Lækjarskóli

Lækjarskóli Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Lækjarskóli, School, Sólvangsvegur, Hafnarfjörður.

https://laekjarskoli.is/nytt-skolaar-hafid/
26/08/2026

https://laekjarskoli.is/nytt-skolaar-hafid/

Í dag fór fram 150. skólasetning Lækjarskóla. Hátíðin var haldin úti á skólalóð í góðu veðri. Dögg skólastjóri setti skólann og bauð nemendur í 1. bekk sérstaklega velkomna í skólann. Við hlökkum til að hefja skólastarfið í fyrramálið en þá mæta nemendur í sinn ...

7. bekkur Lækjarskóla fór á Reyki dagana 27. - 30. maí✨
05/06/2024

7. bekkur Lækjarskóla fór á Reyki dagana 27. - 30. maí✨

Verkefnamiðað nám á unglingastigi :)
31/05/2024

Verkefnamiðað nám á unglingastigi :)

13/05/2024
29/11/2023
31/05/2023
Í Lækjarskóla hefur verið kennd kynfræðsla og kynjafræði með markvissum hætti vikulega á unglingastigi í 5 ár undir stjó...
14/02/2023

Í Lækjarskóla hefur verið kennd kynfræðsla og kynjafræði með markvissum hætti vikulega á unglingastigi í 5 ár undir stjórn Kristínar Blöndal kennara á unglingastigi. Nú ætla aðrir skólar í Hafnarfirði að taka okkur í Lækjarskóla sér til fyrirmyndar og mun Kristín stýra innleiðingu á kynfræðslu og kynjafræði í alla grunnskóla frá og með næsta hausti og erum við afar stolt af því að vera fyrirmynd og leiðandi á þessu sviði.

Við tókum því að sjálfsögðu fagnandi á móti Viku6 sem var í seinustu viku og á upphaf sitt í Danmörku en Reykjavíkurborg hefur haldið upp á Viku6 seinustu ár og hefur verkefnið verið mjög skemmtilegt fyrir bæði nemendur og kennara. Í Viku6 er sérstök áhersla á kynheilbrigði á öllum aldri og gerði Lækjarskóli ýmislegt skemmtilegt í seinustu viku. Sem dæmi má nefna að Þorsteinn í Karlmennskunni kom í Vitann á mánudeginum, bókasafnið safnaði saman bókum sem tengjast kynheilbrigði og tóku kennarar á öllum skólastigum þátt. Allir nemendur í 10. bekk fengu síðan smokk að gjöf frá bænum okkar sem vakti mikla lukku.

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir frá Viku6

Undarfarnar tvær vikur hafa allir nemendur Lækjarskóla, í 1.-10. bekk, tekið þátt í lestrarátaki. Þeir hafa lesið dagleg...
26/01/2023

Undarfarnar tvær vikur hafa allir nemendur Lækjarskóla, í 1.-10. bekk, tekið þátt í lestrarátaki. Þeir hafa lesið daglega, bæði í skólanum og heima, og límt fjölda lítilla miða (eftir lesnum mínútum) á stóran svan, sem hver bekkjardeild hefur fengið í sína stofu. Nú er átakinu lokið og utan við hverja stofu má nú sjá glæsilega, litríka svani.

Kæru nemendur, foreldrar og starfsfólk Lækjarskóla.Þið eigið þakkið skildar fyrir alla samvinnuna á þessum flóknu tímum....
21/01/2022

Kæru nemendur, foreldrar og starfsfólk Lækjarskóla.
Þið eigið þakkið skildar fyrir alla samvinnuna á þessum flóknu tímum. Ómetanlegt hve allir hafa verið sveigjanlegir og hjálpsamir í smitrakningum vikunnar og einnig ómetanlegt að geta haldið úti skólastarfi fyrir okkar dýrmætu nemendur.

Við í Lækjarskóla héldum upp á þorrann þessa viku. Frístund var með sérstaka þorraviku og kennarar fræddu nemendur um þorrann. Í dag mætti svo það starfsfólk og þeir nemendur sem vildu í lopapeysum og ullarsokkum til að fagna í vikulok.
Við settum saman lítið myndband í tilefni dagsins, njótið vel:
https://drive.google.com/file/d/1Ztmx3ci5k0QC37yNqMzPtsXV7DApzGYD/view?usp=sharing

Góða helgi og bestu kveðjur til þeirra sem eru í einangrun eða sóttkví.

Fyrir hönd skólastjórnar Lækjarkskóla.
Dögg Gunnarsdóttir skólastjóri.

Kæru foreldrar.Í dag, 20. janúar, fer enn á ný af stað keppni á milli grunnskóla ofl. á Íslandi, um flestar setningar le...
20/01/2022

Kæru foreldrar.
Í dag, 20. janúar, fer enn á ný af stað keppni á milli grunnskóla ofl. á Íslandi, um flestar setningar lesnar inn á "Samróm" (sjá hér fyrir neðan). Þið getið tekið sjálf tekið þátt og þið verðið að veita samþykki fyrir því að börnin ykkar taki þátt, með skráningu, sjá www.samromur.is Sjá einnig: Samrómur | Facebook
Í fyrra vantaði herslumuninn að Lækjarskóli sigraði keppnina. Nú biðlum við til ykkar að vera virk í verkefninu og stuðla þannig að því að Lækjarskóli komist alla leið á Bessastaði 🙂

Raddgagnasofnun

Address

Sólvangsvegur
Hafnarfjörður
220

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Lækjarskóli posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Lækjarskóli:

Shortcuts

Share

Category