Njarðvíkurskóli

Njarðvíkurskóli Njarðvíkurskóli er heildstæður grunnskóli með nemendur frá 1. – 10. bekk. Í tengslum við skólann eru tvær sérdeildir, Ösp og Björk.

Þriðjudaginn 29. september næstkomandi er starfsdagur í Njarðvíkurskóla samkvæmt skóladagatali.Á starfsdegi gefst starfs...
23/09/2026

Þriðjudaginn 29. september næstkomandi er starfsdagur í Njarðvíkurskóla samkvæmt skóladagatali.

Á starfsdegi gefst starfsfólki skólans tækifæri til að vinna að faglegu starfi, undirbúningi og þróun skólastarfsins. Allir nemendur eiga því frí þennan dag og verða jafnframt frístundaheimilin í skólanum og Ösp lokuð þennan dag.

Við minnum á að skólastarf hefst aftur samkvæmt stundaskrá miðvikudaginn 30. september.

Þriðjudaginn 29. september næstkomandi er starfsdagur í Njarðvíkurskóla samkvæmt skóladagatali. Á starfsdegi gefst starfsfólki skólans tækifæri til að v

Miðvikudaginn 9. september verður lokað fyrir heitt vatn í Ytri-Njarðvík frá kl. 04:00 vegna umfangsmikilla framkvæmda H...
08/09/2026

Miðvikudaginn 9. september verður lokað fyrir heitt vatn í Ytri-Njarðvík frá kl. 04:00 vegna umfangsmikilla framkvæmda HS Veitna og HS Orku. Gert er ráð fyrir að heitt vatn komist aftur á innan 12–24 klukkustunda en það getur verið mismunandi eftir svæðum hvenær vatnið skilar sér að fullu.

Lokunin hefur áhrif á skólastarf í Njarðvíkurskóla og viljum við vekja athygli á eftirfarandi breytingum þennan dag:

Hádegismatur
Til að einfalda framkvæmd hádegisverðar á meðan lokað er fyrir heita vatnið verður boðið upp á Júmbó pastabakka með kjúklingi frá Skólamat ásamt fjölbreyttu meðlæti af meðlætisbar með ávöxtum.

Íþrótta- og sundkennsla
Vegna lokunarinnar verður sturtuaðstaða ekki í boði að loknum íþróttatímum. Sundlaugin verður einnig lokuð og nemendahópar sem eiga að vera í sundi þennan dag verða þess í stað með íþróttakennara á útisvæði. Mikilvægt er að nemendur komi klæddir eftir veðri og tilbúnir til útiveru.

Að öðru leyti verður skólastarf með hefðbundnum hætti.

Íþróttadagur Njarðvíkurskóla var haldinn föstudaginn 4. september við frábærar aðstæður. Nemendur fóru á milli fjölbreyt...
07/09/2026

Íþróttadagur Njarðvíkurskóla var haldinn föstudaginn 4. september við frábærar aðstæður. Nemendur fóru á milli fjölbreyttra stöðva og tóku þátt í hinum ýmsu leikjum og þrautum sem reyndu á hreysti, snerpu, samvinnu og úthald sem voru skipulagðar af íþróttakennurum skólans.

Stöðvarnar voru bæði inni í skólanum, utandyra og í íþróttahúsinu. Góða veðrið setti svo sannarlega svip sinn á daginn og skapaði frábæra stemningu þegar nemendur kepptu, hvöttu hvert annað áfram og nutu dagsins saman.

Íþróttadagurinn tókst einstaklega vel og mikil gleði og jákvæðni einkenndi daginn. Að lokum stóð 10. ÍÞ uppi sem sigurvegari og fær því titilinn Íþróttabekkur Njarðvíkurskóla 2026.

Við þökkum nemendum og starfsfólki fyrir frábæran dag og fyrir að taka þátt af krafti og góðum anda.

Íþróttadagur Njarðvíkurskóla var haldinn föstudaginn 4. september við frábærar aðstæður. Nemendur fóru á milli fjölbreyttra stöðva og tóku þátt í hinum ýms

Ljósanótt var formlega sett í dag fimmtudaginn 3. september og var margt um að vera þegar nemendur og starfsfólk skólans...
03/09/2026

Ljósanótt var formlega sett í dag fimmtudaginn 3. september og var margt um að vera þegar nemendur og starfsfólk skólans komu saman til að fagna upphafi hátíðarinnar.

Dagurinn hófst í Njarðvíkurskóla með því að formaður og varaformaður nemendaráðs skólans, Rósa Kristín Jónsdóttir og Grétar Atli Sigurbjörnsson, drógu Ljósanæturfánann að húni við skólann.

