Leiðtogasamfélagið

Leiðtogasamfélagið Leiðtogasamfélagið er ný leið til að læra og kenna. Hugmyndin byggir á þeirri hugmynd að kennsla sé í eðli sínu samskiptafræði í framkvæmd.

Ef samskipti eru ekki markviss og góð fer minna nám fram, hvaða kennsluaðferðum sem annars er beitt.

16/02/2026

„Lýðræði er ekki áfangi í lok skólagöngu – lýðræði er kjarni menntunar.“

02/01/2026

Bankahrunið 2008 var ekki bara efnahagslegt áfall – það var siðferðislegt og lýðræðislegt uppgjör. Nýfrjálshyggja, hóphugsun og ábyrgðarleysi fengu að grassera í ofvöxnu bankakerfi án nægrar gagnrýni. Stóra spurningin sem eftir stendur er: Hvaða tegund borgara höfum við verið að ala upp – og hvaða borgara þurfum við að móta til að þetta gerist ekki aftur?

25/04/2025

Fyrir nokkru síðan horfði ég á þættina Adolescence á Netflix. Þættirnir hafa vakið fjölbreytilega umræðu þar sem hver gagnrýnandi sér þættina með sýnum augum. Sumir gagnrýnendur líta svo á að meginþema þáttanna sé neikvæð áhrif samfélagsmiðla á geðheilsu barna og unglinga, aðrir telja að þættirnir fjalli um vanda ungra drengja og staðalmyndir kynjanna, enn aðrir telja að þættirnir fjalli um neikvæð áhrif netsamfélaga á þroska barna og unglinga og enn aðrir telja að megin viðfangsefni þáttanna sé hvernig efnahagsleg eða menningarleg staða hefur áhrif á möguleika og líðan ungmenna.

15/03/2025

Helmingur foreldra og fagmenntaðra starfsmanna skóla telur að kennarar hafi ekki bakgrunn til að takast á við þann breytileika sem hugsun ólíkra einstaklinga býr yfir (og birtist í hugmyndafræði um skóla án aðgreiningar). Þau telja ekki að kennarar vilja ekki gera vel, þau telja ekki að þau sinni ekki börnum vel, þau telja ekki að verkefni og skóli séu ekki nógu góð. Þau telja að kennarar þurfi nýjan hugmyndafræðilegan grunn til að standa á.
Á sama hátt og hægt er að skipa um föt er hægt að skipta um fræðilegar grunnhugmyndir. Það er að vísu flóknara en engu að síður mögulegt.
Hefðbundinn bakgrunnur kennara eru byggðar á hugmyndum um þá fullorðnu sem móta merkingu skólastarfs. Þeir fullorðnu stjórna skólanum, skilgreina þarfir barnanna og gera áætlanir um markmið náms.

13/03/2025

Fyrir nokkrum árum greindi ég einkenni í kennslu minnar fyrirmyndar í kennslu Herdísar Egilsdóttir. Niðurstaðan var:
1. Einlæg, raunveruleg tengsl við nemendur
2. Nám sem einkennist af víðsýni og lausnaleit
3. Kennsla frá sjónarhorni barnsins
4. Að rækta hæfileika hvers og eins barns
5. Rækta mannauð í samfélagi

Og mér finnst að Herdís eigi að vera fyrirmynd allra kennara á Íslandi

11/03/2025

Nú ætla ég ekki að draga úr alvarleika þess sem Soffía Ámundadóttir kennari talaði um á stöð 2 í gær "en ég vil benda á að þegar barn ræðst á kennara er það barn að öllu jöfnu búið að ráðast á tugi barna og misþyrma þeim andlega og líkamlega án þess að skólinn hafi stöðvað það"

Átakaleg grein og ákall sem verður að taka alvarlega. Íslenskt samfélag þarf nýtt kerfi í kringum börn þar sem rými er f...
06/03/2025

Átakaleg grein og ákall sem verður að taka alvarlega.

Íslenskt samfélag þarf nýtt kerfi í kringum börn þar sem rými er fyrir aðstæður og raddir barna og foreldra þeirra.
Skólakerfið, heilbrigðiskerfið, réttarkerfið, félagsmálakerfið - öll þessi kerfi þurfa að geta hlustað áður en fólk er beinlínis farið að æpa hástöfum.

