23/03/2022
Við bjóðum ykkur að sækja sérstakan viðburð á vegum Leiðtoginn í mér á morgun: A special Humanity Day Zoom call
Stríðið í Úkraínu og allar afleiðingar þess eru okkur ofarlega í huga. Þó að þetta sé stærra en við getum líklega leyst, þá getum við öll gert eitthvað innan okkar áhrifahrings. Gildin um leiðtogahæfni sem við kennum eru því núna enn meira viðeigandi en nokkru sinni fyrr.
Í tilefni af special Humanity Day á morgun, efnum við til ZOOM fundar á morgun kl. 12:00 að íslenskum tíma þar sem koma saman nemendur, kennarar, skólar og leiðtogar allsstaðar af úr heiminum.
Nánari upplýsingar og dagskrá:
In this meeting we will hear stories from:
- A student from Romania, explaining their idea for Humanity Day
- A Student from Ukraine
- A Teacher from Ukraine
- A speech from Sean Covey
- Closing remarks Bill McIntyre
Fundurinn fer fram á ZOOM, hafir þú áhuga á að mæta, endilega settu þig í samband við Þóru Sif þjónustustjóra FranklinCovey á Íslandi fyrir frekari upplýsingar. Netfang: [email protected]