Að því loknu héldu nemendur í 3., 7. og 10. bekk í skrúðgarðinn þar sem þeir komu saman með jafnöldrum sínum úr öllum grunnskólum Reykjanesbæjar, ásamt elsta árgangi leikskóla bæjarins.

Í skrúðgarðinum var boðið upp á fjölbreytta dagskrá. Bæjarstjóri flutti ávarp, Ljósanæturfáninn var dreginn að húni og Páll Óskar steig á svið og skemmti viðstöddum auk þess sem fleira skemmtilegt var á dagskrá.

Eftir hádegi hélt síðan nemendaráð skólans skemmtilegt Ljósanæturpartý þar sem allir nemendur skólans komu saman og dönsuðu undir stjórn þeirra fyrir framan skólann ásamt því að syngja og dansa kónga og náði röðin langt inn í skrúðgarðinn fyrir neðan skólann.

Auk þessarar dagskrár í dag 3. september hefur margt annað verið í gangi fyrr í vikunni. Meðal annars fengu allir nemendur í 8.-10. bekk heimsókn frá Samfélagslöggunni og fulltrúum í Fjörheimum þar sem þau ræddu saman um komandi daga í kringum Ljósanótt.

Við óskum öllum gleðilegrar Ljósanætur

Ljósanótt var formlega sett í dag fimmtudaginn 3. september og var margt um að vera þegar nemendur og starfsfólk skólans komu saman til að fagna upphafi há

Föstudaginn 4. september verður íþróttadagur í Njarðvíkurskóla. Dagurinn er skertur nemendadagur samkvæmt skóladagatali ...
02/09/2026

Föstudaginn 4. september verður íþróttadagur í Njarðvíkurskóla. Dagurinn er skertur nemendadagur samkvæmt skóladagatali og verða nemendur með sínum bekkjum og umsjónarkennurum.

Á dagskrá verða fjölbreyttar þrautir og leikir þar sem áhersla er lögð á hreyfingu, samvinnu og góða stemningu.

Skóladagurinn
Nemendur mæta kl. 9:55 og skóladegi lýkur kl. 13:15.

Frístundaheimili
Frístundaheimilin í Njarðvíkurskóla og Ösp verða opin fyrir skráða nemendur kl. 8:15–9:55 og kl. 13:15–16:15

Litir bekkja og hópa
Hver bekkur/hópur hefur sinn lit og hvetjum við nemendur til að mæta í fatnaði í sínum lit.
1. bekkur – Gulur
2. bekkur – Rauður
3. bekkur – Grænn
4. bekkur – Blár
5. bekkur – Bleikur
6. ARG – Fjólublár
6. BRV – Rauður
7. EG – Bleikur
7. BÖH – Blár
8. FSM – Appelsínugulur
8. KE – Brúnn
9. US – Svartur
9. ÞRH – Grár
10. MRF – Grænn
10. ÍP – Gulur
10. SSI – Hvítur

Treyjudagurinn 4. september — Við erum öll í sama liði
Á Treyjudeginum mun starfsfólk skólans klæðast íþróttatreyjum til að sýna börnum með krabbamein stuðning og samstöðu.

https://www.njardvikurskoli.is/is/frettir/ithrottadagur-4-september

Í Njarðvíkurskóla hefur Námfús tekið við af InfoMentor sem námsumsjónarkerfi skólans. Kerfið einfaldar aðgengi að upplýs...
24/08/2026

Í Njarðvíkurskóla hefur Námfús tekið við af InfoMentor sem námsumsjónarkerfi skólans. Kerfið einfaldar aðgengi að upplýsingum og veitir nemendum og forráðamönnum góða yfirsýn yfir skóladaginn, námið og námsframvinduna.

Allir forráðamenn munu fá sent lykilorð þriðjudaginn 25. ágúst til að skrá sig inn í Námfús.

Í Námfús geta nemendur nálgast helstu upplýsingar um námið sitt á einum stað. Þar má meðal annars finna:
- stundatöflu og verkefni
- mætingu og námsmat
- kennsluáætlanir og námsefni
- dagatal og viðburði
- upplýsingar sem tengjast daglegu skólastarfi

Markmiðið er að nemendur hafi skýra yfirsýn yfir það sem fram undan er og geti auðveldlega fylgst með námi sínu.