Við viljum þakka Dagnýju fyrir samúðarkveðjur hennar og fyrir að stíga fram, sýna hugrekki og standa andspænis þeirri hræðilegu martröð sem mun fylgja fjölskyldu Bryndísar Klöru um ókomna tíð vegna voveiflegs fráfalls hennar. Það krefst mikils hugrekkis af hennar hálfu, sem ...

03/03/2025

Leiðtogasamfélagið sendi inn umsögn um "Drög að tillögu til þingsályktunar um stefnu um farsæld barna".

Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir til umsagnar drög að stefnu um farsæld barna til ársins 2035.

Það verður að ræða um ofbeldi barna gagnvart hvort öðru í skólanum, ekki aðeins ofbeldi barna gegn starfsfólki. Þegar ba...
24/02/2025

Það verður að ræða um ofbeldi barna gagnvart hvort öðru í skólanum, ekki aðeins ofbeldi barna gegn starfsfólki. Þegar barn ræðst á starfsmann er það venjulega búið að ráðast á tugi barna. Ofbeldi barna gegn kennurum og ofbeldi barna gegn hvort öðru eru tvær hliðar á sama málinu.

Það er mannréttindabrot ef yfirvöld loka augunum fyrir þessum vanda.

Soffía Ámundadóttir, kennari til þrjátíu ára, segir ofbeldi meðal barna vera tabú meðal skólayfirvalda og að úrræði skorti.

Hugmyndin um skóla án aðgreiningar snýst um mannréttindi allra barna í skólum, ekki bara barna með sérþarfir.
21/02/2025

Hugmyndin um skóla án aðgreiningar snýst um mannréttindi allra barna í skólum, ekki bara barna með sérþarfir.

Inga Sigrún Atladóttir, kennari, skólastjórnandi, guðfræðingur, rithöfundur ræðir um aðgerðir gegn því sjálfshatri sem börn virðast þróa með sér innan skólak...

Í stjórnunar og skipulagsfræðum hefur leiðtogahlutverkið þróast mikið síðustu áratugi.  Eiginleikar sem einkenna hugræna...
17/02/2025

Í stjórnunar og skipulagsfræðum hefur leiðtogahlutverkið þróast mikið síðustu áratugi.
Eiginleikar sem einkenna hugrænan þroska 3-5 ára barna leggja mikilvægan grunn að þeim eiginleikum sem seinna birtast á fullorðinsárum í góðri leiðtogahæfni.
Strax við 7 ára aldur skerðast þessir hæfileikar (í vestrænum samfélögum) og á unglingsárum eru þeir hverfandi. Fullorðnir leiðtogar þurfa því í flestum tilvikum að læra upp á nýtt hæfni sem hefði verið hægt að þroska og hlúa betur að bæði í leik- og grunnskóla.

Á Samstöðinn um daginn var mjög áhugavert viðtal við Herdís Storgaard þar sem hún fjallar um öryggi barna. Í viðtalinu k...
10/02/2025

Á Samstöðinn um daginn var mjög áhugavert viðtal við Herdís Storgaard þar sem hún fjallar um öryggi barna. Í viðtalinu kom fram að á síðustu öld vakti læknir máls á því að slys á íslenskum börnum væri miklu fleiri í nágrannalöndunum og Herdís leiddi viðhorfsvakningu sem olli því að slysum á börnum fækkaði mjög mikið.

Nú finnst mér svo aðkallandi að fá viðhorfsvakingu um líðan barna og unglinga með það að markmiði að gera svipaðar breytingar og Herdís lýsti. Mér finnst sjálfri brýnast að byrja á skólkerfinu og breyta viðhorfi kerfisins til barnsins. Þó margt sé auðvitað vel gert þá svíður mig í hjartað vegna þeirra ótalmörgu barna sem ég þekki sem hafa leiðst út í alls konar sjálfskaðandi hegðun - ekki sýst vegna þess að skólakerfið brást því. Þessi börn fengu ekki aðstoð til að byggja upp sterka sjálfsmynd (sem kanski kom veik að heiman) og þau voru ekki vernduð fyrir árásum annarra barna - sem mér finnst bara vera mannréttindamál. Mér finnst að skólarnir geti gert svo miklu betur og mér finnst svo erfitt að horfa upp að lítið breytist, áratug eftir áratug

Herdís Storgaard fjallar um öryggi barna og viðureignir við kerfið.Samstöðin er samfélagssjónvarp og vettvangur fyrir róttæka samfélagsumræðu og raddir þeirr...

Address

Brekkugata 45
Akureyri
600

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Leiðtogasamfélagið posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Leiðtogasamfélagið:

Shortcuts

Share