Neyðarþjálfun

Neyðarþjálfun neyðarþjálfun.is

01/09/2026

Hvað er gott skyndihjálparnámskeið og hvað er það ekki? Hér fæst svarið við því🚨

07/06/2026
14/05/2026

Héldum skyndihjálparnámskeið fyrir starfsfólk Toyota Kauptúni í vikunni.
- 160 manns á 3 dögum
- Námskeið sniðin að mismunandi deildum
- Sérstakt rafbílanámskeið
- 98% ánægjuhlutfall
Frábær hópur og frábært fyrirtæki

Takk fyrir okkur

Vorum með kynningarbás á Forvarnaráðstefnu VÍS í Hörpu í síðustu viku. Takk fyrir okkur😊
17/03/2026

Vorum með kynningarbás á Forvarnaráðstefnu VÍS í Hörpu í síðustu viku. Takk fyrir okkur😊

🔥NÝR LIÐSMAÐUR OG NÝ ÞJÓNUSTA🔥Við hjá Neyðarþjálfun bjóðum nú upp á námskeið á sviði eldvarna, rýminga og notkun slökkvi...
16/02/2026

🔥NÝR LIÐSMAÐUR OG NÝ ÞJÓNUSTA🔥

Við hjá Neyðarþjálfun bjóðum nú upp á námskeið á sviði eldvarna, rýminga og notkun slökkvitækja.

Til að leiða þetta verkefni fengum við til liðs við okkur mann sem sannarlega má kalla sérfræðing á þessu sviði.

Haukur Grönli hefur starfað á vettvangi viðbragðsaðila og slökkviliða í áratugi og komið víða við á sínum ferli bæði hérlendis og erlendis. Hann hefur komið að þjálfunarmálum og kennslu á fjölmörgum sviðum, bæði til viðbragðsaðila og almennings.

Síðustu ár hefur Haukur mest starfað á sviði öryggismála og áætlanagerðar og var meðal annars verkefnastjóri hraunkælingar hjá Almannavörnum í tengslum við eldsumbrot á Reykjanesi.

Það er okkur mikill heiður að hafa fengið sjálfan hraunkælingarstjórann til liðs við okkur en hann mun sinna námsefnisgerð og leiðbeinendaþjálfun auk kennslu á sviði eldvarna.

Auk Hauks höfum við innan okkar raða atvinnuslökkviliðsmenn sem munu sjá um kennslu og verklega þjálfun í þessum efnum.

Þá höfum við einnig komið okkur upp fyrsta flokks þjáfunarbúnaði sem gefur nemendum tækifæri til að prufa að slökkva alvöru eld með slökkvitækjum og eldvarnarteppum.

Skyndihjálp og eldvarnir eiga svo sannarlega samleið og getum við boðið upp á fjölmargar útgáfur námskeiða úr báðum flokkum eða sniðið saman eitt í námskeið eftir þörfum hvers og eins.

Eru eldvarnir og þjálfun í lagi á þínum vinnustað?
Sjáðu úrval námskeiða á neydarthjalfun.is

Neyðarþjálfun er viðurkenndur námskeiðshaldari á vegum Samgöngustofu fyrir endurmenntun atvinnubílstjóra. Við bjóðum upp...
05/01/2026

Neyðarþjálfun er viðurkenndur námskeiðshaldari á vegum Samgöngustofu fyrir endurmenntun atvinnubílstjóra.
Við bjóðum upp á 7 klst. skyndihjálparnámskeið sem sniðið er að starfi atvinnubílstjóra og telst til verklegra námskeiða í endurmenntun atvinnubílstjóra. Skylda er að hafa lágmark 1 námskeið af 5 verklegt til að viðhalda atvinnuréttindum og teljum við það vel til fundið að nýta skyndihjálp í það.

Nánar á www.neydarthjalfun.is/endurmenntun

Við elskum að fá endurgjöf frá nemendum🤩Sérstaklega þegar hún hljómar svona💙Takk fyrir frábærar viðtökur🙏Komdu í hóp ánæ...
01/12/2025

Við elskum að fá endurgjöf frá nemendum🤩

Sérstaklega þegar hún hljómar svona💙

Takk fyrir frábærar viðtökur🙏

Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina
neydarthjalfun.is

Neyðarþjálfun leggur áherslu á jákvæða upplifun og ánægju nemenda.Við leitum stanslaust leiða til að bæta okkur.Í því sk...
28/11/2025

Neyðarþjálfun leggur áherslu á jákvæða upplifun og ánægju nemenda.

Við leitum stanslaust leiða til að bæta okkur.

Í því skyni höfum við um nokkurt skeið lagt fram ánægjukönnun í lok hvers námskeiðs og niðurstöðurnar tala sínu máli.

Við erum þakklát fyrir jákvæð viðbrögð nemenda sem hvetur okkur til að halda áfram og gera enn betur.

Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina

neydarthjalfun.is

24/11/2025

Vantar hópefli fyrir jólin á þinn vinnustað?🎅

Allir komnir með leið á hláturjóga og markþjálfun? 🫣

Hvernig hljómar að fá bara skemmtilegt skyndihjálparnámskeið?🥳

Nánar á neydarthjalfun.is

Nýjar áherslur frá ERCVið hjá Neyðarþjálfun höfum nú uppfært allt okkar námsefni til samræmis við nýútgefnar leiðbeining...
18/11/2025

Nýjar áherslur frá ERC

Við hjá Neyðarþjálfun höfum nú uppfært allt okkar námsefni til samræmis við nýútgefnar leiðbeiningar frá Evrópska endurlífugunarráðinu (ERC).

Margt af því sem þar kemur fram rímar vel við þá nálgun sem við höfum verið að leggja áherslu á fram að þessu. Við erum mjög ánægð að sjá þær áherslur í nýjum leiðbeiningum.

Dæmi um þær áherslur eru t.d að sníða námskeið meira að nemendum, en það höfum við gert um langa hríð. Einnig áhersla þjálfun í stöðvun lífshættulegra blæðinga og að notast skuli við kennslubúnað sem gefur virka endurgjöf um árangur nemenda í hjartahnoði. Við notumst einungis við Laerdal QCPR kennslubúnað sem gefur rauntíma endurgjöf og einkunn til nemenda.

Við leggjum mikla áherslu að að námsefni og kennsluaðferðir byggi alltaf á nýjustu leiðbeiningum og þetta er liður í því.

Ef þú vilt nýjasta efnið, reynda leiðbeinendur og gæða námskeið - Hafðu þá samband við okkur - neydarthjalfun.is

Address

Selfoss
800

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Neyðarþjálfun posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share