19/12/2024
Bláskógaskóli fékk sendingu frá Tékklandi, dyggðarkorta jóladagatal. Erum búin að vera að draga á hverjum degi.
18. desember fengum við þrautseigju og var verkefni dagsins að búa til pappírskeðju til að hengja á jólatréð, bæta við hana á hverjum degi fram að jólum. Verkefni dagsins hjá okkur var að vera úti, útiskóladagur, ganga í hús með jólakveðjur til allra í þorpinu og enda svo á því að fara að renna okkur á sleða. Nemendur sýndu þrautseigju þegar þau gengu um þorpið og drógu sleðana sína með sér í köldu en fallegu veðri.
09/10/2024
Nemendur unnu verkefni tengt barnasáttmálanum í dag. Eftir verkefnið fengu allir gimstein sem þeir lögðu á þá dyggð sem þeim fannst þau þurfa að nota mest í verkefnavinnunni. Góð umræðustund í lok hópavinnu eða dags.
25/09/2024
Við áttum yndislegan útidag í morgun. Fórum að taka upp hverabrauð sem smiðjuhóparnir settu niður í gær og fórum í steinabingó. Fundum okkur svo góðan stað til að setjast niður spjalla og fá okkur kakó. Allir áttu að finna sér eina dygð sem tengdist verkefnum morgunsins.
03/09/2024
Afmælishringurinn með dyggðarkortunum eflir góða samvinnu milli heimila og skóla. Dýrmæt stund sem við eigum með nemendum okkar og rifjum upp skemmtilega viðburði sem þau hafa upplifað. Nefnum einn viðburð fyrir hvert ár og þar kynnumst við þeim nánar bæði kennarar og nemendur. Samnemendur velja dyggð sem þeim finnst passa við afmælisbarn dagsins.
13/03/2023
Við héldum fyrsta formlega námskeiðið í dyggðafræðslu á Laugarvatni þann 11. mars síðastliðinn. 13 kennarar úr leik og grunnskólum kynntust Fræðslu til dyggða og hugtökum um dyggðamenntun, sumir í fyrsta skipti og aðrir að bæta við þekkingu sína og fá nýjar og spennandi hugmyndir að vinnu með dyggðirnar. Kennarar frá Tékklandi tóku þátt og kynntu sína vinnu þökk sé Erasmus verkefninu. Það var mikill fengur fyrir námskeiðið að fá fyrirlestra frá þeim því þessir kennarar hafa mikla reynslu í notkun dyggðaspjaldanna og deildu þær þeirri þekkingu og leiðum með þeim sem námskeiðið sóttu. Gaman er að geta þess að námskeiðið endurspeglaði á vissan hátt margbreytileikan í íslenskum skólum og íslensku þjóðfélagi og voru upprunalönd þátttakenda mörg, Ísland, Ungverjaland, Þýskaland og Tékkland. Við stefnum að því að halda ótrauð áfram að kynna þetta efni fyrir þeim sem vinna með börnum og með þessu móti fær dyggðakennslan á íslandi byr undir báða vængi og ávallt bætist í kennarahópinn sem nota Fræðslu til dyggða.
We held the first formal lecture on virtue education at Laugarvatn on March 11. 13 teachers from preschools and primary schools got to know Fræðslu til dyggða and the concepts of virtue education. Some for the first time and others to improve their knowledge and get new and exciting ideas for working with the virtues. Teachers from the Czech Republic participated and presented their work thanks to the Erasmus project. It was a great privilege for the course to receive lectures from them because these teachers have a lot of experience in using the virtue cards and shared their knowledge and ways with those who attended the course. It is nice to note that the course reflected in a way the diversity of Icelandic schools and Icelandic society and that the countries of origin of the participants were many, Iceland, Hungary, Germany, and the Czech Republic. We aim to continue to spread the word of Fræðsla til dyggða in Iceland, this train is just starting it´s journey.
09/03/2023
Þriðji tékkneski kennarinn sem mun kynna verk sín með dyggðarspjöldum er Kateřina Přibylová. Hér eru nokkur orð hennar:
Ég heiti Kateřina Přibylová og er frá Tékklandi. Núna er ég að kenna í Montessori grunnskóla þar sem ég ber ábyrgð á þýskukennslu og er einnig aðstoðarkennari og kennari í ensku og myndlistarkennslu í grunnskóla. Ég hef kennt í 4 ár. Í 2 ár hef ég notað dyggðaspjöld til að hjálpa nemendum mínum að þróa með sér góðan karakter og gildi. Þegar ég er ekki að kenna finnst mér gaman að dansa salsa eða spila á fiðlu. Að ferðast er önnur ástríða mín, þar sem ég elska að skoða nýja staði og upplifa mismunandi menningu.
--------------------------------------------------------------------------
Third teacher which will present her work with a virtue cards is Kateřina Přibylová and here is a few words from her:
My name is Kateřina Přibylová and I am from the Czech Republic. I am currently teaching at a Montessori lower secondary school, where I am responsible for teaching German and also I am a teaching assistant and teacher for English and art lessons at primary school. I've been teaching for 4 years. For 2 years, I've been using virtues cards to help my students to develop good character and values. When I'm not teaching, I enjoy dancing salsa or playing violin. Travelling is another passion of mine, as I love exploring new places and experiencing different cultures.
07/03/2023
Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig á námskeiðið sem verður á laugardaginn
Námskeið, Fræðsla til dyggða 11. mars | Bláskógaskóli
05/03/2023
Námskeið í dyggðakennslu 11.3. Laugarvatn
Annar kennari sem mun kynna verk sín með dyggðarspjöldum er Pavla Tichá frá samfélagsskólanum í Prag
Ég hef 16 ára reynslu af kennslufræði við 3 mismunandi skólagerðir. Nú á dögum er ég
leiðtogi lítilla samfélagsskóla í Prag og ég er líka grunnskólakennari (1. – 5.).
bekk) þar. Ég hef áhuga á útinámi og að nota aðrar aðferðir.
Ég hef gaman af náttúrunni, hundum, tónlist og bókum, mér finnst gaman að ferðast til skandinavískra landa. ég
vanalega unnið með dyggðaspjöld á morgunsamfélagsfundum, verkefnadögum og ég held
að þau séu mjög gagnleg fyrir námsmatsferli.
----------------------------------------------------------------------
Another teacher which will present their work with virtue cards is Pavla Tichá from community school in Prague
Another teacher which will present their work with virtue cards is Pavla Tichá from community school in Prague.
I have 16 years of experience in pedagogy at 3 different types of schools. Nowadays I am the
leader of small community school in Prague and I am also primary school teacher (1st – 5th
grade) there. I am interested in outdoor learning and using alternative methods.
I am fun of nature, dogs, music and books, I like travelling to Scandinavian countries. I
usually work with virtue cards during morning community meetings, project days and I think
that they are very useful for evaluation learning process.