Fab Lab Húsavík

Fab Lab Húsavík Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Fab Lab Húsavík, Education Website, Hafnarstétt 1, Húsavík.

🚀 Fab Lab Húsavík tilheyrir Hraðinu nýsköpunarsviði Þekkingarnetsins og hefur frá opnun boðið frumkvöðlum, íbúum, nemendum og fyrirtækjum upp á starfsaðstöðu, námskeið og hönnunarráðgjöf.

📣 Opinn dagur fellur niður í þessari viku!Það er mikið um að vera hjá okkur þessa dagana með nemendum svæðisins, heimsók...
21/09/2026

📣 Opinn dagur fellur niður í þessari viku!

Það er mikið um að vera hjá okkur þessa dagana með nemendum svæðisins, heimsókn nemenda frá Listaháskóla Íslands 🎨✨ og HönnunarÞing // DesignThing framundan ⚡️

Þess vegna fellur opni dagurinn niður í þessari viku.

En engar áhyggjur — við verðum rosa hress og klár í slaginn í næstu viku! 🙌😄

Sjáumst þá í Fab Lab Húsavík! 🛠️💡

🎧⌨️🎮 Víkurraf ehf Húsavík kemur rafMagnað til leiks!Nýja kennslu-, hönnunar- og rafíþróttaaðstaðan okkar í Fab Lab Húsav...
16/09/2026

🎧⌨️🎮 Víkurraf ehf Húsavík kemur rafMagnað til leiks!

Nýja kennslu-, hönnunar- og rafíþróttaaðstaðan okkar í Fab Lab Húsavík heldur áfram að eflast – og nú er komið að hljóðinu og lyklaborðunum! 🔥

Víkurraf á Húsavík færði okkur HyperX Cloud III leikjaheyrnartól og Lenovo Legion K510 lyklaborð fyrir aðstöðuna. 🎧⌨️

Þessi frábæri stuðningur hjálpar okkur að fullbúa tölvuverið og skapa öfluga sameiginlega aðstöðu sem Borgarhólsskóli, Framhaldsskólinn á Húsavík, Völsungur, Fab Lab smiðjan og almenningur geta nýtt.

Hér verður hægt að stunda rafíþróttaþjálfun, halda námskeið, sinna kennslu og vinna fjölbreytt hönnunar- og sköpunarverkefni. 💻🎮

Það er ótrúlega gaman að sjá fyrirtæki í samfélaginu taka þátt í verkefninu með okkur og hjálpa til við að byggja upp aðstöðu sem nýtist svo mörgum.

❤️ Kærar þakkir til Víkurraf fyrir frábæran stuðning!

🎧 HyperX Cloud III
• Þægileg leikjaheyrnartól hönnuð fyrir langar lotur
• Skýrt og öflugt hljóð fyrir leiki og samskipti
• Hljóðnemi fyrir samskipti við liðsfélaga
• Sterk og endingargóð hönnun

⌨️ Lenovo Legion K510
• Leikjalyklaborð úr Legion-línunni
• Hannað fyrir hraða og nákvæma notkun
• RGB-lýsing fyrir réttu stemninguna ✨
• Hentar jafnt fyrir rafíþróttir, kennslu og almenna tölvunotkun

Langar þig að búa til leik, borðspil, útileik eða tölvuleik eða eitthvað alveg nýtt?👉 Nánari upplýsingar og skráning:htt...
16/09/2026

Langar þig að búa til leik, borðspil, útileik eða tölvuleik eða eitthvað alveg nýtt?
👉 Nánari upplýsingar og skráning:
https://hradid.is/leikjadjamm/

Nú er akkúrat vika í Leikjadjamm á Húsavík / Húsavík Game Jam og ekki seinna vænna en að kynna frábæra fólkið sem verður með okkur 🤖 sem mentorar og innblástur.

Næstur er Snær, framkvæmdastjóri, listrænn stjórnandi og meðstofnandi Myrkur Games! Halldór verður með innlegg á Leikjadjamminu og gefur þátttakendum innsýn í heim faglegrar leikjagerðar.

