13/06/2021
SKRÁNING Á NÁMSKEIÐIÐ Í JÚNÍ FER VEL AF STAÐ :)
Stórskemmtilegt námskeið fyrir 11-17 ára í leiklist og söng, tilvalið fyrir þau sem vilja koma fram og ná til áhorfenda. Á námskeiðinu verður farið í söngtækni, framkomu, leiktækni og spuna. Nemendur fá þjálfun í réttri raddbeitingu, læra leiktjáningu í söng og að syngja með lifandi undirleik. Áhersla verður lögð á söng, sjálfstraust og gleði.
Námskeiðið er kennt frá mánudeginum 21. júní til föstudagsins 25. júní í Deiglunni og er skipt upp í tvo hópa eftir aldri.
- 11-13 ára eru frá kl 8:30 - 12:30
- 14-17 ára eru frá kl 13:00 - 17:00
Verð á námskeiðinu er 39.900 kr (10.000 kr staðfestingargjald innheimt við skráningu).
Kennarar eru Arna Rún Ómarsdóttir (Complete Vocal Technique söngkennari) og Bjartmar Þórðarsson (leikstjóri, leikari og Complete Vocal Technique söngkennari).
Skráning og nánari upplýsingar á síðu námskeiðsins, í s. 8678922 (Arna) eða [email protected]
10/06/2021
Stórskemmtilegt námskeið fyrir 11-17 ára í leiklist og söng, tilvalið fyrir þau sem vilja koma fram og ná til áhorfenda. Á námskeiðinu verður farið í söngtækni, framkomu, leiktækni og spuna. Nemendur fá þjálfun í réttri raddbeitingu, læra leiktjáningu í söng og að syngja með lifandi undirleik. Áhersla verður lögð á söng, sjálfstraust og gleði.
Námskeiðið er kennt frá mánudeginum 21. júní til föstudagsins 25. júní í Deiglunni og er skipt upp í tvo hópa eftir aldri.
- 11-13 ára eru frá kl 8:30 - 12:30
- 14-17 ára eru frá kl 13:00 - 17:00
Verð á námskeiðinu er 39.900 kr (10.000 kr staðfestingargjald innheimt við skráningu).
Kennarar eru Arna Rún Ómarsdóttir og Bjartmar Þórðarsson.
Skráning og nánari upplýsingar á síðu námskeiðsins, í s. 8678922 (Arna) eða [email protected]
10/06/2021
Bjartmar Þórðarson er leikari, leikstjóri og söngvari.
Hann lærði leiklist í hinum virta Webber Douglas Academy of Dramatic Art í London sem og leikstjórn í Rose Bruford College í London og hefur starfað við fjölda uppsetninga í leikhúsi, sem leikari, leikstjóri og dramatúrg, ásamt því að hafa haldið fjölda námskeiða í leiklist.
Einnig er Bjartmar kennari í Complete Vocal söng- og raddtækni og útskrifaðist sem slíkur árið 2020.
09/06/2021
Arna Rún Ómarsdóttir
Söngkona / Söngkennari / Raddþjálfi / Lagahöfundur
Arna Rún útskrifaðist sem viðurkenndur Complete Vocal Technique (CVT) kennari við Complete Vocal Institute (CVI) vorið 2015. Hún byrjaði að starfa sem söngkennari og raddþjálfari árið 2012 og hefur síðan þá rekið tvo söngskóla og kennt í ýmsum skólum og stofnunum, þar á meðal Kvikmyndaskóla Íslands.
Á menntaskólaárunum fékk Arna áhuga á rannsóknum og vísindum sem leiddi hana í BS-nám í Líffræði við Háskóla Íslands. Eftir að því lauk hélt hún áfram í mastersnám og kláraði MS-próf við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands árið 2011. Þrátt fyrir áhugann á vísindum var söngur og tónlist fastur punktur í hennar lífi frá unga aldri. Fyrstu kynni hennar af söngnámi voru við Nýja söngskólann Hjartansmál (nú Söngskóli Sigurðar Demetz) þar sem hún lauk 3. stigi í klassískum einsöng. Meðfram mastersnáminu hóf Arna nám í Tónlistarskóla FÍH og lauk þar Miðprófi í Jazz söng árið 2011. Í FÍH kynntist Arna Complete Vocal Technique að alvöru. Það fyrsta sem heillaði hana við þessa söngtækni var það að CVT er byggð á rannsóknum og vísindum sem snúast að röddinni og heilbrigði hennar. Hún sá einnig mikla möguleika í tækninni til að kenna fólki að læra heilbrigða raddbeitingu á skýran og skilvirkan hátt.
Á sínum ferli sem söngkennari og raddþjálfi hefur Arna öðlast yfirgripsmikla þekkingu á kennslu tengdri röddinni þar sem hún hefur kennt söngvurum á öllum aldri og af öllum reynslustigum, frá algjörum byrjendum til atvinnusöngvara, sem og haldið námskeið í heilbrigðri raddbeitingu fyrir ýmsa aðila m.a. presta, kennara og þjálfara Dale Carnegie.
04/06/2021
Stórskemmtilegt söng- og leiklistarnámskeið fyrir 11-17 ára á Akureyri - í Deiglunni 21.-25.júní!
Ítarlegri upplýsingar og skráning á [email protected], í síma 8678922 eða í skilaboðum hér á síðu Söngs og spuna.