Leikskólinn Tjarnarsel

Leikskólinn Tjarnarsel Áhersluþættir Tjarnarsels eru vettvangsferðir, mál og læsishvetjandi umhverfi, umhverfismennt og lýð

Á morgun 10. september er alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga. Samfélagsverkefnið Gulur september, hvetur okkur til að...
09/09/2026

Á morgun 10. september er alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga. Samfélagsverkefnið Gulur september, hvetur okkur til að staldra við og huga að eigin líðan og líðan þeirra sem eru í kringum okkur. Markmið verkefnisins er að vekja athygli á mikilvægi geðræktar, samkenndar og umhyggju í daglegu lífi.

Í tilefni dagsins hvetjum við börn og kennara til að mæta í einhverju gulu eða bera eitthvað gult á morgun 🍋

Látum gulan lit minna okkur á hlýju, vináttu og að koma fallega fram við okkur sjálf og aðra 💛

24/06/2026

Í júníbyrjun var haldinn útivinnudagur í Tjarnarseli. Við erum svo kampakát með þennan dag að okkur er (næstum) orða vant 😊

Í fyrsta skipti eftir að við opnuðum deildina okkar, Tjarnarlund á Skólavegi 1, vorum við með vinnudag á tveimur stöðum.
Unnið var hörðum höndum að því að snyrta, laga, smíða, mála og betrumbæta fallegu námsgarðana okkar 🌼

Að lokinni vinnu sameinuðumst við öll í garðinum á Tjarnargötunni þar sem við borðuðum saman grillaðar pylsur og héldum áfram að njóta samverunnar.

Á þennan magnaða dag mættu 251 sjálfboðaliði auk allra kennara skólans!!! Þessi kraftmikli hópur saman stóð af börnum, kennurum, foreldrum, systkinum, ömmum og öfum og nokkrum mökum kennaranna.

Afköstin af deginum eru stórkostleg. Áþreifanlegasti ávinningurinn birtist í aukinni leikgleði barnanna í görðunum og fegurðinni sem rannsóknir á sviði umhverfissálfræði sýna að hefur mjög jákvæð áhrif á andlega líðan manneskjunnar 🤸

Að auki er ávinningurinn mikill fyrir sveitarfélagið, þar sem svo margar vinnandi hendur skila sér í bættum aðstæðum sem nýtast börnunum okkar daglega.

Við erum ótrúlega þakklát fyrir alla þá sem lögðu okkur lið – án ykkar væri þetta ekki mögulegt. Samheldnin, gleðin og krafturinn sem einkenndi daginn er ómetanlegur 💛

Takk kærlega fyrir okkur!

SUMARHÁTÍÐ ☀️Á morgun (föstudag) ætlum við að halda sumarhátíð fyrir börn og kennara. Hátíðin byrjar klukkan 10 með syng...
18/06/2026

SUMARHÁTÍÐ ☀️

Á morgun (föstudag) ætlum við að halda sumarhátíð fyrir börn og kennara. Hátíðin byrjar klukkan 10 með syngjandi skrúðgöngu um nærumhverfið og svo verða ýmsir leikir og fleira skemmtilegt í garðinum á Tjarnargötunni.

Í hádegi grillum við svo þjóðarrétt Íslendinga 🌭 og njótum samverunnar. Allir sem vilja mega koma í búningum 🎭

Einnig bendum við á að hafin er sölusýning foreldrafélagsins á listaverkum barnanna. Verkið kostar 1.000 og ef foreldrar eru svo ríkir að eiga 2 börn í skólanum greiðið þið eingöngu 1.500 kr. fyrir bæði verkin - það er gjöf en ekki gjald 🙂

Sjáumst í sumarskapi á morgun 🌼

Jiii dúdda mía!Haldiði að það sé ekki bara að líða að skemmtilegasta degi ársins! Næsta fimmtudag (4. júní) verður útivi...
28/05/2026

Jiii dúdda mía!

Haldiði að það sé ekki bara að líða að skemmtilegasta degi ársins! Næsta fimmtudag (4. júní) verður útivinnudagur í Tjarnarseli 🎉

Nú leitum við til ykkar kæru foreldrar um aðstoð við að bæta, lagfæra og snyrta fallegu ævintýragarðana okkar. Í fyrsta skipti ætlum við nú að vera með vinnudaginn líka á Skólaveginum þar sem 5. deildin okkar Tjarnarlundur er. Foreldrar sem eiga börn þar mæta þangað og þau ykkar sem eigið börn á deildunum á Tjarnargötunni mæta þar.
Að lokinni vinnunni ætlum við öll að sameinast í garðinum á Tjarnargötunni og borða saman þjóðarréttinn 🌭

Þennan dag þarf því engin í tjarnarselsfjölskyldunni að huga að kvöldmat - jibbý kóla! Því allt duglega vinnufólkið sem mætir á útivinnudaginn snæðir saman grillaðar pylsur.

