Náttúruskólinn

Náttúruskólinn Contact information, map and directions, contact form, opening hours, services, ratings, photos, videos and announcements from Náttúruskólinn, Education, Óbyggðasetur Íslands, Egilsstaðir.

Straumvatnshjólreiðar, sullandi sokkar, steinagusukeppni, berjamór og brekkur 💚
23/09/2026

Straumvatnshjólreiðar, sullandi sokkar, steinagusukeppni, berjamór og brekkur 💚

Útipúkahaustlitahamingja! 🍂💧
22/09/2026

Útipúkahaustlitahamingja! 🍂💧

Notaleg sunnudagsútivera undir yfirskrift Tengsl & töfra með vinum okkar í Náttúruverndarsamtökum Austurlands. Rölt til ...
20/09/2026

Notaleg sunnudagsútivera undir yfirskrift Tengsl & töfra með vinum okkar í Náttúruverndarsamtökum Austurlands. Rölt til fundar við blæösp í haustlitum undir leiðsögn Bjarki Sigurðsson 🍂
Takk fyrir samveruna 💚

Það vafðist ekki fyrir ögn lúnum Útiverum að sofna vært undir söng regns og gæsa í gærkvöldi enda eins gott því dagurinn...
20/09/2026

Það vafðist ekki fyrir ögn lúnum Útiverum að sofna vært undir söng regns og gæsa í gærkvöldi enda eins gott því dagurinn var tekinn eldsnemma til að gjörnýta hverja sólskinsstund út í ystu æsar 🙏☀️

🌈🐎 Útreiðatúr undir regnbogann og klettasig með afbragðs tækifæri til að virða fyrir sér stærðar laup og byggingarverkfræði hrafnanna rúmaðist því ljómandi vel áður en pakkað var saman, Geirastadir-hestar, hrossin og hún Angelika Liebermeister okkar kvödd með virktum og haldið heim á leið 💚

Frábær samvera með eðalútiveruunglingum sem láta blauta sokka og svolítið regnbras hreint ekki skyggja á útivistargleðina 🙌

Útiverur lögðu leið sína út í Tungu í dag með allskonar hafurtask enda gott að vera vel búin í haustútilegu í rigningarg...
19/09/2026

Útiverur lögðu leið sína út í Tungu í dag með allskonar hafurtask enda gott að vera vel búin í haustútilegu í rigningargráma.
Röltum undir vængjaþyt skúmanna út í Húsey, náttúrusköpun, nesti og útiveru notið í botn.
Þegar komið var aftur heim í túnfótinn á Geirastadir-hestar var hreiðrað um sig í tjaldinu góða, þæfðar ullarsápur, tálgaðar skeiðar og svo skroppið í útreiðartúr um holt og hæðir.
Þrátt fyrir bleytu og sudda mallaði kjúklingasúpa á eldinum sem var notalegt að gæða sér á sér í hlýjunni í tjaldinu.
Kvöldið var svo nýtt í spjall, spil, sprell og hrossháraföndur.

Nemendur frá Brúarási og Seyðisfirði settu punktinn yfir i-ið í þriðju bekkjartörn þessa hausts 🍂Blíðskaparveður og skóg...
17/09/2026

Nemendur frá Brúarási og Seyðisfirði settu punktinn yfir i-ið í þriðju bekkjartörn þessa hausts 🍂
Blíðskaparveður og skógurinn tók á móti okkur ilmandi og fallegur.
Þolinmæði, þrautseigja og handtökin við gneistagjafana æfð og iðkuð, skottast um skóginn með lúpur og forvitnina í farteskinu og skapað af hjartans list úr hinum ýmsa náttúrulega efniviði.
Svo auðvitað eldkræsingar og -töfrar eins og best verður á kosið 🔥🌈

Takk fyrir samveruna Brúarásskóli og Seyðisfjarðarskóli og fyrir aksturinn Tanni Travel 💚

Hjá Útipúkum er ekkert til sem heitir vont veður, en það er ekkert að því að breyta stundum plani og láta það eiga sig a...
16/09/2026

Hjá Útipúkum er ekkert til sem heitir vont veður, en það er ekkert að því að breyta stundum plani og láta það eiga sig að flengjast um vindbarin á hǰóli og skottast frekar í skjóli skógarins, stússast í stíflugerð, berjamó og keppast við að segja þjóðsögur 💚

Address

Óbyggðasetur Íslands
Egilsstaðir
701

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Náttúruskólinn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Náttúruskólinn:

Shortcuts

Share

Category