búa til samfélag fyrir stráka sem langar að lyfta, styrkja sig og auka þrek. Stráka sem hafa ekki endilega nennu í að fara í tíma í ræktinni, tugi þúsunda króna til að eyða í einkaþjálfun og skortir þekkingu til að setja saman sitt eigið prógram. Að fara í ræktina og rölta stefnulaust á milli tækja er eitthvað sem flestir hafa prófað án mikils árangurs. Með KarlaKraft ætlum við að búa til samfélag þar sem strákar fá tækifæri til að breyta um lífsstíl, ná betri árangri í ræktinni, kynnast öðrum sem eru á sama stað og finna hvatningu hjá hvor öðrum.
Það æfa allir á sínum stað, á sínum hraða og eftir sinni getu en með “online” fundum og facebook síðu þá getum við komið af stað umræðum og fundið að við erum ekki einir að æfa.“
👉 Skráning er hér: https://www.sportabler.com/shop/kvennastyrkur/1/product/Q2x1YlNlcnZpY2U6MTgxOTk=