Það er fátt betra en að sitja úti með góðu fólki, í skítugum vinnufötum og borða grillaða pullu - það er bara þannig!

Skráning er hafinn við innganga í skólann - svo mikil tilhlökkun er orðin í skólanum að við getum varla beðið 😁

Sjáumst hress og kát í vinnugallanum næsta fimmtudag 😍

Hæ, hó öll sömul ☀️Við biðjum ykkur að setja sólarvörn á börnin ykkar á morgnana þegar von er á sólríkum degi eins og í ...
20/05/2026

Hæ, hó öll sömul ☀️

Við biðjum ykkur að setja sólarvörn á börnin ykkar á morgnana þegar von er á sólríkum degi eins og í dag. Við munum svo bera aftur á þau þegar líður á daginn.

Ekki viljum við að þau endi eins og Sólbjörn Logi 🔥 vinur okkar sem gleymdi að smyrja á sig einn morguninn. Blessaður maðurinn! 🙃

Njótið dagsins 😎

17/04/2026

Sumarið er tíminn 🎶
Það er bongóblíða í Sunny Kef - eins og flesta daga ☀️
Leikurinn blómstrar og lundin er létt.

Góða helgi öll sömul 🍎

Út er komin ný skólanámskrá Tjarnarsels sem gildir frá árinu 2026-2029 ✨Skólanámskrá Tjarnarsels byggir á grunni Aðalnám...
27/03/2026

Út er komin ný skólanámskrá Tjarnarsels sem gildir frá árinu 2026-2029 ✨

Skólanámskrá Tjarnarsels byggir á grunni Aðalnámskrár leikskóla frá árinu 2011 og breytingum á henni frá árinu 2023.

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, stefnuáherslur Reykjanesbæjar Í krafti fjölbreytileikans og Menntastefna Reykjanesbæjar liggja einnig til grundvallar.

Í heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna kemur fram að börnin séu mikilvægust og um það snýst skólastarfið í Tjarnarseli líkt og í öðrum skólum bæjarfélagsins.

Hægt er að nálgast námskrána á vef Reykjanesbæjar, reykjanesbaer.is - leikskólinn Tjarnarsel.

Gleðilega páska 🏵️

Kæru foreldrar. Við minnum á öskudaginn á morgun MIÐVIKUDAG. Þetta er allra fjörugasti dagur ársins í leikskólanum og fá...
17/02/2026

Kæru foreldrar.

Við minnum á öskudaginn á morgun MIÐVIKUDAG.
Þetta er allra fjörugasti dagur ársins í leikskólanum og fátt sem toppar hann 😁

Við hvetjum ykkur til að nýta það sem er til heima sem búninga. Það er alls ekki nauðsynlegt að hlaupa til og kaupa nýjan búning á hverju ári, oft er hægt að fá eitthvað lánað eða nýta frá eldri systkinum. En að sjálfsögðu er þetta í ykkar höndum 🥰

Sjáumst í öskudagsstuði á morgun 🥳

Til hamingju með Dag leikskólans öll sömul 🎉🎈
06/02/2026

Til hamingju með Dag leikskólans öll sömul 🎉🎈

Barnabækur eru gullnáma orðaforða, flókinnar málnotkunar og nýrrar þekkingar Innihaldsríkar sögustundir eru gulls ígildi þegar kemur að því að efla mál og læsisþroska leikskólabarna. Samspil margra þroskaþátta styrkist við það að hlusta á vandaðar og vel lesnar sögur þ...

Kæru uppalendur.Á morgun (föstudag) höldum við upp á Dag leikskólans, sem er 6. febrúar ár hvert.Þá ætlum við heldur bet...
05/02/2026

Kæru uppalendur.

Á morgun (föstudag) höldum við upp á Dag leikskólans, sem er 6. febrúar ár hvert.

Þá ætlum við heldur betur að gera okkur dagamun. Við munum hlusta á skemmtilegar sögur í öllum krókum og kimum skólans og baða okkur upp úr bóklestri 📚 Því hann hressir, bætir og kætir!

Allir nemendur og kennara sem langar til, eru hvattir til að koma í náttfötum. Bangsar og vasaljós eru líka velkomnir fylgihlutir á þessum sprellfjöruga degi 🧸🔦

Sjáumst úfin og afslöppuð á fjörugum föstudegi 😎

Address

Tjarnargata 12
Keflavík
230

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Leikskólinn Tjarnarsel posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Leikskólinn Tjarnarsel:

Shortcuts

Share

Category