Andabær

Andabær Andabær, hvanneyri. Andabær er 3 deilda leikskóli. Einkunnarorð leikskólans eru: leikur, gleði og vinátta.

Andabær er Grænfánaleikskóli, heilsuleikskóli og vinnur að verkefninu leiðtoginn í mér (leader in me).

28/09/2026

Það er rafmagnslaust hjá okkur þannig að símar virka ekki ef þið þurfið að ná í okkur þá er síminn 8464341

Endilega kíkið á þetta☺️Á sunnudaginn á milli kl 14:00 og 16:00 fer Virkniþing fram í Hjálmakletti í Borgarnesi í samsta...
25/09/2026

Endilega kíkið á þetta☺️
Á sunnudaginn á milli kl 14:00 og 16:00 fer Virkniþing fram í Hjálmakletti í Borgarnesi í samstarfi Borgarbyggðar og UMSB.
Á þessum viðburði geta öll komið og kynnt sér alls konar starfsemi sem stuðlar að fjölbreyttri virkni íbúa á öllum aldri í okkar samfélagi og viljum við endilega að sem flest viti af viðburðinum og kíki við. Um 25 aðilar hafa boðað komu sína og munu þau kynna sína starfsemi þennan dag, léttar veitingar verða í boði.

22/09/2026

Skipulagsdagur á morgun og þá er lokað. Starfsfólk mun sitja tvö námskeið um útiveru og hreyfiþroska barna hvernig við getum tengt þessa þætti við STEAM og einnig um STEAM og leiðsagnarmat þróun námsmenningar. Við munum vera með starfsfólki Klettaborgar en þetta er liður í sprotaverkefninu okkar. Sjáumst á fimmtudaginn 🥰

15/06/2026

Gleðilegan mánudag 🌿

Ný vika – ný tækifæri.
Þrjú lykilorð fyrir sumarið:
☘️ Tími
☘️ Tækifæri
☘️ Umhverfi

Gott nesti og væntingastjórnun eru meðal mikilvægustu verkefna forráðamanna í sumar.
Ekki bara hvað fer í nestisboxið, heldur líka þær væntingar sem við setjum – bæði fyrir okkur sjálf og börnin.

Börn þurfa ekki endalausa dagskrá eða stöðuga afþreyingu. Þau þurfa tíma til að leika, tækifæri til að kanna og umhverfi sem styður við forvitni, hreyfingu og samveru.

Stundum verða bestu sumardagarnir til þegar ekkert sérstakt var á dagskrá.

Njóta – ekki þjóta. 🌿

21/05/2026

Skipulagsdagur í Andabæ á morgun og starfsfólk fer yfir veturinn, hvað gekk vel og hvað má bæta ásamt ýmsum fróðleiksmolum🤓sjáumst á þriðjudaginn ( lokað á mánudag annan í Hvítasunnu)

Opnun myndlistasýningar í dag í Geirabakarí. Börn í Borgarbyggð með verk í gluggum bakarísins. Endilega kíkið við og sko...
06/05/2026

Opnun myndlistasýningar í dag í Geirabakarí. Börn í Borgarbyggð með verk í gluggum bakarísins. Endilega kíkið við og skoðið. Börn í Andabæ tóku þátt í þessu verkefni☺️

Leikskólarnir Klettaborg og Andabær fengu styrk úr Sprotasjóði Laugardaginn 11. apríl s.l. úthlutaði mennta- og barnamál...
13/04/2026

Leikskólarnir Klettaborg og Andabær fengu styrk úr Sprotasjóði

Laugardaginn 11. apríl s.l. úthlutaði mennta- og barnamálaráðherra Inga Sæland styrkjum úr Sprotasjóði við hátíðlega athöfn í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Leikskólinn Klettaborg í samstarfi við leikskólann Andabæ fékk veglega úthlutun úr sjóðnum til vinnslu verkefnisins STEAM og leiðsagnarmat- Þróun námsmenningar.

Sprotasjóður styður við þróun og nýjunar í skólastarfi í leik-, grunn- og framhaldsskólum í samræmi við stefnu stjórnvalda og aðalnámskrá viðkomandi skólastigs. Á þessu ári bárust 39 umsóknir til sjóðsins og fengu 20 skólaþróunarverkefni styrk.

Verkefni leikskólanna Klettaborgar og Andabæjar miðar að því að þróa og innleiða STEAM kennslu. Áhersla er lögð á að skapa lærdómsumhverfi starfsmann og barna þar sem börn læra í gegnum leik, rannsóknir og fjölbreytt skapandi verkefni sem tengja og sameina vísindi, tækni, verkfræði, listir og stærðfræði. Í verkefninu verða áherslur STEAM tengdar með markvissum hætti við útikennslu skólanna. Samhliða innleiðingu á STEAM-kennsluháttum þá á að þróa námsmat sem sýnir ferli náms sem á sér stað hjá börnum, þar sem virkni þeirra, þátttaka og eigin sjónarhorn eru í forgrunni. Börnin taka þátt í matsferlinu með því að endurspegla upplifun sína, sýna eigið nám í verki og taka þátt í samtali um eigin framfarir. Þannig styrkir verkefnið bæði faglega þróun kennara og dýpkar skilning barna á eigin námi.

Á myndinni eru: Áslaug Ella Gísladóttir aðstoðarskólastjóri Andabæjar, Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra, Margrét Halldóra Gísladóttir skólastjóri Klettaborgar og Ástríður Guðmundsdóttir skólastjóri Andabæjar.

Address

Arnarflöt 2
Borgarnes
311

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Andabær posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Shortcuts

Share

Category