Námfús auðveldar forráðamönnum að fylgjast með skólagöngu barnsins og eiga samskipti við skólann. Þar má meðal annars nálgast:
- skilaboð frá skólanum og kennurum
- stundatöflu og upplýsingar um mætingu
- upplýsingar um nám og námsmat
- dagatal og viðburði
- upplýsingar um samtalsdaga
- aðrar upplýsingar sem tengjast skólastarfi barnsins

Með Námfús eru helstu upplýsingar um skóladaginn aðgengilegar á einum stað. Það auðveldar nemendum og forráðamönnum að fylgjast með því sem er að gerast í skólanum og dregur úr þörfinni fyrir að leita upplýsinga á mörgum stöðum.

Námfús er aðgengilegt á www.namfus.is og í Námfús-appinu fyrir snjalltæki. Appið má nálgast í App Store og Google Play með því að leita að Námfús.

www.namfus.is

https://www.njardvikurskoli.is/is/frettir/namfus-nytt-namsumsjonarkerfi-skolans

Skólasetning Njarðvíkurskóla fer fram þriðjudaginn 25. ágúst. Nemendur mæta ásamt forráðamönnum í heimastofur þar sem um...
18/08/2026

Skólasetning Njarðvíkurskóla fer fram þriðjudaginn 25. ágúst. Nemendur mæta ásamt forráðamönnum í heimastofur þar sem umsjónarkennarar verða með skólakynningu. Á skólakynningum verður farið yfir ýmist atriði sem tengist skólastarfi í Njarðvíkurskóla og yfir helstu áherslur í hverjum og einum árgangi. Að kynningum loknum verða nemendur áfram í skólanum með umsjónarkennurum (sjá tímasetningar hér að neðan). Þar verður lögð áhersla á hópefli, tengslamyndun og að styrkja sambönd nemenda við umsjónarkennara og stuðningsfulltrúa. Nemendur í 1.-7. bekk eru hvattir til að taka með sér nesti.

Frístundaheimili í Njarðvíkurskóla og Ösp verða opin frá 10:35 til kl. 16:15 fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir.

Kennsla hefst samkvæmt stundatöflu hjá öllum nemendum miðvikudaginn 26. ágúst kl. 8:15.

Tímasetningar á skólasetningu:

- Nemendur í 1.-4. bekk mæta kl. 8:15 og verða í skólanum til kl. 10:35.
- Nemendur í 5.-7. bekk mæta kl. 8:55 og verða í skólanum til kl. 11:15.
- Nemendur í 8.-10. bekk mæta kl. 9:55 og verða í skólanum til kl. 11:55.
- Nemendur í Ösp mæta á mismunandi tímasetningum eftir samtal við forráðamenn.
- Nemendur í Björk mæta á mismunandi tímasetningum eftir samtal við forráðamenn.

Skólasetning Njarðvíkurskóla fer fram þriðjudaginn 25. ágúst. Nemendur mæta ásamt forráðamönnum í heimastofur þar sem umsjónarkennarar verða með skólakynni

Nú líður senn að því að nemendur grunnskóla Reykjanesbæjar hefji störf. Þriðjudaginn 25. ágúst eru skólasetningar en nán...
17/08/2026

Nú líður senn að því að nemendur grunnskóla Reykjanesbæjar hefji störf. Þriðjudaginn 25. ágúst eru skólasetningar en nánari upplýsingar fyrir hvern skóla eru birtar á heimasíðum þeirra. 301 fyrstu bekkingar eru nú að hefja grunnskólanám og taka sín fyrstu skref inn í grunnskólana okkar. 235 af þeim hafa mætt í sumarfrístund og fengið tækifæri til þess að kynnast nýjum skólafélögum og aðlagast nýjum aðstæðum í skólanum sínum.

Þegar þessi frétt er skrifuð eru nemendur í grunnskólunum okkar 2757 sem er sami fjöldi og var í skólabyrjun fyrir ári síðan.

Hægt er að nálgast skóladagatal hvers skóla inn á heimasíðum þeirra. Vert er að benda á að nokkra þætti sem eru sameiginlegir í öllum skólum:

3. september – Setning Ljósanætur
23. og 26. október – Vetrarfrí
18. desember – Jólahátíð og jólafrí nemenda hefst að henni lokinni
11. og 12. febrúar – Vetrarfrí
30. apríl – Baun hefst
10. júní – Skólaslit

Nýtt námsumsjónarkerfi, Námfús, verður í Akurskóla, Háaleitisskóla, Heiðarskóla, Myllubakkaskóla, Njarðvíkurskóla og Stapaskóla í upphafi skólaárs. Holtaskóli styðst áfram við Mentor kerfið að sinni. Markmiðið með innleiðingu á Námfús er að nemendur, kennarar og foreldrar fái notendavænt viðmót sem gefi betri yfirsýn yfir nám, verkefni og framvindu nemenda. Kerfið styður einnig við ýmsa þætti í starfi skólanna ásamt því að fylgja þróun og nýsköpun í skólastarfinu. Innleiðingin mun krefjast þolinmæði frá skólasamfélaginu þar sem við erum öll að læra á það og þökkum við fyrir hana. Skólarnir munu veita nánari upplýsingar um kerfið og framvinduna í innleiðingu þess.

