Ferðamálaskóli Íslands

Ferðamálaskóli  Íslands Upplýsingar um nám í Ferðamálaskóla Íslands sem hóf starfsemi 1991 og var fyrsti skóli hér á landi til að hefja alþjóðlegt nám í ferðamálafræðum.

Ferðamálaskóli Íslands hóf starfsemi 1991 og var fyrsti skóli hér á landi til að hefja alþjóðlegt nám í ferðamálum IATA/UFTAA. Í dag er krafa ferðaþjónustunnar að starfsfólk hafi slíka menntun. Boðið er uppá tvenns konar nám. Annars vegar svokallað “Foundation” nám þar sem megin áhersla er lögð á ferðalandafræði, farseðlaútgáfu og Amadeus farbókunarkerfi flugfélaga og ferðaskrifstofa. Skólinn er í mjög góðu samstarfi við flugfélög og ferðaskrifstofur enda er stór hluti starfsfólks þeirra útskrifaður úr þessum skóla. Jafnframt er boðið uppá “IATA/UFTAA Marketing Course” þar sem áhersla er lögð á sölu og markaðsmál í ferðaþjónustu, og höfðar það nám til allra þeirra sem vilja kynnast því hvernig standa skal að sölu og markaðsmálum i ferðaþjónustunni hvort heldur sem er flugfélag, ferðaskrifstofa, bílaleigur eða hótel o.s.frv. Leiðsögunám hófst fyrir nokkrum árum síðan og veitir ekki af að fá dugmikið fólk til starfa í þeirri grein þar sem fjöldi erlendra ferðamanna fer sívaxandi. Á komandi sumri er búist við allt að 180 skemmtiferðaskipum til landsins auk þeirra ferðamanna sem koma á eigin vegum. Gera má ráð fyrir allt að 1 milljón erlendra ferðamanna til Íslands innan fárra ára og er þá gott að vera í stakk búinn til að taka á móti öllum þeim fjölda.

Viðurkenndur og vottaður leiðsöguskóli.
03/02/2026

Viðurkenndur og vottaður leiðsöguskóli.

📣 Viltu verða veiðileiðsögumaður?Ferðamálaskóli Íslands býður upp á sérhæft nám í veiðileiðsögn, fullkomið fyrir alla se...
04/12/2025

📣 Viltu verða veiðileiðsögumaður?

Ferðamálaskóli Íslands býður upp á sérhæft nám í veiðileiðsögn, fullkomið fyrir alla sem vilja starfa við leiðsögn og þjónustu við innlenda og erlenda veiðimenn.

Námið hentar bæði þeim sem vilja hefja feril í veiðileiðsögn og þeim sem þegar starfa í greininni og vilja bæta við sig þekkingu

📞 SKRÁNING OG UPPLÝSINGAR

👉 898-7765 (Friðjón)
📧 eða sendu fyrirspurn á [email protected]

🌐 Flest stéttarfélög styrkja námið

Þingvallaferð með nemendur í leiðsögunámi haustönn 2025
13/11/2025

Þingvallaferð með nemendur í leiðsögunámi haustönn 2025

Hringferð um Ísland og að sjálfsögðu Flugsafnið Akureyri
28/08/2025

Hringferð um Ísland og að sjálfsögðu Flugsafnið Akureyri

Nemendur í leiðsögunámi Ferðamálaskóla Íslands heimsóttu Flugsafnið í dag og kynntu sér starfsemi þess. Í lok heimsóknarinnar tóku þau lagið fyrir safnstjórann og héldu síðan leið sinni áfram um Norðurlandið ☀️🌿

Við þökkum þeim kærlega fyrir komuna 💛

Ferðamálaskóli Íslands

Nám í veiðileiðsögn! Innritun hafin.Námið gefur innsýn í grunnatriði og ítarlegri þætti er varðaveiðileiðsagnarþjónustu....
02/01/2025

Nám í veiðileiðsögn! Innritun hafin.

Námið gefur innsýn í grunnatriði og ítarlegri þætti er varða
veiðileiðsagnarþjónustu. Sérfróðir leiðsögumenn kenna undirstöðuatriði stangveiði og
sérfræðingar miðla fróðleik um fiskana er við sögu koma og vistfræði þeirra.
Þetta er 7 árið sem Ferðamálaskóli Íslands skipuleggur nám fyrir þá sem vilja leggja
veiðileiðsögn fyrir sig og fyrir aðra áhugasama veiðimenn sem vilja uppfæra þekkingu sína á þessu sviði

ATH! Flest stéttarfélög styrkja sína félagsmenn til þessa náms.

Nánari upplýsingar og skráning fer fram í síma 898-7765 Friðjón eða
[email protected]

29 nemendur í veiðileiðsögn sem byrjaði 7. Feb 2024. Frábær hópur. Þetta verður skemmtilegt vor.
16/02/2024

29 nemendur í veiðileiðsögn sem byrjaði 7. Feb 2024. Frábær hópur. Þetta verður skemmtilegt vor.

