02/09/2026
Kæru foreldrar og forráðamenn
Við í Áslandsskóla ætlum að taka þátt í Treyjudeginum, nýjum samstöðudegi til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra. Treyjudagurinn verður haldinn föstudaginn 4.september nk.
Markmið Treyjudagsins er einfalt: að sýna börnum sem glíma við krabbamein að þau standa ekki ein.
Á þessum degi hvetjum við nemendur, kennara og starfsfólk til að mæta í treyju sem skiptir þau máli - hvort sem það er íþróttatreyja, félags- eða skólatreyja eða önnur treyja sem táknar hóp sem þau tilheyra.
Krabbamein í börnum hefur áhrif á allt líf fjölskyldna. Fyrir börnin sem greinast tekur við langur tími rannsókna, meðferða, spítalainnlagna og fjarveru frá skóla, vinum og tómstundum. Treyjudagurinn er táknræn leið fyrir samfélagið til að sýna þessum börnum og fjölskyldum þeirra stuðning, samstöðu og hlýju.
Nafnið á Treyjudeginum var valinn af ásetningi. Börn tilheyra alls konar hópum og samfélögum. Sum æfa fótbolta, önnur handbolta, sund, dans, fimleika eða aðrar íþróttir. Önnur tengja sig frekar við skóla, tónlist, skátastarf eða önnur áhugamál. Á Treyjudeginum skiptir ekki máli hvaða treyju þú klæðist - það sem skiptir máli eru skilaboðin: Við stöndum saman.
Við viljum hvetja nemendur og starfsfólk til að mæta í treyju á föstudaginn 4. september. Við munum ræða sérstaklega á þessum degi um mikilvægi samstöðu, vináttu og stuðnings við börn sem glíma við erfið veikindi.
Treyjudagurinn er dagur þar sem allt samfélagið kemur saman til að minna börn með krabbamein á að þau eiga heilt lið að baki sér.
Við vonum innilega að þið takið þátt með okkur.
Hér er linkur á upplýsingar um Treyjudaginn. https://treyjudagur.is/
Kær kveðja Unnur Elfa Guðmundsdóttir, skólastjóri.
Fyrir börn með krabbamein.