05/12/2016
Heilsuleikskólinn Háaleiti í Reykjanesbæ vinnur nú að þróunarverkefninu “What´s your move?” Háaleiti stýrir verkefninu, sem styrkt er af Erasmus+, en það er unnið í samstarfi við Læringverkstedet Skogmo í Jessheim í Noregi og Pallipõnn í Tallinn í Eistlandi.
Verkefnið er samstarfsverkefni um innleiðingu á YAP (Young Athlete Program) aðferðinni, en Háaleiti hefur unnið með YAP-ið í leikskólanum síðan haustið 2015 og er fyrsti leikskólinn á Íslandi sem notar YAP. YAP var upphaflega hannað af Special Olympics samtökunum til að efla alhliða þroska 2-7 ára barna með frávik í gegnum íþróttir og leik, en efnið er auðvelt að nota með öllum börnum leikskólans.
Heilsuleikskólinn Háaleiti fékk á dögunum Erasmus+ styrkveitingu fyrir samstarfsverkefnið “what´s your moove?” Verkefnið er í samstarfi við Læringverkstedet Skogmo í Jessheim Noregi og Pallipõnn í Tallin Eistlandi, en Háaleiti stýrir verkefninu. Verkefnið er samstarfsverkefni um innleiðingu á YAP (...