21/09/2026
FRÆÐSLUDAGUR REIÐMANNSINS 2026
31. október | Grunnskólinn í Borgarnesi & Miðfossar
Fræðsludagur Reiðmannsins er ætlaður öllum nemendum Reiðmannsins I–III ásamt nemendum í frumtamningarnámi Reiðmannsins.
Á fræðsludeginum verður boðið upp á fjölbreytta og fróðlega dagskrá þar sem reyndir sérfræðingar á sviði reiðmennsku, þjálfunar, heilbrigðis og velferðar hesta miðla þekkingu sinni og reynslu.
Fjallað verður um viðfangsefni sem nýtast nemendum í námi þeirra og áframhaldandi þjálfun, með áherslu á aukin skilning, fagleg vinnubrögð og betra samspil hests og knapa.
Við kynnum með ánægju fyrirlesara fræðsludagsins.
________________________________________
METTE MOE MANNSETH
Reiðmennska, þjálfun og samspil hests og knapa
Hvernig getum við byggt upp þjálfun hestsins þannig að hún leiði til jafnvægis, léttleika og betra samspils milli hests og knapa?
Mette Moe Mannseth er tamningarmeistari og yfirreiðkennari við Háskólann á Hólum og var fyrsta kona á Íslandi til að ljúka meistaraprófi í reiðmennsku.
Hún hefur áratuga reynslu af kennslu, þjálfun og ræktun íslenska hestsins og hefur náð framúrskarandi árangri bæði á keppnis- og kynbótabrautinni.
Í reiðmennsku sinni leggur Mette áherslu á vandaða grunnþjálfun, jafnvægi, léttleika og skýrt samspil knapa og hests. Hún leggur ríka áherslu á að sjá einstaklinginn í hverjum hesti og byggja þjálfunina upp af skýrleika, þolinmæði og virðingu fyrir forsendum hans.
Á fræðsludegi Reiðmannsins mun Mette miðla þekkingu sinni og reynslu af þjálfun og reiðmennsku og sýna hvernig hægt er að þróa betra samspil við hestinn. Fyrirlestur og sýnikennsla Mettu mun vera fyrir alla nemendur reiðmannsins.
„Góð reiðmennska byggist á skilningi, tilfinningu og virðingu fyrir hestinum."
________________________________________
DR. SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR
Heilsa og velferð íslenska hestsins
Hvernig getum við sem hestamenn lært að lesa hestinn betur, fyrirbyggja vandamál og bregðast rétt við þegar eitthvað er að?
Dr. Sigríður Björnsdóttir er prófessor í hestafræðum við Landbúnaðarháskóla Íslands og sérfræðingur á sviði heilbrigðis og velferðar íslenska hestsins.
Hún er dýralæknir með yfir 30 ára reynslu af hrossum og hefur meðal annars sérhæft sig í helti, slitgigt, smitsjúkdómum og velferð hrossa. Sigríður lauk doktorsnámi á sviði myndgreiningar og faraldsfræði og hefur birt hátt í 40 ritrýndar vísindagreinar.
Í starfi sínu leggur hún áherslu á að tengja vísindalega þekkingu við daglegt hestahald, umhirðu og þjálfun, þannig að þekkingin nýtist hestamönnum í raunverulegum aðstæðum.
Á fræðsludegi Reiðmannsins mun Sigríður fjalla um heilsu og velferð íslenska hestsins fyrir alla nemendur reiðmannsins.
„Betri þekking leiðir til heilbrigðari hesta og betri hestamennsku."„
________________________________________
HEIÐRÚN HALLDÓRSDÓTTIR
Pilates fyrir knapa – líkamsvitund, jafnvægi og skýrari ábendingar
Hefur þú einhvern tímann velt því fyrir þér af hverju hesturinn bregst ekki alltaf við ábendingunni þinni? Eða fengið leiðbeiningar eins og „slakaðu á“, „notaðu fótinn“ eða „réttu úr þér“ og hugsað: En hvernig geri ég það í raun?
Heiðrún Halldórsdóttir hefur sérhæft sig í Pilates og ásetu fyrir knapa. Hún kynntist Pilates í námi í Kaliforníu árið 2006 og lauk námi sem Pilates and Dance Conditioning Instructor árið 2009.
