Söngkennsla Elínar Ósk

Söngkennsla Elínar Ósk Óperusöngkona, söngkennari, kórstjóri. Hef sungið og stjórnað kórum vítt um veröld. Elska að syngja og kenna alla tónlist. Spila á píanó.

Elín Ósk Óskarsdóttir óperusöngkona ,kórstjóri og söngkennari. Elín Ósk er fædd og uppalin í Rangárvallarsýslu og hóf tónlistarnám sitt við Tónlistarskóla Rangæinga.Árið 1979-1984 stundaði hún nám við Söngskólann í Reykjavík og lauk þaðan LRSM (einsöngvaraprófi) árið 1984. Aðalkennari hennar var hin ástsæla söngkona Þuríður Pálsdóttir og undirleikari var Jórunn Viðar tónskáld. Elín Ósk stundaði framhaldsnám á Ítalíu 1984-1986 hjá Pier Miranda Ferraro tenór og prófessor hjá Verdi Akademíunni í Mílanó.Hún hefur sungið fjöldamörg óperuhlutverk,óratoríur, messur og einsöngstónleika innanlands sem utan og fengið glæsilega gagnrýni.Hún hefur tvisvar verið tilnefnd til tónlistarverðlauna, árið 1995 og 2003. Árið 2003 hlaut Elín Ósk viðurkenningu Sverrisdags í Hafnarborg fyrir framlag sitt til menningar og lista í Hafnarfirði og var kjörin bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2006.
Árið 2009 var hún sæmd Riddarakrossi hinnar íslensku Fálkaorðu fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar og menningarlífs. Elín Ósk hefur hljóðritað hljómdiska með þekktum íslenskum og erlendum ljóðasöng og óperuaríum ásamt Sinfóníuhljómsveit íslands undir stjórn Kurt Kopecky
Elín Ósk stjórnaði Rangæingakórnum í Reykjavík í 10 ár og stofnaði hinn þekkta Óperukór Hafnarfjarðar og var aðalstjórnandi hans árið 2000-2013. Elín Ósk starfaði sem söngkennari við Söngskólann í Reykjavík á árunum 1986-2000 og sem einkakennari í söng til dagsins í dag. Hún hefur þjálfað upp margan verðandi söngvarann og aðstoðað söngvara við að læra hin ýmsu hlutverk óperubókmentanna.Hún tekur að sér að raddþjálfa kóra og kennir byrjendum sem ólærðum í söng.

Address

Hvolsvöllur

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Söngkennsla Elínar Ósk posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Söngkennsla Elínar Ósk:

Shortcuts

Share

Category