Viska ljóssins

Viska ljóssins

Share

Á síðuna Viska ljóssins setur Hrafnhildur Sigurðardóttir reglulega inn texta sem hún miðlar frá leiðbeinendum sínum að handan. Njótið vel

18/02/2026

Öskudagurinn, sem haldinn er í dag 18. febrúar 2026, markar upphaf lönguföstu, 40 daga tímabils bæna, föstu og iðrunar til undirbúnings fyrir páskana.
Öskudagurinn einkennist af föstu og bindindi, sérstaklega meðal kaþólikka, þar sem hinir trúuðu eru skyldugir til að fasta og halda sig frá kjöti. Fjörutíu daga löngufastan endurspeglar þá 40 daga sem Jesús eyddi í föstu í óbyggðunum og leggur áherslu á andlegan aga.
Þótt öskudagurinn sé oftast tengdur rómversk-kaþólskri trú, þá er hann einnig haldinn hátíðlegur af mörgum öðrum vestrænum kristnum kirkjudeildum, sem tími til íhugunar, iðrunar og undirbúnings fyrir hátíðahöld upprisu Krists á páskum.
Dagurinn er víða táknaður með því að aska er borin á ennið, oftast í laginu eins og kross, sem tákn um dauðleika og iðrun. Þessi aska, oft gerð úr brenndum pálmagreinum frá pálmasunnudegi árið áður, þjónar sem áminning um viðkvæmni mannsins og nauðsyn auðmýktar frammi fyrir Guði. Í Biblíunni táknar askan þemu sorgar og iðrunar, sem dregin eru af versum eins og 1. Mósebók 3:19: „Því að mold ert þú og til moldar skaltu aftur hverfa,“ og Markús 1:15: „Tíminn er fullnaður og Guðs ríki í nánd. Takið sinnaskiptum og trúið fagnaðarerindinu.“

Þegar við förum inn í tímabil föstunnar hvetur öskudagurinn okkur til að stíga meðvituð skref í átt að andlegum vexti með bæn, föstu og ölmusugjöfum. Það er boð um að skoða líf okkar og skapa rými fyrir náð Guðs til að starfa í okkur, endurnýja hjörtu okkar og huga.
Ég hvet þig til að nýta daga lönguföstu til að fasta á eitthvað sem hefur verið óþarfi í þínu lífi og jafnvel hamlað því að þú getir notið þín til fulls.
Megi þessi dagur hvetja okkur öll til að rísa yfir veikleika okkar og verða kærleiksríkari, samúðarfyllri og Kristslíkari í daglegu lífi okkar.

13/01/2026

Nú er nýtt ár hafið og hversdagsleikinn tekinn við með öllum þeim fjölmörgu metnaðarfullu markmiðum sem margir hafa sett sér. Oftar en ekki rata markmið á listann sem tengjast einhverju líkamlegu svo sem heilsurækt og næringu eða einhverju félagslegu eins og að auka samveru með ástvinum og skapa minniningar t.d. í formi ferðalaga. Kannski settu einhverjir námsmarkmið á listann sinn eins og að lesa fleiri bækur, læra eitthvað nýtt eða standa sig vel í námi.

Öll slík markmið eru góð og gild en það þarf líka að muna að vökva ræturnar og veita þeim góða næringu. Gott er að velta spurningum á borð við þessar fyrir sér:
Hvernig ætla ég að rækta tengingu mína við Guð?
Hvernig ætla ég að viðhalda trú minni á árinu?
Hvernig ætla ég að hlúa að guðsneistanum innra með mér?
Hvernig ætla ég að láta gott af mér leiða?

Ef þú ert á byrjunarreit hvað varðar andlegarækt þá eru hér nokkrar leiðir sem gætu hjálpað þér:
Taktu frá stund á hverjum degi til að vera í einrúmi og þögn. Prófaðu að róa hugann með því að draga athygli þína að andardrættinum. Slepptu taki af allri fortíð og allri framtíð, vertu bara í augnablikinu hér og nú. Í þögninni nærðu tengingu við Guð, almættið, viskuna eða hvað sem þú vilt kalla upphaf alls sem er. Ekki láta fyrirfram ákveðnar hugmyndir þínar um trú og trúarbrögð trufla einbeitingu þína og ásetning. Leyfðu þér að finna kjarna þinn án nokkurra fordóma. Leyfðu þér að hlusta og vera.

