Leikskólinn Gefnarborg

Leikskólinn Gefnarborg Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Leikskólinn Gefnarborg, Education, Sunnubraut 3, Garður.

30/10/2022
Hvet alla til að lesa grein á vef Skólaþráða sem birtist 4.mars síðastliðinn og fjallar um hvernig skynreiða er höfð að ...
11/03/2022

Hvet alla til að lesa grein á vef Skólaþráða sem birtist 4.mars síðastliðinn og fjallar um hvernig skynreiða er höfð að leiðarljósi í námi barna í Gefnarborg. Greinin hlaut viðurkenningu í samkeppni Samtaka áhugafólks um skólaþróun um ritun greina um frjótt og skapandi leikskólastarf.

Hver einasta mannvera uppgötvar heiminn í gegnum skynfæri. Í Gefnarborg leitum við leiða til að viðhalda þessari eðlislægu leið barna til að læra og þroskast. Við leggjum áherslu á að vinna með skilningarvitin fimm: heyrn, sjón, lykt, bragð og snertingu, ásamt jafnvægisskyni,...

Dagurinn sem allir bíða spenntir eftir🤗 Fjörið í hámarki nú, sjá meira í Story á Instagram síðunni okkar.
02/03/2022

Dagurinn sem allir bíða spenntir eftir🤗 Fjörið í hámarki nú, sjá meira í Story á Instagram síðunni okkar.

Búkolla - Hvað er hægt að búa til úr mjólk? Börnin smökkuðu 4 tegundir af ostum.  Markmiðið var að kveikja vel í bragðla...
28/02/2022

Búkolla - Hvað er hægt að búa til úr mjólk? Börnin smökkuðu 4 tegundir af ostum. Markmiðið var að kveikja vel í bragðlaukunum 😀

Eftir að vera búin að fylgjast með  og sjá hvað það er gaman hjá börnunum á Ísafirði á gönguskíðum er loksins komið að þ...
24/02/2022

Eftir að vera búin að fylgjast með og sjá hvað það er gaman hjá börnunum á Ísafirði á gönguskíðum er loksins komið að því🤗 að börnin í Gefnarborg eru búin að eignast fjögur pör af gönguskíðum. Markmiðið er að eignast fjögur í viðbót og einnig skíði fyrir tvo kennara😉 Gönguskíðin eru skemmtileg og góð viðbót við okkar fjölbreytta starf úti og það verður gaman þegar við getum boðið fleirum að prófa. Þau sem voru fyrst að prófa stóðu sig eins og hetjur👏👏👏

Í dag er rafmagnslausdagur í Gefnarborg 🔦🔦🔦
13/01/2022

Í dag er rafmagnslausdagur í Gefnarborg 🔦🔦🔦

Börnin læra í gegnum leikinn. Leikurinn gefur barninu tækifæri að leika hlutverk sem það hefur upplifað í sínum reynsluh...
11/01/2022

Börnin læra í gegnum leikinn. Leikurinn gefur barninu tækifæri að leika hlutverk sem það hefur upplifað í sínum reynsluheimi. Þannig hjálpar leikurinn barninu að skilja heim fullorðinna. Leikurinn er rauður þráður í okkar starfi.

Styttist í að við kveikjum á fjórða og síðasta aðventukertinu í Töfraborg. Það kerti heitir Englakerti. Við erum búin að...
17/12/2021

Styttist í að við kveikjum á fjórða og síðasta aðventukertinu í Töfraborg. Það kerti heitir Englakerti. Við erum búin að skreyta og kveikja upp í eldstæðinu. Þegar við erum búin að syngja, verður boðið upp á heitt súkkulaði og piparkökur🌲😉🎄

Það er alltaf jafn gaman þegar Þórdís Arnljótsdóttir kemur með leiksýninguna Leikhús í tösku. Í sýningunni galdrar hún u...
16/12/2021

Það er alltaf jafn gaman þegar Þórdís Arnljótsdóttir kemur með leiksýninguna Leikhús í tösku. Í sýningunni galdrar hún upp úr töskunni Grýlu og alla 13 drengina hennar. Stundum verður manni um og ó, því lætin eru þvílík😱 Þökkum foreldrafélaginu kærlega fyrir að bjóða okkur upp á þessa skemmtilegu leiksýningu.

Önnu Sofiu er margt til lista lagt. Hún spilaði jólalög á þverflautuna sína á meðan börnin borðuðu jólamáltíðina í dag. ...
16/12/2021

Önnu Sofiu er margt til lista lagt. Hún spilaði jólalög á þverflautuna sína á meðan börnin borðuðu jólamáltíðina í dag. Þetta vakti mikla lukku á meðal allra. Sjá meira í Story á Instagram.

Jógastund úti gefur gull í mund🙏 sjá fleiri myndir í story á Instagram.
13/12/2021

Jógastund úti gefur gull í mund🙏 sjá fleiri myndir í story á Instagram.

Kveiktum á þriðja aðventukertinu í dag sem heitir Hirðakerti. Héldum einnig jólaball í Töfraborg. Alltaf jafn gaman að f...
10/12/2021

Kveiktum á þriðja aðventukertinu í dag sem heitir Hirðakerti. Héldum einnig jólaball í Töfraborg. Alltaf jafn gaman að fá jólasveininn í heimsókn til okkar😉🌲🎅 sjá fleiri myndir og myndbönd í story á Instagram 😉

Address

Sunnubraut 3
Garður
250

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Leikskólinn Gefnarborg posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Leikskólinn Gefnarborg:

Shortcuts

Share

Category