07/02/2026
Á mánudaginn síðastliðinn skelltum við á Vélstjórnardeild VMA í svokallaðann ræsingardag. Á dagskrá var ræsing á öllum gangfærum vélum deildarinnar og tókst það bærilega.
vélarnar eru eftirfarandi frá minnstu í stærstu:
Christiania 1 cyl. glóðarhausinn, frá 1906
Victor Coventry 1 cyl diesel handsnúinn ca 1950.
Hatz 1 cyl diesel handsnúin, frá 1955.
Lister 2 cyl loftkældur frá ca 1960.
Deutsche Werke Kiel 2M32 ( oft nefnd litla delta) frá ca 1934.
Perkings 3466 common rail diesel frá 2015
Deutsche Werke Kiel 6M36 ( oft nefnd stóra delta) frá ca 1934.
Volvo Penta THD722GE frá 1999 ( oft nefnd Grímseyjarvélin, enda gömul ljósavél þaðan)
Og svo gamli Wichman 6ACA frá 1962.
Eins og sjá má á listanum eru þessar vélar á ýmsum aldri frá fyrir fyrra stríð og uppí nokkuð nýlegar.
Vel var mætt af ungum sem eldri og nemendafélag vélstjórnardeildar, Smyrillinn stóð sig með prýði og afgreiddi yfir 100 vöfflur ofan í viðstadda. Kunnum við þeim sérstakar þakkir.
Við þökkum annars öllum sem komu að þessum degi með einum eða öðrum hætti. Þetta gekk stórvel og vonandi að þetta verði að föstum lið.