Flestum nemendum og foreldrum finnst gott að komast aftur í sínar venjur hausts og vetrar þó erfitt geti reynst að kveðja sumarið. Framundan eru arkandi börn um allan bæ með skólatöskur á bakinu og því eru ökumenn beðnir um að sýna sérstaka aðgát í nágrenni skóla.

Frétt skrifuð af menntasviði Reykjanesbæjar

Nú líður senn að því að nemendur grunnskóla Reykjanesbæjar hefji störf. Þriðjudaginn 25. ágúst eru skólasetningar en nánari upplýsingar fyrir hvern skóla e

Vilhjálmur Ottó Lúðvíksson - MinningÍ dag kveðjum við Vilhjálm Ottó Lúðvíksson, nemanda við Njarðvíkurskóla, sem var brá...
24/07/2026

Vilhjálmur Ottó Lúðvíksson - Minning

Í dag kveðjum við Vilhjálm Ottó Lúðvíksson, nemanda við Njarðvíkurskóla, sem var bráðkvaddur 1. júlí 2026. Vilhjálmur kom til okkar í upphafi 6. bekkjar og tilheyrði stórum hópi nemenda í 9. bekk sem kvaddi kæran bekkjarfélaga og vin í minningarstund fyrr í júlí.

Vilhjálmur Ottó var hæglátur nemandi sem kom ávallt fram af virðingu, ábyrgð og vinsemd í sínum verkum og framkomu í skólastarfinu. Á þessum árum eignaðist hann góðan og traustan vinahóp sem á erfitt með að sætta sig við að svo ungur drengur hafi fallið frá.

Hugur okkar allra er hjá fjölskyldu Vilhjálms og vinum og sendum við þeim hlýjar kveðjur og styrk á þessum erfiðu tímum. Minningin um góðan dreng mun lifa áfram með okkur og við varðveitum hana með þakklæti og virðingu.

Útför Vilhjálms fer fram í Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag, föstudaginn 24. júlí, kl. 13:00.

Opnaður hefur verið söfnunarreikningur. Söfnunarféð verður meðal annars nýtt til að kaupa krans með kveðju frá samnemendum Vilhjálms. Ef fjármunir verða umfram þann kostnað verður afganginum ráðstafað í samráði við foreldra Vilhjálms til minningar um hann eða í þágu fjölskyldunnar.

Frjáls framlög eru vel þegin. Reikningsupplýsingar eru:
- Reikningur: 0511-14-128131
- Kennitala: 160775-4679
Skoðunarmaður reikningsins er Helga Kolbeinsdóttir prestur í Njarðvíkurkirkju og gjaldkeri söfnunarinnar er Elín Kristjánsdóttir.
Söfnunarreikningurinn verður opinn næstu vikur og eru öll frjáls framlög vel þegin.

https://www.njardvikurskoli.is/is/frettir/vilhjalmur-otto-ludviksson-minning

Sjálfsmatsskýrsla Njarðvíkurskóla fyrir skólaárið 2025–2026 hefur verið birt og er aðgengileg á heimasíðu skólans.Skýrsl...
24/06/2026

Sjálfsmatsskýrsla Njarðvíkurskóla fyrir skólaárið 2025–2026 hefur verið birt og er aðgengileg á heimasíðu skólans.

Skýrslan gegnir lykilhlutverki í að tryggja gæði skólastarfsins og er mikilvægur þáttur í stöðugri þróun og umbótum innan skólans. Hún dregur fram helstu niðurstöður innra mats sem byggir á fjölbreyttum gögnum frá nemendum, forráðamönnum og starfsfólki.

Unnið er út frá stefnu Njarðvíkurskóla og menntastefnu Reykjanesbæjar og eru meginmarkmið skýrslunnar að greina styrkleika skólans, varpa ljósi á umbótatækifæri og styðja við áframhaldandi faglegt starf og framþróun.

Sjálfsmatsskýrsla Njarðvíkurskóla fyrir skólaárið 2025–2026 hefur verið birt og er aðgengileg á heimasíðu skólans. Skýrslan gegnir lykilhlutverki í að t

Address

V/Brekkustíg
Njarðvík
260

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Njarðvíkurskóli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Share