Hann leiðir þróun leikja og starfsemi Myrkur Games og er jafnframt stjórnarformaður Samtaka leikjaframleiðenda á Íslandi, IGI. Þar vinnur hann að því að efla íslenskan leikjaiðnað og styrkja stöðu hans á alþjóðavettvangi.

Frábært tækifæri til að heyra frá einum af lykilaðilum íslenska leikjaiðnaðarins – og fá kveikju áður en hugmyndavinnan hefst.

Langar þig að búa til leik, borðspil, útileik eða tölvuleik eða eitthvað alveg nýtt?👉 Nánari upplýsingar og skráning:htt...
15/09/2026

Langar þig að búa til leik, borðspil, útileik eða tölvuleik eða eitthvað alveg nýtt?

👉 Nánari upplýsingar og skráning:
https://hradid.is/leikjadjamm/

Nú styttist óðum í Leikjadjamm á Húsavík / Húsavík Game Jam og komið að því að kynna frábæra fólkið sem verður með okkur sem mentorar og innblástur!

🥽 Upp á jökul og inn í íshella – í sýndarveruleika!

Ásta Olga verður með okkur á Leikjadjamminu. Hún er verkefnastjóri á Vísinda- og nýsköpunarsviði Háskóla Íslands en hefur líka borið ýmsa aðra hatta, meðal annars innan leikjaheimsins og sýningagerðar.

Ásta hefur tekið þátt í gerð stafrænna leikja og gagnvirkra upplifana frá því um aldamótin. Hún starfaði lengi hjá Gagarín og kom þar að gerð nokkurra af flottustu gagnvirku sýningum landsins, meðal annars Lava Centre, Eldheima og Orku til framtíðar.

Nýjasta ævintýrið er jöklaupplifun í sýndarveruleika, unnin með sprotafyrirtækinu Into the Blue – og Ásta ætlar að mæta með hana á Leikjadjammið!

Þar geta þátttakendur sett upp VR-gleraugun, skellt sér upp á jökul og inn í íshella, án þess að yfirgefa Hraðið.

15/09/2026

Dagana 18.–19. september verður Leikjadjamm Húsavík í Hraðinu tveir skapandi dagar þar sem hugmyndir verða að leikjum!

🎮 Þú þarft enga reynslu af leikjagerð.
Leikurinn getur verið hvað sem er – tölvuleikur, borðspil, spil, útileikur eða eitthvað alveg nýtt.

Leikjadjammið er fyrir 14–35 ára.

Leikur þarf heldur alls ekki að vera tölvuleikur. Þú getur búið til borðspil, spil, útileik, tölvuleik eða einhverja allt öðruvísi leikjaupplifun. Þú getur komið með hugmynd eða fengið hana á staðnum, komið ein/n eða kynnst fólki og myndað teymi á Leikjadjamminu.

🐋 Þemað í ár er Hvalir, hafið og Húsavík.

📅 18.–19. september
📍 Hraðið, Húsavík

Komdu ein/n eða með vinum – og búðu til leik á tveimur dögum!

👉 Nánari upplýsingar og skráning:
https://hradid.is/leikjadjamm/

Hlökkum til að sjá ykkur!

🖥️🎮 Framsýn Stéttarfélag og Þingiðn sjá til þess að við erum með skarpari og hraðari sýn!Nýja kennslu-, hönnunar- og raf...
10/09/2026

🖥️🎮 Framsýn Stéttarfélag og Þingiðn sjá til þess að við erum með skarpari og hraðari sýn!

Nýja kennslu-, hönnunar- og rafíþróttaaðstaðan okkar í Fab Lab Húsavík er nýkomin í gang og nú er heldur betur vel séð fyrir skjám! 🔥

Framsýn og Þingiðn styrktu verkefnið með 10 glæsilegum 27" Lenovo Legion 27Q-10 skjám 🙌

Markmiðið með aðstöðunni er að skapa eitt öflugasta tölvuverið á svæðinu – sameiginlegan vettvang sem Borgarhólsskóli, Framhaldsskólinn á Húsavík, Völsungur, Fab Lab smiðjan og almenningur geta nýtt.

