Grænfáninn - Skólar á grænni grein - Eco Schools Iceland

Grænfáninn - Skólar á grænni grein - Eco Schools Iceland Grænfáninn er alþjóðleg viðurkenning til skóla sem vinna að menntun til sjálfbærni.

22/09/2026
Í gær, á Degi íslenskrar náttúru, fékk Menntaskólinn á Egilsstöðum afhentan sinn annan Grænfána. Undanfarið tímabil var ...
17/09/2026

Í gær, á Degi íslenskrar náttúru, fékk Menntaskólinn á Egilsstöðum afhentan sinn annan Grænfána. Undanfarið tímabil var unnið með þemað "Hnattrænt réttlæti" á þverfaglegan og fjölbreytilegan hátt. Frábært dæmi um áhrif nemenda í gegnum Grænfánastarfið er að umfjöllun í skólanum um neyslu og nægjusemi leiddi til vel sóttrar endurvinnslu- og saumasmiðju s.l. vor sem núna hefur verið breytt í áfanga á listabraut eftir óskum nemenda. Já, Grænfáninn er svo sannarlega farvegur fyrir nemendur til þess að hafa áhrif og finna fyrir stuðning skólans í því. Það er hipp og kúl að taka virkan þátt í góðum breytingum og verkefnum í þágu umhverfis og loftslags. Við óskum ME innilega til hamingju með annan Grænfána!

Í dag, á degi íslenskrar náttúru, fékk skólinn í hendurnar Grænfánann í annað skiptið.

Gleðilegan Dag íslenskrar náttúru kæru vinir! Skólar eru hvattir til að gera deginum hátt undir höfði og nýta sér meðfyl...
16/09/2026

Gleðilegan Dag íslenskrar náttúru kæru vinir!

Skólar eru hvattir til að gera deginum hátt undir höfði og nýta sér meðfylgjandi verkefni í tengslum við daginn sem Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Landvernd og Miðstöð útivistar og útináms hjá Reykjavíkurborg hafa unnið. Hvort sem það er í dag eða næstu daga.

Að þessu sinni leggjum við til sköpun í náttúrunni með ljóðaramma og sköpun tengda nærumhverfinu. Íslensk náttúra hefur lengi verið innblástur fyrir ljóðskáld, rithöfunda og listafólk og geta verkefnin með mismunandi áherslum hentað öllum aldurshópum nemenda.

Við vonumst til að sem flestir nýti sér verkefnið til að njóta útiveru með nemendum eða bara börnum sínum og vekja athygli á lífbreytileika náttúru og nærumhverfis.

Skólar eru enn fremur hvattir til að deila myndum af verkefnunum með umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu, Landvernd og Miðstöð útivistar og útináms og er hægt að gera það með því að senda póst á netfangið [email protected].

Skráning er hafin á ráðstefnu Grænfánans. Endilega kynntu þér dagskrána og skráðu þig sem fyrst. :) Við hlökkum til að s...
10/09/2026

Skráning er hafin á ráðstefnu Grænfánans. Endilega kynntu þér dagskrána og skráðu þig sem fyrst. :) Við hlökkum til að sjá ykkur í Hlégarði í Mosfellsbæ 2. október.

Háskóli Íslands flaggaði sínum sjötta Grænfána í gær í Grænni nýnemaviku. Grænfánanefndir skólans hafa brallað ýmislegt ...
02/09/2026

Háskóli Íslands flaggaði sínum sjötta Grænfána í gær í Grænni nýnemaviku. Grænfánanefndir skólans hafa brallað ýmislegt síðustu ár og margt er nú þegar orðið að föstum lið sem hefur byrjað í gegnum Grænfánastarfið.

Til að mynda er nú að verða orðin til gullfallegur trjálundur norðan við aðalbygginguna þar sem nemendur hafa plantað trjám við hverja flöggun.

Við óskum Háskólanum innilega til hamingju með sjötta fánann og hlökkum til að sjá hvað þau taka sér fyrir hendur á komandi tímabili.

Umhverfisráð Háskólans á Akureyri að kynna sitt öfluga grænfánastarf fyrir nýnemum 👏
27/08/2026

Umhverfisráð Háskólans á Akureyri að kynna sitt öfluga grænfánastarf fyrir nýnemum 👏

Hálsaskógur er fyrirmyndar Grænfánaleikskóli.
26/08/2026

Hálsaskógur er fyrirmyndar Grænfánaleikskóli.

Hópur leikskólabarna úr Hálsaskógi hefur hitt eldri borgara í Seljahlíð einu sinni í viku frá því í ágúst vegna verkefnis sem miðar að því að styrkja tengsl kynslóða. Þegar verkefnið hófst þekktust hóparnir lítið sem ekkert, en á fáum mánuðum hafa myndast sterk og k....

Address

Guðrúnartún 1
Reykjavík
105

Opening Hours

Monday 09:00 - 16:00
Tuesday 09:00 - 16:00
Wednesday 09:00 - 16:00
Thursday 09:00 - 16:00
Friday 09:00 - 16:00

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Grænfáninn - Skólar á grænni grein - Eco Schools Iceland posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Grænfáninn - Skólar á grænni grein - Eco Schools Iceland:

Share