Grunnskólinn í Hofgarði

Grunnskólinn í Hofgarði

Share

Nemendur Grunnskólans í Hofgarði eiga heima í Öræfum. Skólinn er staðsettur í miðri sveiti

Grunnskólinn í Hofgarði 18/05/2020

Grunnskólinn í Hofgarði Skólastarfið hefur verið með eðlilegum hætti eftir páska. Skólasundið hófst 5.maí og lýkur 22.maí. Sundlaugin er á Höfn og stundum nýtum við ferðirnar og gerum eitthvað fleira í leiðinni. Í síðustu viku fórum við í Haukafell og nutum útivistar þar og borðuðum nesti. Í...

Grunnskólinn í Hofgarði » Vorið er komið 16/04/2020

Vorið er komið

Grunnskólinn í Hofgarði » Vorið er komið Skólastarfið hefur verið með venjulegum hætti eftir páskafrí og allir voru mjög glaðir að hittast á ný. Þrátt fyrir ástandið í þjóðfélaginu verður skólastarfið samkvæmt skólanámskrá áfram nema sundkennslan, sundlaugar eru lokaðar vegna COVID smitvarna hér eins og annar...

Grunnskólinn í Hofgarði » Veturinn 2020 18/02/2020

Veturinn 2020

Grunnskólinn í Hofgarði » Veturinn 2020 Í upphafi er best að útskýra hvers vegna við birtum sjaldan fréttir á heimasíðu skólans: öll samskipti við foreldra og skólahópinn fara fram í eigin persónu, í síma eða á lokaða hópnum okkar á facebook. Nú er svartasta skammdegið um garð gengið og daginn farið að lengja....

Grunnskólinn í Hofgarði » Dagskráin í desember 04/12/2019

Dagskráin í desember

Grunnskólinn í Hofgarði » Dagskráin í desember Aðventan hófst á bakstri. Nemendur skólans bökuðu súkkulaðibitakökur sem þau deildu með leikskólabörnunum, þær smökkuðust ljómandi vel. Einnig bökuðu nemendur piparkökur, þegar þær voru orðnar kaldar voru þær skreyttar í öllum regnbogans litum. Jólaföndur verður á ve...

Grunnskólinn í Hofgarði » Haust í skólanum 14/10/2019

Haust í skólanum

Grunnskólinn í Hofgarði » Haust í skólanum Nú er dæmigert haustveður, vindurinn gnauðar og af og til eru skúrir. Nemendur hafa unnið af kappi þennan mánudagsmorgun við stærðfræði, lestur, náttúrufræði og inn á milli hafa þau farið í tónlistartíma. Í dag þreyttu tveir nemendur Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri pr....

Grunnskólinn í Hofgarði » Skólaheimsókn, leiksýningar, tónlist, samræmd próf og sund 30/09/2019

Skólaheimsókn, leiksýningar, tónlist, samræmd próf og sund

Grunnskólinn í Hofgarði » Skólaheimsókn, leiksýningar, tónlist, samræmd próf og sund Þann 27.september fóru nemendur Grunnskólans í Hofgarði á Höfn. Þar sem vegalengdir eru miklar reynum við alltaf að samnýta ferðir þegar hægt er og þess vegna fóru sumir í heimsókn til jafnaldranna á Höfn, sátu tíma með skólabörnunum þar, á meðan aðrir fóru í leikhús....

Grunnskólinn í Hofgarði » Skólastarfið haustið 2019 09/09/2019

Skólastarfið haustið 2019

Grunnskólinn í Hofgarði » Skólastarfið haustið 2019 Nú er kominn nýr skólastjóri: Brynja Kristjánsdóttir tók við því starfi í ágústmánuði. Það er áskorun að taka við nýju starfi og að mörgu að hyggja þegar skólastarf vetrarins er skipulagt. Þau ánægjulegu tíðindi eru að Hafdís Roysdóttir hefur tekið að sér umsjón...

Grunnskólinn í Hofgarði » Góa 01/03/2018

Góa

Grunnskólinn í Hofgarði » Góa Nú er komið að því að skólastjórinn láta í sér heyra á þessari fallegu síðu skólans. En þannig er nú lífið og sumir eru ekki færir um að læra margt í einu.

