Flóki - Námskeið í forritun

Flóki - Námskeið í forritun

Share

Forritun og app gerð fyrir alla! Besta leiðin til að sjá hvort forritun er fyrir þig

28/10/2023

Takk fyrir frábærar undirtektir og áhuga!🥳

Það er því miður orðið uppselt á námskeiðið sem er kennt dagana 31 okt. & 2 nóv.

En það eru næg laus pláss á næsta námskeið sem er kennt dagana 7 & 9 nóv.

Út af miklum áhuga munum við bjóða upp á fleiri námskeið og það verður að öllum líkindum annað námskeið dagana 14 & 16 nóv.

Einnig munum við fljótlega taka stöðuna og sjá hvort það sé áhugi á framhaldsnámskeiði þar sem við munum halda áfram með appið sem við gerðum í fyrsta námskeiðinu og fara í flóknari aðgerðir.

Við munum auglýsa það betur seinna.🤩

21/10/2023

Velkomin á Flóki - Námskeið í forritun🤩

Forritun þarf ekki að vera Flókin.

Langar þig að skrá þig í tölvunarfræði nám en ert ekki viss hvort að tölvunarfræðin er fyrir þig?

Útilokaðiru nám í tölvunarfræði útaf slæmum frásögnum?

Við höfum of oft heyrt frá fólki sem vissi ekki hvað forritun og tölvunarfræði nám væri og því ákveðið að fara ekki í það og séð svo eftir því eða tekið það eftir að hafa klárað aðra háskólagráðu.

Okkur fannst vöntun á öflugum námskeiðum í forritun sem taka ekki nokkrar vikur eða mánuði að klára.

Okkur fannst vöntun á því að sýna fólki hvernig það er að vera Tölvunarfræðingur.

Okkur fannst vöntun á fræðslu og innsýn í námið.

Okkur fannst einnig vöntun á snöggum en góðum leiðum fyrir fólk sem vill læra nýja hluti í forritun hvort sem þau séu lærð eða ekki.

Því ákváðum við að búa til námskeið þar sem við búum til app saman frá grunni, skref fyrir skref.
Námskeiðið tekur eingöngu tvo daga þar sem við hittumst á Discord rás námskeiðsins og vinnum saman í 2 - 3 klukkutíma.

Í lok námskeiðsins munið þið geta búið til ykkar eigið app frá grunni og keyrt það upp í símanum ykkar, þið munið getað notað appið sem við búum til saman og breytt því og gert það ykkar eigið. Einnig verður allur kóði námskeiðsins aðgengilegur fyrir ykkur.

Discord rásin mun vera opin áfram eftir að þið ljúkið námskeiðinu í þeirri von að þið háldið áfram að læra og vinna í appinu, þar getið þið þá deilt því sem þið eruð búin að læra og hjálpast að.
Einnig munum við vera þarna til taks og reyna að aðstoða og svara spurningum.

Við munum einnig kenna ykkur að nota gervigreind á réttan hátt til að aðstoða ykkur við að læra og afla upplýsinga hraðar.

Næstu námskeið:
- !Uppselt! - Þriðjudaginn 31 október kl. 19:30 - Búum til app saman
- Þriðjudaginn 7 nóvember kl. 19:30 - Búum til app saman

Verð 11.000 kr.
Námskeiðið er fjarkennsla.

Skráið ykkur sem fyrst til að tryggja pláss.

Ef þú eða einhver sem þú þekkir hefur áhuga á að taka þetta námskeið eða viljið vita meira þá þarf bara að senda okkur skilaboð á messenger eða tölvupóst á [email protected].

Want your school to be the top-listed School/college in Reykjavík?

Click here to claim your Sponsored Listing.

Location

Telephone

Website

Address

Reykjavík
110