12/01/2020
„Á netinu þurfum við að hugsa um okkur sem vörumerki. Í grunninn snúast vörumerki um allar þær hugmyndir sem fólk hefur um okkur en vörumerki eru eingöngu til í huganum. Á samfélagsmiðlum getum við auðveldlega fylgst með fólki og þannig, meðvitað eða ómeðvitað, myndað okkur skoðun á því. Það sem fólk sér okkur skrifa og gera hefur mikil áhrif á hugmyndir fólks um okkur. Við þurfum því að hafa í huga að eitthvað sem við gerum eða segjum með nánum vinum eða fjölskyldu á stundum ekkert erindi á netið, frekar en á kaffistofunni í vinnunni eða á öðrum opinberum stað. Þegar við erum að selja þjónustu eða sækja um vinnu eru netmiðlar ein af leiðunum sem mögulegir mótaðilar styðjast við til að kynna sér okkur. Það getur því haft mikil áhrif á tækifæri okkar á vinnumarkaði að passa vel upp á það hvernig við birtumst öðrum þar,“ segir Guðmundur Arnar.
Guðmundur Arnar Guðmundsson, markaðsráðgjafi og stundakennari við Háskólann í Reykjavík, er framkvæmdastjóri Markaðsakademíunnar. Hann heldur fjölbreytt námskeið sem tengjast hinum stafræna heimi.