Skólasafn Breiðholtsskóla

Skólasafn Breiðholtsskóla Velkomin á síðu skólasafns Breiðholtsskóla.

Hér ætlum við að segja frá ýmsu skemmtilegu sem er að gerast hjá okkur, kynna bókaklúbba, bækur og eiga áhugaverðar og skemmtilegar umræður um lestur og bókmenntir.

Hver er ekki til í að koma í bókasmakk, finna svo gullmiða í bókinni sinni og vinna sér inn smá súkkulaði? Eins gott að ...
15/09/2026

Hver er ekki til í að koma í bókasmakk, finna svo gullmiða í bókinni sinni og vinna sér inn smá súkkulaði? Eins gott að Fröken Rót í bók vikunnar (Grimmi tannlæknirinn) frétti ekki af þessu... EN við leyfum okkur stundum eitthvað á merkisdögum og á Roald Dahl deginum í síðustu viku kom 6. bekkur í bókasmakk og gleði... og það verður að segjast eins og er að nemendur og starfsfólk í árganginum stóð sig MJÖG VEL! Skólinn var með kakósúpu í hádeginu af tilefni alþjóðadegi súkkulaðsins og svo ætlar hún Linda-Marie okkar að kenna árganginum að gera konfekt í heimilisfræðinni. Það er aldrei að vita nema við hendum í bíósýningu á sal fyrir 6. bekk í vetur enda búið að kvikmynda margar af bókum Roalds Dahls. OG gaman að segja frá því að loksins er bókin Kalli og súkkulaðifabrikkan fáanleg á íslensku. Við erum að sjálfsögðu búin að tryggja okkur nokkur eintök fyrir skólabókasafnið ;-)

Í dag er Alþjóðlegi Doppudagurinn. Af því tilefni kemur 1. bekkur í sögustund á safnið og í kjölfarið gerum við alltaf f...
15/09/2026

Í dag er Alþjóðlegi Doppudagurinn. Af því tilefni kemur 1. bekkur í sögustund á safnið og í kjölfarið gerum við alltaf fallegt listaverk saman. Að þessu sinni unnum við með dropateljara og gerðum falleg samhverf doppufiðrildi sem við ætlum að fegra skólann okkar með. Fyrst voru fiðrildin klippt úr svörtu kartoni og það var hún Leonora okkar á skólasafninu sem undirbjó það fyrir okkur og svo var mikið líf og fjör þegar málunin hófst. Með þessu verkefni æfðum við okkur í að hlusta á sögu, vinna með dropateljara, merkja verkefnin okkar og að útbúa listaverk með speglun. Og Doppusagan kenndi okkur líka að þótt við séum ekki góð í öllu getum við alltaf prófað nýja hluti, æft okkur og svo reynt að gera aðeins betur næst. Gleðilegan doppudag öll sömul!

Bók vikunnar, Grimmi tannlæknirinn, er eiginlega bara fyrir þá sem þora... þessi Fröken Rót er ekkert lamb að leika sér ...
14/09/2026

Bók vikunnar, Grimmi tannlæknirinn, er eiginlega bara fyrir þá sem þora... þessi Fröken Rót er ekkert lamb að leika sér við og við á safninu ætlum aldrei aftur að fá okkur nammi!

Á sunnudaginn, 13. september, er afmælisdagur Roalds Dahls. Þegar hann var ungur strákur í heimavistarskóla fyrir drengi...
10/09/2026

Á sunnudaginn, 13. september, er afmælisdagur Roalds Dahls. Þegar hann var ungur strákur í heimavistarskóla fyrir drengi var bekknum hans boðið að koma í heimsókn í súkkulaðiverksmiðju í nágrenninu. Þaðan spratt hugmyndin að einni vinsælustu bók hans áratugum síðar. En þessi dagur er jafnframt afmælisdagur hins fræga súkkulaðiframleiðanda Milton S. Hersheys og þessum herramönnum til heiðurs var 13. september því gerður að alþjóðadegi súkkulaðsins. Við í Breiðholtsskóla höfum fagnað afmælisdegi Roalds Dahls með bókakaffihúsi á bókasafninu og undanfarin ár hefur þetta einnig verið sérlegur kakósúpudagur í skólanum. Þar sem þennan skemmtilega merkisdag ber upp á sunnudag þetta árið munum við gera okkur glaðan dag á morgun, 11. september, en hvetjum ykkur öll til að horfa á myndir Roalds Dahls næstu daga, grípa í bækurnar ykkar og já... gæða ykkur á smá súkkó ;-)

Bók vikunnar er Vinkonur - Bekkjardrottningin eftir Söru Ejersbo. Korter í sumarfrí kemst bekkjardrottningin Jósefína að...
08/09/2026

Bók vikunnar er Vinkonur - Bekkjardrottningin eftir Söru Ejersbo. Korter í sumarfrí kemst bekkjardrottningin Jósefína að því að vinkonur hennar hafa ekki verið alveg eins heiðarlegar við hana og hún hélt - og hana langar ekki aftur í skólann... alla vega ekki sama gamla skólann. En svo eru það Lúkas, sæti strákurinn, sem togar í hana og óvænt vinátta sem skapaðist í sumarfríinu... en í alvöru, hvað gera bekkjardrottningar í svona aðstæðum?

