08/07/2026
Gleðitíðindi fyrir okkur hér á Höfn, öryggisúttekt á nýju hjúkrunarheimili var gerð í gær, minniháttar athugasemdir voru gerðar sem auðvelt verður að uppfylla, gera má ráð fyrir að það verði hægt að flytja inn í þetta glæsilega heimili á næstu dögum.
07/07/2026
Áhugavert mælaborðið hjá SH,- fjöldi útkalla hefur aldrei verið fleiri og árið bara hálfnað.
20/05/2026
Kynning HMS á nýjum vegvísi slökkviliðanna á Íslandi.
Slökkvilið landsins gegna lykilhlutverki í öryggi samfélagsins. Á sama tíma hefur samfélagið tekið miklum breytingum undanfarin ár, meðal annars vegna fjölgunar íbúa, breytts byggðamynsturs, flóknari mannvirki og aukinna krafna til viðbragðsgetu.
Þessar breytingar hafa áhrif á starfsemi slökkviliða og kalla á að framtíðarskipulag þeirra sé skoðað með heildstæðum hætti. Markmiðið er að tryggja jafnara öryggi íbúa landsins og skapa sveitarfélögum betri forsendur til að standa undir rekstri slökkviliða sem fyrsta viðbragðskerfi samfélagsins. Núverandi skipulag byggir á forsendum sem mótuðust við aðrar samfélagsaðstæður og því er tímabært að skoða hvernig megi styrkja kerfið til lengri tíma og laga það að breyttum þörfum.
13/05/2026
Frambjóðendur fyri Kex Framboð komu á slökkvistöðina til okkar í morgun og kynntu sér málefni slökkviliðsins og það sem er framundan hjá okkur, farið var yfir svið með þeim enda hefur þessi flokkur ásamt samstarfsflokknum þeirra staðið vel við bakið á okkur og má nefna það að þessi meirihluti er búinn að kaupa fyrir okkur tvo nýja slökkvibíla og er sá þriðji að fara í útboðsferli ásamt því að styðja vel við okkur í aukum búnaði sem fylgir svona sérverkefnum eins og slökkviliðið eru með. Hafið þökk fyrir öll sem ein.
Sveitarfélagið Hornafjörður
09/05/2026
Slökkviliðsmenn á Höfn,Klaustri og Selfossi eru búnir að vera á námskeiði alla helgina og þar með útskrifaðir í björgunartækni. Þakka ykkur fyrir öll sömul.
05/05/2026
Flottir leikarar eina og alltaf.