Hér koma inn myndir úr skólanum. Námið veitir nemendum undirstöðuþekkingu í störfum sem lúta að skógrækt og umönnun umhverfis. Í því eru kenndar grunngreinar náttúrufræði, svo sem jarðvegs- og áburðarfræði, plöntuþekking, plöntulífeðlisfræði, vistfræði og umhverfisfræði. Einnig er fjallað ítarlega um skógrækt, nýtingu skógarafurða, skjólbelti, útivistarsvæði og friðlönd. Starfsvettvangur
Starfsvettvangur útskrifaðra nemenda er skóg- og trjárækt og verkstjórn á þeim sviðum. Jafnframt vinna þeir við margvísleg störf sem tengist uppgræðslu, landbótum, náttúruvernd, útivistar- og ferðaþjónustusvæðum, grænum svæðum í þéttbýli, ofl. Verknám
72 vikur, þar af 60 vikur dagbókarskyldar. Markmið Skógar- og náttúrubrautar
Að loknu námi geti nemendur m.a. nýtt sér og miðlað þekkingu á eftirfarandi:
• Náttúru Íslands
• Tegundum trjáa og runna, ræktun þeirra og umhirðu
• Fræsöfnun og sáningu fræs í náttúruna
• Gerð stíga, áningastaða og merkinga á útivistarsvæðum
• Gerð girðinga og hliða
• Íslenskum náttúruauðlindum og umhverfisvernd
• Ástandi lands út frá nýtingu og jarðvegsrofi
• Ræktun í íslenskum jarðvegi og áburðargjöf
• Nýrækt skóga, landgræðslu, skjólbeltarækt og jólatrjáarækt, grisjun og fellingu trjáa og úrvinnslu viðarafurða
• Sjálfbærri nýtingu og vistfræði Íslands
• Helstu skaðvöldum á trjám og runnum og hentugum mótvægisaðgerðum
• Rekstri smáfyrirtækja
Inntökuskilyrði
Bóknám og verklegar æfingar fara fram við skólann en verknám fer fram úti í atvinnulífinu á verknámsstöðum sem skólinn þarf að samþykkja fyrirfram. Gert er ráð fyrir að umsækjandi hafi lokið 12 vikna reynslutíma við alhliða skógræktar- eða garðyrkjustörf auk hluta af verknámi áður en þeir hefja bóknám. Umsækjandi þarf að hafa lokið tveimur til fjórum önnum í framhaldsskóla. Auk íslensku (6e), dönsku (4e), ensku (4e) og stærðfræði (4e) er ætlast til að nemendur hafi lokið grunnáföngum í efnafræði (3e), líffræði (3e), viðskiptagreinum (5e) og tölvufræði (3e). Heimilt er að meta reynslu úr atvinnulífi til hluta fornáms á framhaldsskólastigi og er það skoðað hverju sinni. Umsókn um skólavist skulu fylgja prófskírteini frá framhaldsskóla, vottorð um verklegt nám og reynslutíma og ósk um samþykki verknámsstaðar.