Hér verður hægt að stunda rafíþróttaþjálfun, halda námskeið, sinna kennslu og vinna fjölbreytt hönnunar- og sköpunarverkefni sem kalla á öflugan tölvubúnað. 💻🎨🎮

Með því að sameina kraftana og samnýta búnaðinn getum við byggt upp mun öflugri aðstöðu, tryggt betri nýtingu og gefið fleirum aðgang að fyrsta flokks búnaði.

❤️ Kærar þakkir til Framsýnar og Þingiðnar fyrir frábæran stuðning við verkefnið!

🐭🎮 Heimamenn Verslun komu færandi höndum, fullum af músum!Nýja rafíþróttaaðstaðan okkar í Fab Lab Húsavík er komin í gan...
09/09/2026

🐭🎮 Heimamenn Verslun komu færandi höndum, fullum af músum!

Nýja rafíþróttaaðstaðan okkar í Fab Lab Húsavík er komin í gang og við fengum við heldur betur góða uppfærslu! 🔥

Heimamenn á Húsavík færðu okkur flottar Logitech G502 X gaming-mýs fyrir aðstöðuna og þær verða svo sannarlega settar í góða notkun. 🖱️⚡

Það er ótrúlega gaman að finna svona góðan stuðning úr samfélaginu við uppbyggingu aðstöðunnar. ❤️

Markmiðið er að skapa öflugt tölvu- og rafíþróttaver sem skólarnir, Fab Lab smiðjan og Völsungur geta nýtt til kennslu, þjálfunar og rafíþrótta. Tölvurnar munu svo að sjálfsögðu nýtast frábærlega í fjölbreyttum verkefnum og allri almennri kennslu sem fram fer í smiðjunni. 💻🎮

Kærar þakkir, Heimamenn, fyrir frábæran stuðning! 🙌

🔥 Á morgun, miðvikudaginn 9. september, setjum við málmlaserinn í sviðsljósið! 🔥Málmlaserinn, sem GPG Seafood gaf okkur ...
08/09/2026

🔥 Á morgun, miðvikudaginn 9. september, setjum við málmlaserinn í sviðsljósið! 🔥

Málmlaserinn, sem GPG Seafood gaf okkur svo rausnarlega, verður í aðalhlutverki á opna deginum. ⚡️

Ég ætla að smíða tannburstahaldara 🪥 og Helga ætlar að gera eitthvað alveg stórkostlegt – þó við vitum kannski ekki alveg hvað það verður ennþá. 😄

💡 Ert þú með hressa hugmynd að einhverju sem við getum prófað að skera eða smíða í þessum magnaða laser? Komdu með hugmyndina – því skrítnari, því betri!

Þó málmlaserinn fái mesta athyglina að þessu sinni er að sjálfsögðu hægt að koma og vinna í öllum hinum tækjunum líka. 🛠️✨

📍 Fab Lab Húsavík
🕒 15:00–17:00

Hlökkum til að sjá ykkur! 🙌

---

🔥 Tomorrow, Wednesday September 9, we’re putting our metal laser in the spotlight! 🔥

The metal laser, which was so generously donated to us by GPG Seafood, will be the star of this week’s Open Fab Lab. ⚡️

I’m going to make a toothbrush holder 🪥 and Helga is going to make something absolutely amazing too. 😄

💡 Got a fun idea for something we should try cutting or making with this fantastic laser? Bring us your ideas – the crazier, the better!

And even though the metal laser is getting most of the attention this time, you’re of course more than welcome to come and work with any of the other machines too. 🛠️✨

📍 Fab Lab Húsavík
🕒 15:00–17:00

Looking forward to seeing you! 🙌

Address

Hafnarstétt 1
Húsavík
640

Opening Hours

15:00 - 17:00

Telephone

+3548610057

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Fab Lab Húsavík posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share