A.T.H. A.T.H.
"Auka" kynning á Verzlunarskólanum (Verzló) fyrir nemendur í 10. bekk:
Námsráðgjöf Valhúsaskóla
Upplýsingasíða fyrir nemendur og forráðamenn. Námsráðgjafi, Helga Sigríður Eiríksdóttir, er við frá kl. 8 - 16 virka daga.
Skrifstofan er á efri hæðinni í stofu 210 B.
22/03/2022
Skilaboð frá Menntaskólanum við Hamrahlíð:
Opið hús Fyrir þá sem vilja kynna sér skólann betur eða misstu af opnu húsi verða kynningafundir í vikunni 25. - 28. apríl kl. 16:15. Skráning á þá mun fara fram á heimasíðu MH. Nánari upplýsingar þegar nær dregur. Bestu kveðjur úr MH
11/03/2022
Opið hús hjá Menntaskóla í tónlist (MÍT):
http://menton.is/index.php/umsoknir/?fbclid=IwAR11a3A2EMfUgbj4visoc5iTbLPtJj2disb4__zjH4m1PXOWpazi3Avbsf8
Umsóknir Opið hús Kynningardagur um skólann fyrir nemendur og aðstandendur þeirra verður haldinn í húsnæði rytmísku deildar MÍT, Rauðagerði 27, sunnudaginn 20.mars milli kl 13 og 15! Inntökukröfur Miðað er við að nemendur hafi lokið miðprófi í hljóðfæraleik eða grunnprófi í sön...
10/03/2022
Opið hús hjá Menntaskólanum í Kópavogi
10/03/2022
Þriðjudaginn 5.apríl kl. 16.00- 18.00 verður OPIÐ HÚS í Menntaskólanum við Sund
Skólinn býður nemendum 10.bekkjar og forráðamenn þeirra velkomna.
Gestir geta kynnt sér námsframboð og námsfyrirkomulag skólans, skoðað húsakynni og kynnt sér félagslífið. Nemendur og starfsfólk skólans verða á staðnum til að svara spurningum og leiða gesti um húsið.
10/03/2022
Skilaboð frá MR:
Ég minni á opið hús í Menntaskólanum í Reykjavík 19. mars kl. 14 - 16
Enn eru nokkur laus pláss á kynningar í næstu viku, nemendur skrá sig sjálfir í síma 545-1900
ATH ATH AUKA KYNNING HJÁ VERSLÓ 6. APRÍL
Versló ætlar að bjóða upp á aðra kynningu á skólanum 6. apríl næstkomandi. Það er ekki búið að gefa út klukkan hvað hún er að deginum en ég læt ykkur vita um leið og ég fæ upplýsingar um það
03/03/2022
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti býður upp á skólaheimsóknir fyrir nemendur í 10. bekk:
Skólaheimsókn Skólaheimsókn
03/03/2022
Menntaskólinn í Kópavogi með opið hús 17. mars 16:30-18:00
02/03/2022
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti (FB) býður nemendum í 10. bekk að koma í heimsókn:
Skólaheimsókn Skólaheimsókn
02/03/2022
Skilaboð frá Versló:
Opið hús fyrir nemendur í 10. bekk Miðvikudaginn 9. mars opnum við dyr skólans og bjóðum nemendum í 10. bekk í heimsókn. Boðið er upp á klukkutíma kynningu á námi skólans og félagslífi þess auk þess sem hin vinsæla Verslólest leiðir gesti um húsakynni skólans.
Skilaboð frá Menntaskólanum í Reykjavík:
Menntaskólinn í Reykjavík býður nemendum í 10. bekk að koma og kynna sér námið og félagslífið í MR. Á kynningunum taka námsráðgjafar skólans á móti nemendum og fara yfir námsframboð og skipulag námsins. Nemendur í 5. og 6. bekk fara svo yfir það sem félagslífið hefur upp á að bjóða og fylgja nemendum í stutta gönguferð um húsnæðið. Gert er ráð fyrir að heimsóknin taki um það bil 45-60 mínútur. Kynningarnar verða á eftirfarandi dögum kl. 16.00, gott er að mæta 10 mínútum áður:
Þriðjudaginn 8. mars
Miðvikudaginn 9. mars
Fimmtudaginn 10. mars
Þriðjudaginn 15. mars
Miðvikudaginn 16. mars
Fimmtudaginn 17. mars
Nauðsynlegt er að skrá sig með því að hringja á skrifstofu skólans í síma 545-1900. Athugið að við getum því miður ekki tekið á móti forráðmönnum í þetta sinn þar sem húsrúm er ekki næganlegt.
Opið hús verður laugardaginn 19. mars á milli kl. 14.00 og 16.00.
Að lokum vil ég segja ykkur frá því að næsta skólaár fær Menntaskólinn í Reykjavík til afnota efri hæðir hússins að Austurstræti 17. Alls verða 10 kennslustofur í húsinu auk félagsrýma, opinna vinnurýma og kaffiaðstöðu. Ekki hefur verið ákveðið hvaða árgangur nýtir þetta rými. Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir nemendur og starfsfólk skólans, þar sem ansi þröngt hefur verið um okkur síðan einu kennsluhúsi skólans var lokað í haust.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Location
Category
Contact the school
Address
Seltjarnarnes
170
Opening Hours
| Monday | 08:00 - 16:00 |
| Tuesday | 08:00 - 16:00 |
| Wednesday | 08:00 - 16:00 |
| Thursday | 08:00 - 16:00 |
| Friday | 08:00 - 16:00 |