17/05/2026
REIÐNÁMSKEIÐ SUMAR 2026
Á reiðnámskeiðunum hjá okkur í Ysta-Gerði bjóðum við upp á reiðkennslu í litlum hópum. Kennarinn er menntaður reiðkennari frá háskólanum á Hólum og var valin reiðkennari ársins 2021! Kennslan fer fram í gerði og úti í náttúrunni. Við lærum að undirbúa hestinn fyrir reið og gerum skemmtilegar æfingar til að bæta jafnvægi og stjórnun og förum í reiðtúra. Fyrir lengra komna verður gangtegundirnar betur kynntar.
Við ætlum að vera með reiðnámskeið fyrir bæði byrjendur og lengra komnar. Mikilvæt að skrá barnið í viðeigandi hóp til að það fái verkefni við hæfi. Í vanan hóp þurfa börnin að vera óhrædd og geta farið í reiðtúr á tölti/brokki. Börnin þurfa að koma vel klædd og með nesti. Börnin eru á ábyrgð foreldra. Skráninginn er bindandi.
http://www.sportabler.com/shop/reidskoliystage
1) 30/5 - 31/5 kl 9-12 Minna vanir FULLT!
2) 30/5 - 31/5 kl 14-17 Meira vanir FULLT!
3) 20/6-21/6 kl 9-12 Minna vanir FULLT!
4) 20/6-21/6 kl 14-17 Meira vanir FULLT!
5) 27/6-28/6 kl 9-12 Minna vanir FULLT!
6) 27/6-28/6 kl 14-17 Meira vanir FULLT!
7) 18/7 - 19/7 kl 9-12 Minna vanir FULLT!
8. 18/7 - 19/7 kl 14-17 Meira vanir
28/04/2026
21/03/2026
17/03/2026
07/12/2025
26/11/2025
24/11/2025