Skráning hafin
09/01/2024

Skráning hafin

Nám fyrir þá sem vilja gerast veiðileiðsögumenn veiðimanna á Íslandi hefur fest sig í sessi. Nú er sjötta kennsluárið að renna upp og hefst kennsla í byrjun febrúar. Undanfarin fimm ára hafa 120 veiðileiðsögumenn verið útskrifaðir.

Nám í veiðileiðsögn!Námið gefur innsýn í grunnatriði og ítarlegri þætti er varðaveiðileiðsagnarþjónustu. Sérfróðir leiðs...
08/01/2024

Nám í veiðileiðsögn!

Námið gefur innsýn í grunnatriði og ítarlegri þætti er varða
veiðileiðsagnarþjónustu. Sérfróðir leiðsögumenn kenna undirstöðuatriði stangveiði og
sérfræðingar miðla fróðleik um fiskana er við sögu koma og vistfræði þeirra.
Þetta er 6 árið sem Ferðamálaskóli Íslands skipuleggur nám fyrir þá sem vilja leggja
veiðileiðsögn fyrir sig og fyrir aðra áhugasama veiðimenn sem vilja uppfæra þekkingu sína á þessu sviði

28 nemendur hófu veiðileiðsögunám í febrúar 2023
09/04/2023

28 nemendur hófu veiðileiðsögunám í febrúar 2023

Veiðileiðsögn 2023Í samstarfi við Landsamband Veiðifélaga hefur Ferðamálaskóli Íslands undanfarin 4 ár boðið upp á nám f...
06/01/2023

Veiðileiðsögn 2023

Í samstarfi við Landsamband Veiðifélaga hefur Ferðamálaskóli Íslands undanfarin 4 ár boðið upp á nám fyrir áhugasama aðila sem vilja gerast leiðsögumenn bæði innlendra og erlendra veiðimanna í ám og vötnum landsins. Veiðileiðsögunámið er hagnýtt og nýtist í senn starfandi leiðsögumönnum og áhugasömum aðilum sem áhuga hafa á að sinna slíkri leiðsögn. Námið gefur innsýn í grunnatriði og ítarlegri þætti er varða veiðileiðsagnarþjónustu. Sérfróðir leiðsögumenn kenna undirstöðuatriði stangveiða og sérfræðingar miðla fróðleik um fiskana er við sögu koma og vistfræði þeirra.

Meðal kennsluefnis eru undirstöðuatriði er varða líffræði og lífshætti íslenskra ferskvatnsfiska.
Meðal annars er fjallað um árstíðabundnar göngur fiska, gönguhegðun þeirra í ferskvatni og sjó og samspil þátta er koma við sögu.

Farið er yfir þætti er varða umgengni leiðsögumanna við veiðimenn allt frá móttöku þeirra, til veiðanna og annara ráða er varða dvöl í veiðihúsum.

Farið verður í tveggja daga ferð í Eystri Rangá þar sem tekin verður fyrir kasttækni með einhendum og tvíhendum.
Lögð er áhersla á Skyndihjálp og áfallahjálp þar sem litið er sérstaklega til þátta er tengjast hættum við ár og vötn..
Farið er yfir handtök er varða frágang á afla eftir veiði, blóðgun og flökun á fiski. Samhliða verður farið yfir grunnþætti sem varða meðhöndlun fiska með hliðsjón af "veiða og sleppa" veiðihættinum.
Allir leiðbeinendur hafa áratuga reynslu sem leiðsögumenn eða vísindamenn hver á sínu sviði.
Námið er alls 130 stundir og fer bæði fram í kennslustofu og á bökkum Eystri Rangár eða Hólsár. Kennslan hefst miðvikudaginn 15. Febrúar

Innritun hafin fyrir haustönnina.
23/08/2022

Innritun hafin fyrir haustönnina.

Veiðileiðsögn 2022Í samstarfi við Landsamband Veiðifélaga hefur Ferðamálaskóli Íslands undanfarin 3 ár boðið upp á nám f...
15/01/2022

Veiðileiðsögn 2022
Í samstarfi við Landsamband Veiðifélaga hefur Ferðamálaskóli Íslands undanfarin 3 ár boðið upp á nám fyrir áhugasama aðila sem vilja gerast leiðsögumenn bæði innlendra og erlendra veiðimanna í ám og vötnum landsins.

ATH! Flest stéttarfélög styrkja sína félagsmenn til þessa náms.
Nánari upplýsingar og skráning fer fram í síma 898-7765, Friðjón eða [email protected]

Address

Bíldshöfði 18
Reykjavík
110

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ferðamálaskóli Íslands posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category