Á hverjum degi er gott að lesa eitthvað sem hjálpar þér að rækta andann. Af nægu er að taka, byrjaðu þar sem áhugi þinn liggur og leyfðu forvitni þinni að leiða þig áfram.

Minntu þig daglega á að Guð gaf þér lífið. Guð gaf þér andann. Guð skapaði þig og því berðu guðsneistann innra með þér. Þér ber að hlúa að ljósinu innra með þér, eins og þú værir að viðhalda glóðum í eldi. Þú ræður hversu mikið ljós þú sýnir öðrum en þú mátt ekki hylja það og kæfa niður eldinn. Leyfðu frekar öðrum að ylja sér við þinn eld. Vertu ljós í lífi annarra svo myrkrið í heiminum hverfi smám saman.

Leyfði þér að skína á árinu 2026. Leyfðu Guði að taka við stýrinu.

09/11/2025

Þegar þú finnur fyrir nærveru Guðs er eins og þú sért umvafin/n hlýju teppi því elska Guðs er nánast áþreifanleg. Þegar þú finnur fyrir hlýjunni sem Guð veitir þér með elsku sinni skaltu taka á móti henni og fylla hjarta þitt af kærleikanum sem streymir til þín.

Þegar þú hefur veitt Guði aðgang að hjarta þínu er hjarta þitt eitt með Guði.

Gefðu þér daglega stund til að finna þessa tengingu og þú munt finna kærleikann aukast í samræmi við þær stundir. Þú þarft sjálf/ur að opna fyrir Guði inn í líf þitt.

Þrátt fyrir að elska Guðs til þín sé algerlega skilyrðislaus þá getur enginn, ekki einu sinni Guð, fengið þig til að elska til baka. Þú hefur frjáslan vilja til að velja það sem þú telur rétt fyrir þig. En mundu að það eina sem þú raunverulega þráir í lífinu er að vera séð og elskuð/elskaður.

Samband þitt við Guð er undir þér komið. Guð bíður þín með opinn faðminn en það er þitt að stíga skref í átt til hans.

Eftir hverju hefurðu verið að bíða?

Hvað þarf að breytast í þínu lífi til að þú veljir að taka á móti elsku Guðs?

Er kannski loks komið að því að þú opnir hjarta þitt fyrir kærleika Guðs?

22/07/2025

Hver er leiðtogi lífs þíns?
Hver er þín fyrirmynd?
Hvern líturðu upp til og vilt líkjast?

Hver og einn ætti að velta þessum spurningum fyrir sér og svara samviskusamlega. Það er ekki sjálfgefið að þú finnir slíkan einstakling í þínu nærumhverfi en vissulega möguleiki. Kannski áttu slíkan vin, fjölskyldumeðlim eða samstarfsfélaga. Ef þú ert svo heppin/n þá væri áhugavert fyrir þig að skoða hvaða leiðtoga sá aðili hefur fyrir sína fyrirmynd.

Það er í eðli okkar að eiga fyrirmyndir en þá er ekki þar með sagt að þú eigir að líkjast öðrum. Hver og einn er einstakur og á að vaxa og blómstra á sinn einstaka máta. En til þess að flýta fyrir þeim vexti er gott að eiga sér fyrirmynd, einhvern sem maður getur litið upp til, fengið ráð hjá og leiðbeiningar.

Margir kjósa að gera Jesú Krist að leiðtoga lífs síns. Jesús var sannarlega falleg og góð fyrirmynd sem kenndi á sinni ævi hvernig við eigum að nálagst Guð, sannleikann og allt hið góða. Þegar maður hefur ákveðið að gera Jesús að leiðtoga er sagt að maður gangi hans veg. Jesús hefur farið á undan, varðað leiðina og við getum fylgt á eftir í fullu trausti. Hver og einn þarf þó að fikra sig áfram í gegnum lífsins ólgusjó en eitt er víst að vegur Jesús Krists leiðir í rétta átt.

