25/03/2026
https://www.facebook.com/share/p/17xYm46o4R/
Á morgun, fimmtudaginn 26. mars, má búast við talsverðri snjókomu á höfuðborgarsvæðinu sem veldur slæmu skyggni og versnandi færð. Ferðaveður verður varasamt og hætta á foktjóni.
Fólk er hvatt til að tryggja lausamuni og huga vel að öryggi.
Ef möguleiki er á, er best að vera sem minnst á ferðinni.
Frá Veðurstofa Íslands
Höfuðborgarsvæðið
Suðaustan stormur og stórhríð
Suðaustan 18-25 m/s og vindhviður staðbundið yfir 35 m/s. Einnig má búast við talsverðri snjókomu með slæmu skyggni og versnandi færð. Varasamt ferðaveður. Einnig er hætta á foktjóni og er fólk er hvatt til að tryggja lausamuni.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu