Grunnskólinn í Stykkishólmi

Grunnskólinn í Stykkishólmi Með gleði í hjarta, samvinnu í höndunum og sjálfstæði í huga getum við lært hvað sem er🥰

23/09/2026
HJÓLASTRÆTÓ 🚴‍♀️🚴🚴‍♂️Átakið Göngum í skólann er farið af stað og þar sem allir eru svo duglegir að hjóla í skólann að þá...
22/09/2026

HJÓLASTRÆTÓ 🚴‍♀️🚴🚴‍♂️

Átakið Göngum í skólann er farið af stað og þar sem allir eru svo duglegir að hjóla í skólann að þá ákváðum við að henda í hjólastrætó á morgun (miðvikudaginn 22.sept), stuttur fyrirvari en við ákváðum að grípa tækifærið á meðan veður leyfir enn hjólaferðir til og frá skóla.

Hjólastrætóinn verður með sama fyrirkomulagi og í vor 🤩
Við byrjum við grenndargámana við Búðarnes, hjólum upp í Ásklif, niður hjá bakaríinu, Aðalgötuna og beygjum framhjá Hólmgarðinum. Þaðan förum við inn á Silfurgötu, hjólum hana til enda, niður Hafnargötu, Austurgötuna og svo Skúlagötuna.
Endastopp er skólalóðin.

Það er hægt að koma í lestina hvar sem er á leiðinni og við hvetjum alla til þess að koma og taka þátt í þessu með okkur. Anna Soffía og María Kúld munu leiða lestina og verða því alltaf fremstar á hjólum en löggubíll fer fyrir hópnum. Tónlist og fjör.

Allir að muna eftir hjálminum.
Foreldrar/forsjáraðilar eru velkomnir.

Hlökkum til þess að sjá ykkur
Anna Soffía og María Kúld

Um 20 kennarar GSS voru skráðir á UTÍS online um helgina. Dagskráin hófst í gær að loknu litahlaupi og svo fór dagurinn ...
19/09/2026

Um 20 kennarar GSS voru skráðir á UTÍS online um helgina.
Dagskráin hófst í gær að loknu litahlaupi og svo fór dagurinn í dag í fyrirlestra og samveru þar sem við ræddum saman og tengdum við starfið okkar.

Dagskrá UTÍS er alltaf fjölbreytt og hlustuðum við m.a. á fyrirlestra um:
✏️Foreldrasamskipti
✏️ADHD og styrkleika ólíkra nemenda
✏️Læsi og lestrarkennslu
✏️Hvernig má kveikja áhuga á vísindum
✏️Hugarfar og nám nemenda
✏️Gervigreind
✏️Áhættuleik
✏️Skólastofur fyrir alla

Við fórum einnig í ferðalag um íslenskt skólakerfi og þar sáum við nokkur tækifæri fyrir okkur.

Í GSS er símenntun og sameiginlegt lærdómssamfélag mikilvægur hluti af skólastarfinu. Við áttum saman góða og lærdómsríka daga og fórum heim með með allskonar vangaveltur og hugmyndir 😉

17/09/2026

Söngsalur hjá 1.-4.bek🎵🎶

Valli kom til okkar í dag með gítqrinn sinn og hitti nemendur á yngsta stigi.
Krakkarnir tóku vel á móti Valla og var mikið stuð á fyrstq söngsal skólaársina.

Í dag fóru fram kosningar til nemendaráðs. Frábærir fulltrúar nemenda buðu sig fram í formannsembættið.Kosning fór þanni...
15/09/2026

Í dag fóru fram kosningar til nemendaráðs. Frábærir fulltrúar nemenda buðu sig fram í formannsembættið.

Kosning fór þannig að næstu formenn nemendaráðs eru:
Hákon og Jón Dagur.

Við óskum strákunum til hamingju og hlökkum til að vinna með þeim á þessu skólaári.

12/09/2026

Gulur GSS 🟡

Við þökkum foreldrafélaginu kærlega fyrir litríkan og veglegan styrk❤
11/09/2026

Við þökkum foreldrafélaginu kærlega fyrir litríkan og veglegan styrk❤

📫Skólafréttir https://canva.link/11-september-2026Í fréttum er þetta helst🌈Litahlaup📸Á röltinu um GSS📊Umbótaþættir 📈Ísle...
11/09/2026

📫Skólafréttir
https://canva.link/11-september-2026

Í fréttum er þetta helst
🌈Litahlaup
📸Á röltinu um GSS
📊Umbótaþættir
📈Íslenska æskulýðsrannsóknin
📚Læsir fer yfir nýjustu lestrarfréttir

Takk fyrir vikuna og njótið helgarinnar
Starfsfólk GSS

Check out this A4 designed by Þóra Margrét.

Address

Borgarbraut 6
Stykkishólmur
340

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Grunnskólinn í Stykkishólmi posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share

Category