Stundum sjáum við ekki fram veginn og þá þurfum við að treysta og trúa að hvert skref leiði okkur að næstu vörðu. Þegar þú hefur Jesú Krist sem leiðarljós kemstu áleiðis því hann er ljósið sem lýsir, hann er verndin sem þú þarft á að halda, hann er öryggið sem umvefur og elskar þig sama hvað á bjátar.

Ef þú hefur enn ekki tekið á móti Jesú í hjarta þínu skaltu prófa að opna smá rifu og hleypa honum inn. Jesús ryðst ekki inn í hjarta þitt, þú verður að opna sjálf/ur. Kannski er fyrsta skrefið fyrir þig að fara með bæn, lesa í Biblíunni eða einfaldlega að biðja Jesús að sýna þér nærveru sína.

Megi ljós Drottins lýsa þér um alla ævidaga þína.

Mynd: Hrafnhildur Sigurðardóttir

12/05/2025

Mörgum reynist erfitt að skilja hvernig hinn þríeini Guð (faðir, sonur og heilagur andi) getur verið eitt og hið sama. Með eftirfarandi samlíkingu gæti reynst auðveldara að skilja hina heilögu þrenningu. Hugsaðu þér að Guð sé eins og sólin; ósnertanleg, lífsnauðsynleg og sannur gleðigjafi. Sólargeislarnir eru eins og sonurinn Jesús Kristur; snertir við manni með hlýju sinni, umvefur mann með heitum geislum sínum og lífgar allt við. Hinn heilagi andi er lífskrafturinn sem er að verki fyrir tilstuðlan sólarinnar (Guðs) og geisla sólarinnar (Krists), krafturinn sem umbreytir ljósi í líf (sbr. ljóstillífun), er undirstaða í lífkeðju jarðar og aflið sem er að verki en enginn sér.

Trú, von og kærleikur endurspeglar hina heilögu þrenningu líka vel. Guð er kærleikurinn (hið elskandi afl sem er grunnur alls), Kristur er trúin (sönnun þess að dauðinn er aðeins umbreyting, að lífið er eilíft og að Guð lifir í hverjum manni) og hinn heilagi andi er vonin (tilfinningin sem heldur í okkur lífinu, má aldrei taka frá okkur og er hið sanna kraftaverk).

Veldu að vera sólarmegin í lífinu, með því að hleypa Guði inn í líf þitt.
Leyfðu sólargeislunum að umvefja þig, hleyptu Jesú Kristi að hjarta þínu og taktu hann þér til fyrirmyndar.
Finndu hlýjuna sem streymir til þín og leyfðu öðrum að njóta hins heilaga anda sem í gegnum þig streymir.

Megirðu vera lifandi í trú þinni með því að lesa og tileinka þér guðsorð.

14/04/2025

Í gær var pálmasunnudagur en þá minnast kristnir menn þess þegar Jesús kom ríðandi á asna inn í Jerúsalem.

Íbúar Jerúsalem tóku á móti Jesú sem konungi. Fólkið fagnaði honum með því að syngja „Hósanna“, breiddi klæði sín á veginn og veifaði pálmagreinum, en þannig var konungum fagnað á þeim tímum.

Þessi atburður uppfyllti spádóm Gamla testamentisins um að Messías myndi koma til Jerúsalem ríðandi á asna.

Hósanna, einnig skrifað hósíanna, er lofgerðar hróp Guði til dýrðar.
Pálmagreinar tákna sigur og heiður.
Asni er tákn fyrir þjónustu, þjáningu, frið og auðmýkt.

Sakaría 9:9, Matteus 21:1, Markús 11:1-11, Jóhannes 12:12-13

04/04/2025

Þegar sól hækkar á lofti, fuglar streyma aftur til landsins, vorlaukar springa út og tré fara að laufgast er tímabært að þú vaknir líka úr vetrardvala þínum.
Gott er að spyrja sig að:
Hvað bærist innra með mér sem þráir að brjótast fram?
Hvaða hæfileikum er ég gædd/ur sem hafa enn ekki litið dagsins ljós en þrá nú birtu og vökvun?
Er ekki kominn tími til að leyfa öllum fræjunum mínum að spíra og verða að fallegum blómum?