Árið 2012 lauk hún námi sem fullnuma Pilateskennari frá Romana’s Pilates, þar sem hún lærði undir leiðsögn Janice Dulak, frumkvöðuls Pilates for Dressage. Árið 2019 lauk Heiðrún fullum réttindum í Pilates fyrir knapa.
Á fræðsludegi Reiðmannsins mun Heiðrún kynna fyrir 1 árs nemendum reiðmannsins hvernig aukin líkamsvitund, styrkur, jafnvægi og liðleiki geta hjálpað knapanum að verða skýrari og nákvæmari í samskiptum við hestinn.
Sérstök áhersla verður lögð á ósýnilegar ábendingar – litlar breytingar í líkama knapans sem hesturinn finnur þótt þær sjáist lítið utan frá.
Þátttakendur fá jafnframt tækifæri til að spyrja Heiðrúnu um eigin áskoranir í ásetu, svo sem hvers vegna hælar lyftast, hvers vegna knapinn hallar fram eða aftur og hvernig hægt er að verða stöðugri og slaka betur á í líkamanum.
Markmiðið er að verða sterkari, liðugri og meðvitaðri knapi – og ná þannig betra og skýrara samspili við hestinn.
„Betri líkamsvitund – skýrari ábendingar – betra samspil við hestinn.“
________________________________________
ÞÓRARINN RAGNARSSON
Þórarinn Ragnarsson er landsliðsknapi, tamningamaður og reiðkennari, menntaður frá Háskólanum á Hólum. Starfar við tamningar, þjálfun og reiðkennslu í Vesturkoti.
Þórarinn hefur náð góðum árangri í gæðinga-, íþrótta- og kynbótabrautinni. Hann sigraði meðal annars A-flokk gæðinga á Landsmóti 2014 með Spuna frá Vesturkoti og varð Íslandsmeistari í fimmgangi með Spuna árið 2017. Árið 2025 var hann valinn í íslenska landsliðið með Herkúles frá Vesturkoti.
Í þjálfun sinni leggur Þórarinn ríka áherslu á vandaða grunnvinnu, traust og gleði, þar sem hesturinn fær að byggjast markvisst upp bæði líkamlega og andlega.
Þórarinn hefur mikla reynslu af tamningum og þjálfun íslenska hestsins og leggur áherslu á vandaða grunnvinnu, traust og gleði í þjálfuninni.
Á Fræðsludegi Reiðmannsins mun Þórarinn miðla af þekkingu sinni og reynslu þar sem reiðmennska og þjálfun íslenska hestsins verða í brennidepli. Þórarinn mun flytja fyrirlestur fyrir þriðja árs nemendur reiðmannsins og sýnikennslu ásamt Mette fyrir alla nemendur reiðmannsins.
„Góð tamning byggist á trausti, skýrleika og gleði í verkefninu.“
________________________________________
SIGURÐUR TORFI SIGURÐSSON
Hófhirða, járningar og heilbrigð hreyfing
Hvað segir hófurinn okkur um heilbrigði, hreyfingu og endingu hestsins – og hvernig getum við með réttri hófhirðu fyrirbyggt vandamál áður en þau koma upp?
Sigurður Torfi Sigurðsson er járningameistari og ráðunautur hjá RML með áratuga reynslu af járningum, kennslu og ráðgjöf.
Hann hefur sérhæft sig í hófhirðu íslenska hestsins og rannsakað hófa íslenskra reið- og kynbótahrossa.
Sigurður Torfi hefur víðtæka þekkingu á því hvernig járningar, hófstaða og jafnvægi hófsins geta haft áhrif á heilbrigði, ganglag og endingu hestsins.
Í starfi sínu leggur hann áherslu á að horfa á þarfir hvers hests fyrir sig, læra að lesa hófinn, þekkja merki um ójafnvægi og vinna markvisst að heilbrigðri hreyfingu.
Á fræðsludegi Reiðmannsins mun Sigurður Torfi miðla þekkingu sinni til nemenda á öðru ári reiðmannsins á hófhirðu, járningum og því hvernig rétt umhirða hófa getur stutt við heilbrigði og endingu reiðhestsins.
„Heilbrigður hófur er grunnurinn að heilbrigðum og endingargóðum reiðhesti."