23/09/2026
Breytingar til hins betra byrja hjá okkur sjálfum 💜
Ferðalag mitt í sjálfsvinnu hófst fyrir alvöru þegar ég var 17 ára og missti bróður minn. Missirinn vakti upp stórar spurningar um lífið, hamingjuna, öryggið og tilganginn. Þessar spurningar hafa fylgt mér síðan, einhver svör hafa ratað á yfirborðið eftir því sem ég hef þroskast en annað er enn ósvarað.
Lífið sjálft hefur verið minn stærsti kennari 🤓
Í gegnum sorg og gleði, ást, móðurhlutverkið, sambönd, starfsframa, ótta, áskoranir, niðurbrot og enduruppbyggingu hef ég aftur og aftur verið leidd að sama stað:
Leiðin snýst um að muna hver við raunverulega erum ✨️
Fyrir mér er heilun umbreyting. Hreyfing. Orkuskipti. Orkubreyting.
Við getum staðnað eða upplifað okkur föst þegar hugsanir okkar, hegðun eða lífsmáti eru ekki lengur í samræmi við hver við erum í raun. Heilun hefst þegar við tengjumst aftur sjálfum okkur, líkamanum, sannleikanum okkar, kærleikanum og uppsprettunni.
Í gegnum árin hef ég sótt mér fjölbreytta þekkingu og reynslu sem styður þessa sýn. Ég er KAP leiðbeinandi og Engla Reiki meistari, hef lokið Vehoma leiðtogaþjálfun sem byggir á visku indjána, stundað shamanískt nám hjá Otter Dance Earth Medicine og nýti tarotlestur sem verkfæri til innsýnar og ígrundunar. Náttúran og dýrin eru einnig dyggir stuðningsaðilar í heilun 💚
Í starfi mínu fléttast þessi reynsla saman við markþjálfun, persónulega leiðtogafærni, orkuvinnu og mína eigin innsæisvinnu. Ég vinn út frá reynslu, innsæi og innri visku og læt þarfir einstaklingsins leiða ferðina.
Mitt hlutverk er að skapa öruggt og kærleiksríkt rými þar sem þú getur fundið fyrir því að þú sem manneskja ert heyrð og séð. Þú færð tækifæri til að sjá betur þinn eigin styrk, fegurð og kjarna.
Ég er sjálf enn að læra.
Enn að umbreytast.
Enn að muna.
Og það er frá þeim stað sem ég held rými fyrir þig á þínu ferðalagi 🤍
Nánari upplýsingar í skilaboðum eða [email protected]
Maríanna Magnúsdóttir