Lesa

Lesa

Share

Lestrarleikur sem kveikir áhuga barna á lestri með leik og ævintýrum - kemur út haustið 2026.

02/06/2026

Lesa er ekki bara lestrarleikur, heldur risastórt stafrænt bókasafn.

Við erum að leggja lokahönd á 365 sögur í þremur erfiðleikastigum. Allar sögurnar eru vandlega smíðaðar frá grunni þar sem hver einasta blaðsíða er myndskreytt og hver saga með tvær til þrjár spurningar til að kanna lesskilning. Fagleg ritstjórn fer yfir allt saman og hefur MMS stutt vel við bakið á okkur með góðum ráðum.

Þegar börnin klára heilt ár með LESA að þá er það búið að fara skipulega yfir alla helstu stafi, öll helstu hljóð og orð sem börn á yngsta stigi grunnskóla ættu að þekkja.

LESA kemur út um miðjan ágúst.

Photos from Lesa's post 27/05/2026

LESA x GIPHY 🎉

LESA er komið á GIPHY sem þýðir að núna er hægt að bæta við skemmtilegum límmiðum (e. stickers) úr persónuheimi LESA á bæði Facebook og Instagram. Þó svo að LESA snúist um að bæta lestarfærni, lesskilning og lestraránægju barna þá skiptir okkur gríðarlega miklu máli að allt sé í senn skemmtilegt. Það eykur líkur á notkun lestrarleiksins er því grunnstoð í vörumerkinu sjálfu.

Ef þið viljið prófa þá getið þið vippað upp Facebook story og skrifað t.d. LESA app (sem dæmi). Þá ættuð þið að fá fyrstu 5 límmiðana.

Lesa app - fyrir yngstu grunnskólanemana - Vísir 22/05/2026

Frábært að spjalla við Heimi og Ómar á Bylgjan í dag um Lesa. Ræddum m.a. tilurð LESA og hvað er framundan.

Styttist í fyrstu útgáfu 🤗

Arnar Gísli Hinriksson
Birgir Hrafn Birgisson

Lesa app - fyrir yngstu grunnskólanemana - Vísir Birgir Hrafn Birgisson og Arnar Gísli Hinriksson frá LESA mættu í Bítið

07/05/2026

Stór dagur á morgun!
Við erum að deyja úr spenningi að fá stóran hóp velunnara Lesa í heimsókn á morgun - til að fara yfir nýjustu stöðuna. Þessir "Lesarar" hafa stutt við bakið á okkur frá degi eitt og þess vegna verður þessi flotti LESA varningur tileinkaður þeim.

Derhúfur, skjólur, límmiðar, bolir og húðflúr.

LESA kemur svo út í ágúst 🤩

23/04/2026

Gleðilegt sumar Lesarar!🌼

13/04/2026

Lesa er tilnefnt á awwwards. 🎉

Ef þið eigið tíma aflögu og viljið styðja við íslenska nýsköpun megið þið endilega kjósa. 🙏

👉 https://www.awwwards.com/sites/lesa-2

Bjarki Steinn Birgisson
Þórdís Jóna

Lesa er hluti af Revera

04/04/2026

Lesa hlaut gullverðlaun á Íslensku Vefverðlaununum 2026. Þetta er mikil viðurkenning fyrir lítið teymi með stóra drauma.

🏆 Fyrirtækjavefur ársins, lítil fyrirtæki.

LESA lestrarleikur mun bjóða upp á:
👉 Leikjavæddan lestrarleik fyrir yngsta stig grunnskóla þar sem við byrjum ævintýrið í 1. bekk.
👉 Risaastórt stafrænt sögusafn þar sem áhersla er á sögu dagsins. Hver saga er einstök, myndræn og skemmtileg - og byggir á faglegum grunni ásamt öflugri ritstjórn.
👉 Fullkomin yfirsýn fyrir foreldra yfir lestur barnsins. Sjáðu lestrarárangurs barnsins vaxa yfir árið með ítarlegri tölfræði eins og náttúrulegum leshraða, lestarsamfellu, lesskilning og lestraránægju.
👉 Hvatakerfi sem gerir lestrarleikinn enn skemmtilegri. Barnið fær stig fyrir t.d. mínútur lesnar, sögur kláraðar og rétt svör sem það getur svo nýtt í að spila "míní" orða- og lestrarleiki eða opna fyrir nýjar persónur í heimi LESA.

Við ætlum okkur stóra hluti næstu misseri en appið kemur út í haust. Það eru enn tækifæri til þess að hafa áhrif á mótun LESA. Sjá prufuhópin hér: https://www.facebook.com/groups/966284622435336/

Takk Samtök vefiðnaðarins - SVEF fyrir okkur.

Bjarki Steinn Birgisson
Þórdís Jóna
Arnar Gísli Hinriksson
Andri Már Kristinsson
Ómar Þór Ómarsson

25/03/2026

Viltu taka þátt í að prófa og móta lestrarleikinn Lesa áður en að LESA kemur formlega út í haust? Aldursbilið 4-6 ára er líkast til besti aldurinn fyrir þessa fyrstu útgáfu 🌸

Við erum að byrja með prófunarhóp fyrir þá sem eru að notast við iOS tæki (iPad eða iPhone).

Getur smellt hér til að óska eftir aðgengi: 👇
https://www.facebook.com/groups/966284622435336/

Nánar um Lesa 👉 www.lesa.is

17/03/2026

Það er heldur betur búið að vera gaman hjá okkur síðustu daga að prófa! 😍

15/03/2026

LESA fær rós í hnappagatið. Við í Lesa erum í skýjunum með að hljóta tilnefningu til Íslensku vefverðlaunanna hjá Samtök vefiðnaðarins - SVEF. Takk kærlega fyrir okkur 🌸

👉 www.lesa.is

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Address


Borgartún 29
Reykjavík
105