Bók vikunnar er eftir Ævar Þór Benediktsson - Höfundur Áður en hann varð vísindamaður (og frægur höfundur) var hann óskö...
31/08/2026

Bók vikunnar er eftir Ævar Þór Benediktsson - Höfundur Áður en hann varð vísindamaður (og frægur höfundur) var hann ósköp venjulegur strákur sem langaði helst ekkert að eiga vini og talaði mest við köttinn sinn, Einstein. Risaeðlur í Reykjavík er fyrsta bókin í 5 bóka seríu um bernskubrek Ævars og fjallar um bandóðar risaeðlur, stórhættulegan ungling, júragarð á hálendinu og margt fleira. Hvað gerist þegar 11 ára börn í afmælisveislu unga óvart út risaeðlueggjum? Þú verður að glugga í þessa!!!

Frá því um miðjan nóvember hefur jólabókaklúbburinn verið eitt af föstu bókasafnsverkefnunum en þá lesa nemendur fjórar ...
19/12/2025

Frá því um miðjan nóvember hefur jólabókaklúbburinn verið eitt af föstu bókasafnsverkefnunum en þá lesa nemendur fjórar jólabækur og vinna sér inn happdrættismiða. Lesa má eins margar jólabækur og hver og einn vill – og fjölga happdrættismiðunum um leið.

Í gær dró svo Ásta Bjarney skólastjóri fjögur börn sem hlutu jólaglaðning frá skólanum. Að þessu sinni voru hin heppnu þau Maja Andrulyté í 3. bekk, Uni Dagur Hákonarson og Abdifatah Abdrahman Salim í 4. bekk, og Imran Askari í 6. bekk. Þau fengu fallegan jólabolla og efni og áhöld til að búa til heitt hátíðarsúkkulaði í jólafríinu sínu. Til hamingju krakkar!

Við bókasafnsskvísurnar óskum ykkur öllum svo gleðilegra lestrar-jóla með þökk fyrir árið sem er að líða.
Unnur María og Leonora.

Af mörgum uppáhaldsjólaverkefnum skólabókasafnins mætti nefna jóla-orða-bingóið. Markmið þess er að læra íslensk jólaorð...
18/12/2025

Af mörgum uppáhaldsjólaverkefnum skólabókasafnins mætti nefna jóla-orða-bingóið. Markmið þess er að læra íslensk jólaorð og eiga gleðilega stund saman á aðventunni. Við sama tækifæri eru orð eins og lóðrétt, lárétt, efsta, neðsta og fleiri bingóorð lögð inn. Við reynum að spila 5 umferðir og tökum ýmsar útgáfur en endum yfirleitt á standandi bingói sem er mjög spennandi. Síðustu ár hefur þetta orðið að föstum lið með íslenskuverinu okkar sem er að vinna svo flott starf en auk þess mæta öll börn í 4. og 5. bekk í gleðina og efla orðaforðann hó, hó, hó 🎅

Hér er búið að vera mikið líf og fjör í 1.-3. bekk. Allir nemendur í þessum árgöngum eru búnir að koma í jólasögukósý á ...
16/12/2025

Hér er búið að vera mikið líf og fjör í 1.-3. bekk. Allir nemendur í þessum árgöngum eru búnir að koma í jólasögukósý á bókasafnið og lita jólagrímur. VIð lásum bókina Jóla-Ekki opna þessa bók og óhætt að segja að hún hafi slegið í gegn hjá þessum aldri :-)

Og þá er það niðurstaða 13 manna dómnefndar í Piparkökuhúsakeppni Breiðholtsskóla 2025:Sigurvegarar í heimabakað og skre...
05/12/2025

Og þá er það niðurstaða 13 manna dómnefndar í Piparkökuhúsakeppni Breiðholtsskóla 2025:

Sigurvegarar í heimabakað og skreytt 1.-5. bekkur.
1. sæti: Sandra Elizabeth Rutkowska og Igne Navickaite í 2. bekk með 35 stig.
2. sæti: Maja Andrulyté í 3. bekk með 22 stig.
3. sæti: Brynja Guðrún Eysteinsdóttir og Freyja Rut Sæland í 3. bekk með 17 stig.

Sigurvegarar í keypt og skreytt 1.-10. bekkur
1. sæti: Lilja Lúkasdóttir Olsen í 2. bekk með 25 stig.
2. sæti: Viktoría Lúkasdóttir Olsen , Annika Paraiso og Aya Askari í 8. bekk með 23 stig.
3. sæti: Viktor Olaf Kislicki í 5. bekk með 16 stig.

Address

Arnarbakki 1-3
Reykjavík
109

Opening Hours

Monday 08:00 - 16:00
Tuesday 08:00 - 16:00
Wednesday 08:00 - 16:00
Thursday 08:00 - 16:00
Friday 08:00 - 16:00

Telephone

+3544117450

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Skólasafn Breiðholtsskóla posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Skólasafn Breiðholtsskóla:

Shortcuts

Share

Category