06/05/2026
Haunted á Skjaldborg
Heimildarmyndin Borgin mín: Skynjun, minningar og frásagnir í borgarlandslagi eftir Hrafn Helga Helgason verður frumsýnd á kvikmyndahátíðinni Skjaldborg sem fram fer um hvítasunnuhelgina 22.-25. maí n.k. á Patreksfirði. Í myndinni er einstaklingum fylgt eftir á göngu um eldri hverfi Reykjavíkur og rýnt í samtal þeirra við borgina. Sýnt er hvernig skynjun, fyrri reynsla og frásagnir af fólki, atvikum og staðháttum skapar tengingu fólks við umhverfið og þá merkingu sem það gefur borgarlandslaginu. Myndin byggir á rannsóknarverkefninu Hauntɘd. Ókeypis er inn á allar heimildamyndirnar sem sýndar eru í bíóinu Skjaldborg sem staðsett er í hjarta bæjarins. Hátíðarpassi veitir aðgang að allri dagskrá hátíðarinnar, sjávarréttaveislu, plokkfiskboði kvenfélagsins, partýi á laugardagskvöldinu, lokakvöldi með dansiballi, í sundlaugina alla helgina og gistingu á tjaldstæðinu.