05/01/2016
Hollráð dagsins er í boði Telmu (fitubrennsla.is).
En þessu er ég algjörlega sammála, vatn er besti kostur sem þú getur valið þér og ætti alltaf að vera fyrsta val.
Að vera alltaf með vatn í brúsa við hendina hvetur þig til að drekka meira vatn og það hefur sannað sig að það virkar !
Ég skora á þig að drekka 2 lítra af vatni á dag, fyrir utan það sem þú drekkur með mat, í eina viku og þá verður þetta komið í rútínuna hjá þér. Ef þú hefur verið að eiga við mikla þreytu eða höfuðverk þá kemur það til með að minnka.
Fyrir þá sem sitja á skólabekk meiri hluta dags er mjög mikilvægt að drekka vel af vatni. Ungt fólk í dag drekkur upp til hópa ekki nóg af vatni og er því mjög hvetjandi að vera með flottar og góðar flöskur fyrir vatnið.
Hollráð dagsins.
Drekktu vatn á hverjum degi.
Líkaminn okkar er að minnsta kosti 60% vatn og allt að 85%.
Vatn er undirstaða alls lífs á jörðinni.
Án hreins vatns getum við ekki viðhaldið góðri heilsu.
Vatn er meginuppistaða allra líkamsvessa, blóð, sogæðavökvi, meltingarsafar, þvag, tár og sviti.
Vatn gegnir hlutverki í næstum allri starfssemi líkamans, blóðrás, meltingu, upptöku næringarefna og útskilnaði eiturefna svo eitthvað sé nefnt.
Vatnsþörfin er misjöfn eftir einstaklingum og umhverfisþáttum.
En fullorðinn meðalþungur einstaklingur þarf um 2 lítra á dag. Mikilvægt er að drekka nóg vatn til að viðhalda góðri heilsu!!
Ef við stundum einhverja líkamsrækt og svitnum mikið, þá þurfum við að drekka meira vatn, það má bæta við ½ - 1 líter á dag.
Það segir okkur að manneskja sem stundar líkamsrækt 6 sinnum í viku á að drekka allt upp í 18 lítra af vatni á viku... !!
Prófa þú að skrifa niður allt það vatn sem þú drekkur á viku og sjáðu hvernig staðan þín er!
Kannski er vatnsskortur að hamla því að þú náir þínum markmiðum!
Heilsukveðja,
Telma