Ertu kannski hrædd/ur við þitt eigið ljós?
Hefurðu tilhneigingu til að dimma ljósið þitt svo það lýsi ekki of mikið?
Heldurðu kannski að þú hafir fæðst í þennan heim til að minnka þig og fela?

Guð þráir ekkert heitar en að sjá þig vaxa, þroskast og dafna, rétt eins og foreldrar þrá að sjá börnin sín vaxa úr grasi. Guð skapaði þig í sinni mynd svo þú getir fært kærleika Guðs til annarra manna. Guð þarnast þín til að dreifa ljósi sínu. Guð þarnast þín til að skapa himnaríki á jörðu. Ekki láta þitt eftir liggja. Tíminn er kominn til að þú látir ljós þitt skína skærar sem aldrei fyrr. Nýttu daginn í dag til að rækta hæfileika þína, þínar guðsgjafir. Njóttu þess að vökva fræin þín svo þau megi springa út í aldingarði Guðs.

26/02/2025

Máttur Guðs er innra með þér. Þegar þú leyfir þér að flæða í takt við lífsorkuna muntu finna kraft Guðs að verki.

Allt hefur sinn tíma og því skaltu þjálfa þig í að hlusta vel á innsæið og fylgja því. Stundum býður lífið þér upp á mikla spennu og hasar en aðrar stundir eru rólegri og afslappaðri.

Leyfðu þér að sleppa tökum og fylgdu takti lífsins. Þegar þú kemst á þann stað að treysta framvindunni, treysta Guði, finnurðu miklu fargi af þér létt.

Ekki streitast á móti, leyfðu lífsorkunni að flæða, leyfðu ljósi Guðs að flæða um þig og í gegnum þig. Þú ert farvegurinn, Guð er ljósið og lífið.

06/02/2025

Andardráttur þinn er áminning um lífið sem Guð gaf þér. Án andans geturðu ekki lifað, án Guðs geturðu ekki lifað því Guð gaf þér lífið. Í grunninn ertu andleg vera, neisti Guðs, sköpun Guðs. Þegar þú tengist andardrætti þínum ertu um leið að tengjast betur Guði.

Næst þegar þú dregur djúpt að þér andann skaltu prófa að sjá fyrir þér hvernig súrefnið flæðir til þín og fyllir hverja frumu líkama þíns. Fylltu lungun, önnur líffæri og útlimi lifandi anda Guðs. Í útöndu skaltu sjá fyrr þér hvernig kærleikur Guðs streymir frá þér í gegnum öndunarveginn.

Hugsaðu til þess hve dásamlegt það er þegar barn tekur sinn fyrsta andardrátt og grætur í fyrsta sinn. Rifjaðu upp þegar þú hefur fylgst með barni anda rólega til að fullvissa þig um að barnið er á lífi. Minnstu þess hve gefandi það er að heyra barn hjala og hve dýrmætt það er að geta veitt grátandi barni huggun. Barnið er tær sköpun Guðs og tjáir elsku Guðs í gengum sig. Barnið þráir ekkert heitar en að vera elskað, séð og heyrt. Gott og heilbrigt foreldri og aðrir uppalendur sinna barninu eftir þörfum þess. Guð þráir slíkt samband við þig því þú ert elskað barn Guðs. Guð elskar að sinna þörfum þinum, veita þér innblástur, ást og umhyggju.

Hvern einasta dag skaltu þakka fyrir lífið og andann sem Guð gaf þér. Andarrdrátturinn er það dýrmætasta sem þú átt. Notaðu andardráttinn vel til að efla líkamlega og andlega heilsu þína. Farðu vel með líf þitt allt til síðasta andartaks.

01/01/2025

Í upphafi árs er gott að líta yfir farinn veg til að vega og meta hvað lífið hefur kennt þér hingað til. Það er notalegt að staldra við ljúfar minningar sem ylja hjartaræturnar en þær minningar sem vekja hjá þér ónot eru eflaust þær stundir sem þroskuðu þig hvað mest. Lífið gengur út á sálarþroska en ekki er ástæða til að dvelja of lengi við þær minningar sem vekja upp tilfinningaóróleika.

