12/05/2026
Hvaða fugla finnið þið í kringum skólann?🐦
Þeir eru margir mættir og við heyrum í þeim yfir daginn. Það er svo vinalegt 🦆🐦🐦⬛
Nú er tilvalið að skella sér út með nemendur og prófa Fuglabingó sem finnst á Gárusíðunni! Verkefnið er eftir Ragnheiði Eyjólfsdóttur, verkefnastjóra hjá Fisktækniskólanum.
Verkefnið er einfalt, skemmtilegt og hentar vel fyrir útikennslu í nærumhverfinu. Nemendur æfa sig í að fylgjast með, hlusta, greina fugla og ræða það sem þeir sjá í náttúrunni.
Það þarf ekki að fara langt — stundum leynist fuglalífið bara rétt fyrir utan skólann. 🐦🌿
Þið finnið Fuglabingóið hér:
https://www.garurreykjanes.net/verkefni/fuglabing%C3%B3
Gönguferð þar sem skilningarvitin eru virkjuð til að heyra og sjá algenga fugla.