Margir nemendur upplifa óöryggi og kvíða þegar kemur að stærðfræðinámi, jafnvel þótt þeir hafi burði til að ná góðum tökum á greininni. Skóla Akademían býður upp á einstaklingsmiðaða stærðfræðikennslu sem byggir á trausti, skilningi og hvetjandi nálgun. Tilgangur Skóla Akademíunnar er að styðja við einstaklinga sem vilja bæta árangur sinn og auka öryggi sitt í stærðfræði, með áherslu á persónulega leiðsögn og jákvæða upplifun af náminu. Einkakennslan miðar að því að brjóta niður hindranir, vinna gegn neikvæðri sjálfsmynd og opna leið að dýpri skilningi. Markmið
*Að veita nemendum einstaklingsmiðaða kennslu sem tekur mið af þeirra þörfum og námsstíl.
*Að styrkja sjálfstraust nemenda í stærðfræðinámi.
*Að útskýra stærðfræðileg hugtök á skýran og hagnýtan hátt.
*Að skapa öruggt og hvetjandi námsumhverfi þar sem mistök eru liður í námi.
*Að stuðla að aukinni sjálfstæði og jákvæðri afstöðu nemenda til stærðfræði. Einkatímar í stærðfræði á öllum skólastigum, bæði staðbundið og í fjarkennslu. Greining á þörfum hvers nemanda og gerð einstaklingsmiðaðrar námsáætlunar. Regluleg eftirfylgni með framförum og markviss endurmat á kennsluaðferðum. Notkun fjölbreyttra útskýringaraðferða: myndrænt, hagnýtt og dæmadrifið nám. Sérstök áhersla á að byggja upp öryggi nemandans í að takast á við stærðfræðileg viðfangsefni á eigin forsendum.