20/10/2017

Velkomin á opinberu fréttasíðu Grunnskólans í Hofgarði. Þó starfsmenn og foreldrar skólabarnanna fái auðvitað fréttirnar reglulega á innanhússíðunni, þá hafa margir velunnarar skólans lesið fréttasíðuna og því höldum við áfram að setja póst hingað inn.
Talsverðar breytingar urðu á skólastarfinu síðastliðið haust. Þá lét Pálína Þorsteinsdóttir af störfum og nýr skólastjóri tók við, Magnhildur Björk Gísladóttir. Magnhildur þekkir vel til skólamálanna í sveitarfélaginu, hafandi kennt við skólann á Mýrunum og á Höfn, en síðustu árin sá hún um nýbúafræðslu. Við Öræfingarnir vorum himinlifandi að fá svona reynslubolta til okkar. Eiginmaður Magnhildar Þorvaldur Viktorsson bættist einnig í kennarahópinn, Valdi og Brynja Kristjánsdóttir sjá um kennslu á yngsta- og miðstigi. Auk þess að vera skólastjóri Grunn- og leikskólans í Hofgarði hefur Magnhildur umsjón með unglingastiginu en þar hefur verið tekin upp sú nýbreytni að aðalkennarinn á unglingastigi er á Akureyri. Björk Pálmadóttir sem einnig kennir við Verkmenntaskólann á Akureyri kennir unglingunum í gegnum samskiptaforritð zoom og þau skipuleggja námið sitt í Google Classroom. Gaman er að segja frá því að þetta er brautryðjendastarf, en nú eru fleiri skólar að taka upp þetta kerfi.
Peter sér um íþróttakennsluna á öllum skólastigunum. Tónskólinn er með samstarf við skólann, þeir sem vilja geta fengið leiðsögn í hljóðfæraleik og Sigrún Sigurgeirsdóttir annast það.
Leikskóladeildin fékk formlegt nafn í haust við hátíðlega athöfn. Póstur var sendur á Öræfinga og öllum gafst kostur á að senda inn tillögu að nafni, svo var dómnefnd skipuð: Anna María Ragnarsdóttir, Hafdís Roysdóttir, Pálína Þorsteinsdóttir, Sigurður Gunnarsson og Unnur Bjarnadóttir.
Margar góðar tillögur bárust og þær voru auðvitað ræddar fram og aftur. Eftir vandlega skoðun var niðurstaðan sú að Leikskólinn fékk nafnið Lambhagi. Tvær tillögur bárust að því nafni, það voru Matthildur Þorsteinsdóttir og Peter Ålander sem sendu inn tillögur um Leikskólann Lambhaga.
Í Leikskólanum Lambhaga er Eva Bjarnadóttir deildarstjóri en auk hennar sjá Peter Ålander og Halldóra Oddsdóttir um starfið með börnunum. Halldóra er einnig húsvörður í Hofgarði.
Peter sér einnig um skólaaksturinn, þau Eva keyptu 16 manna bíl svo allur skólinn getur nú farið saman í námsferðir þegar það er á dagskrá. Það munar auðvitað töluverðu fyrir foreldra að komast beint í vinnuna þegar skólabíllinn hefur sótt börnin, í stað þess að þurfa að aka börnunum daglega í skólann. AKA spyr kannski einhver velunnari, geta börnin ekki gengið í skólann? Því er til að svara að þennan skólaveturinn eru engin börn sem búa á Hofi, allir nemendur þurfa að fara 6 kílómetra leið eða lengri til skólans.
Unnur Bjarnadóttir sem séð hefur um mötuneyti skólans um árabil hefur nú látið af störfum. Nú er maturinn keyptur af hóteli á Hofi.
Skólastarfið hefur auðvitað verið með nokkuð hefðbundnum hætti eins og lög gera ráð fyrir. Kennslan fer að sjálfsögðu mest fram í Hofgarði en einnig er samstarf við Grsk.Hornafjarðar um námsferðir. Stöku sinnum er svo farið í sundferðir á Höfn.

Aðventufréttir 01/12/2016

Aðventufréttir Það hefur aldeilis verið nóg að gera í skólastarfinu og hefur það alveg lent útundan að skrifa fréttir af því. Veðurfarið hefur verið svo milt á þessari önn að fátt hefur minnt á veturinn en allt í einu eru jólin farin að nálgast. Skólahald hefur verið hefðbundið og hafa allir smám saman verið að ve...

Margt að gera í Hofgarði 05/10/2016

Margt að gera í Hofgarði Í dag hófst leikskólastarf í Hofgarði að nýju eftir margra ára hlé þar sem eru skráð 4 börn. Nemendur í 7.-9. bekk stunda nám sitt 2 daga í viku á Höfn og 3 daga vikunnar hér heima, samtals 5 nemendur. Svo eru nemendur í 1. – 6. bekk 6 talsins. Þannig að það er margt að gera í Hofgarði. Auk þessarar...

Want your school to be the top-listed School/college in Skaftafell?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Category

Address

Hofi
Skaftafell
785