Hvað kenndi þessi stund þér?
Hvað lærðirðu af reynslunni?
Hvað geturðu gert öðruvísi næst þegar þú lendir í svipuðum aðstæðum?

Um leið og þú veltir fortíðinni fyrir þér er ástæða til að sleppa svo taki af tilfinningunum sem fylgdu reynslunni, létta á þér til að þú getir notið betur líðandi stundar. Andaðu djúpt og sjáðu fyrir þér tilfinningarnar sem eru að íþyngja þér svífa burt, losna úr líkama þínum, losna úr huga þínum. Þessar tilfinningar þjóna þér ekki lengur og því máttu sleppa þeim.

Horfðu á framtíðina full/ur bjartsýni og von. Framtíðin færir þér ný tækifæri, ný ævintýri. Vertu opin/n gagnvart því sem Guð mun færa þér. Opnaðu hjarta þitt og huga fyrir nýju lífi, nýju ljósi, nýrri orku til að þú megir blómstra sem aldrei fyrr. Notaðu hverja stund til að líta inn á við, til að vega og meta hvað þú vilt gera við upplifunina. Viltu geyma hana sem ljúfa minningu eða henda eins og hverju öðru rusli sem þjónar þér á engan hátt?

Lofaðu lífið og allt það stórkostlega sem það gefur þér. Allt er orka og orka þarf að vera á hreyfingu. Hleyptu nýrri orku inn í líf þitt í dag og mundu svo að staldra við á hverjum degi árið 2025 til að læra af öllum þeim áskorunum sem fyrir þig verða lagðar. Settu þér háleit en raunsæ markmið í þeim tilgangi að stækka ljósið sem er innra með þér. Ljósið sem allt líf kviknar frá, ljósið sem tengir saman allar sálir heims, ljósið sem er allt og ekkert, upphafið og endirinn, Alfa og Omega. Ljósið sem er Guð í allri sinni dýrð. Vertu farvegur og fyrirmynd.

Guð blessi þig, fjölskyldu þína og allt sem þú munt taka þér fyrir hendur á árinu. AMEN.

15/09/2024

„Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta.“

Á hverjum degi þurfum við að muna hver leiðir för okkar, tengjast guðsorkunni, hinum heilaga anda og fylgja þeirri leiðsögn í hvívetna. Leið okkar er vörðuð en við höfum frjálsan vilja og því er það okkar að finna heppilegustu leiðina á milli varðanna.

Nú þegar hausta tekur er gott ráð að finna orku sinni nýjan farveg með því að hlúa betur að ljósi sínu. Við árstíðarskipti er gott ráð að fasta, taka til, endurskipuleggja og losa sig við það sem maður vill ekki lengur hafa í kringum sig.

Farðu í gegnum fataskápa heimilisins, hvað mætti gefa, taka til hliðar eða selja? Eru litir fata þinna og heimilisins í takt við líðan þína? Mætti lífga upp á fatasápinn og heimilið með haustlitum eða öðrum litatónum sem höfða betur til þín akkúrat núna? Er lýsing heimilisins nógu góð þegar dimma tekur? Mætti bæta við lömpum eða kveikja á fleiri kertum? Ertu að muna að kveikja á þínu innra ljósi svo þú getir veitt samferðamönnum þínum hlýju og yl? Hvar leynast tækifæri í þínu nærumhverfi sem þú getur nýtt til að lyfta upp samtölum, orku og bæta líðan þeirra sem þú hittir? Er kannski kominn tími til að minnka samskipti við einhverja sem draga úr þér þrótt og auka samskipti við ljósgjafa í lífi þínu? Ertu að sinna áhugamáli sem nærir anda þinn og gefur þér löngun til að sinna sköpunarkrafti þínum?

Lífið er leikur sem þér ber að leika eftir leikreglum Guðs, hvort sem þér líkar það betur eða verr. Það er þitt að finna hentugustu leiðina fyrir þig. Takmarkið er að breiða út eins mikinn kærleika og þú getur dag hvern, lýsa upp umhverfið þitt og snerta hjörtu þeirra sem þú hittir.

Gangi þér vel og njóttu dagsins.
Guð veri með þér og láttu ljós þitt skína.

Want your school to be the top-listed School/college?