Grunnskólinn í Þorlákshöfn

Grunnskólinn í Þorlákshöfn Grunnskólinn í Þorlákshöfn er staðsettur í Sveitarfélaginu Ölfusi. Nemendur skólans eru 292 talsins í 11 bekkjardeildum og starfsmenn eru um 60.

Svakalega lestrarkeppnin er í fullum gangi og bættu nemendur sig heldur betur frá síðustu viku! (sem þó var stórglæsileg...
30/09/2026

Svakalega lestrarkeppnin er í fullum gangi og bættu nemendur sig heldur betur frá síðustu viku! (sem þó var stórglæsileg).

Það var 1.bekkur sem safnaði flestum mínútum þessa vikuna!

Foreldrar ættu endilega að hvetja börnin sín áfram í lestrinum en hér eru nokkur góð ráð:

Spjöllum saman um bækur! „Hvað heldur þú að gerist næst?“ Það eykur lesskilning.
Má bjóða þér lestur? Barnið getur lesið bók fyrir foreldri eða yngra systkini.
Lestrarstund fyrir fjölskylduna eftir kvöldmat, þar sem allir setjast niður og lesa bók.
Fara saman á bókasafn! Það er mikilvægt að hafa gott úrval af bókum að velja úr. Það er líka gaman að heimsækja ný bókasöfn.
Hafið bækur sýnilegar og aðgengilegar, bæði heima fyrir og á ferð og flugi. Bók í töskunni eða hanskahólfi getur komið sér vel þegar það þarf að bíða.
Sýnið gott fordæmi. Börn sem sjá fullorðna lesa upplifa lestur frekar sem sjálfsagðan og ánægjulegan hluta daglegs lífs.
Tengið bækur við upplifun: Lesið um dýr fyrir ferð í Húsdýragarðinn, matargerð áður en þið bakið eða um staði sem fjölskyldan ætlar að heimsækja.
Skiptið um bók ef bókin vekur ekki áhuga barnsins. Það þarf ekki að klára allar bækur.
Hrósið barninu fyrir að lesa!

Í fyrstu viku Svakalegu lestrarkeppninnar stóðu börnin sig heldur betur vel í lestri! Það var 4.bekkur sem skilaði flest...
25/09/2026

Í fyrstu viku Svakalegu lestrarkeppninnar stóðu börnin sig heldur betur vel í lestri!
Það var 4.bekkur sem skilaði flestum mínútum pr.nemanda þessa vikuna.
Nú er spennandi að sjá hverjir safna flestum mínútum í næstu viku!
Við stefnum að sjálfsögðu á topp 10 ef þeim 150 skólum sem taka þátt í ár!
Gangi ykkur vel! ❤️

A morgun hefst Svakalega lestrarkeppnin á landsvísu. Nemendur í 1. - 7. bekk ætla að taka þátt og hlökkum við mikið til....
14/09/2026

A morgun hefst Svakalega lestrarkeppnin á landsvísu.
Nemendur í 1. - 7. bekk ætla að taka þátt og hlökkum við mikið til.
Nú er þessi fallegi Lestrarhestur kominn uppá vegg og ætlar að aðstoða okkur við að telja mínúturnar sem við lesum!
Gangi ykkur vel

14/09/2026

Kæru foreldrar og aðrir íbúar

Eins og þið vitið þá standa yfir spennandi framkvæmdir hér við stækkun skólans. Slíkri framkvæmd fylgir eðlilega rask af ýmsu tagi. Eitt af því sem við höfum þó mestar áhyggjur af eru ferðir nemenda frá skólanum í íþróttahúsið sem eru töluvert margar á dag. Leiðin sem nemendur þurfa að fara er tvisvar yfir Hafnarbergið og því má gera ráð fyrir töluverðri umferð gangandi vegfarenda yfir götuna margsinnis á dag. Við höfum að sjálfsögðu gert þær varúðarráðstafanir sem okkur er kleift og farið vel yfir leiðina með nemendum sjálfum en börn eru jú bara börn og eiga auðvelt með að gleyma sér eins og við vitum. Við biðlum því til ykkar sem eruð akandi að hjálpa okkur í þessum aðstæðum með því að hægja vel á ykkur á þessum kafla og stöðva í tíma ef þið sjáið gangandi vegfarendur á þessum kafla.

Þetta hefst allt saman ef við tökum höndum saman og förum að öllu með gát.

Bestu þakkir fyrir hjálpina og samstöðuna :)

Nemendur og starfsfólk skólans.

Nemendur í 8. og 9. bekk fóru í eftirminnilega ævintýraferð í Landmannalaugar. Um er að ræða afar rausnarlega ferð í boð...
10/09/2026

Nemendur í 8. og 9. bekk fóru í eftirminnilega ævintýraferð í Landmannalaugar. Um er að ræða afar rausnarlega ferð í boði Kiwanisklúbbsins Ölvers. Sjá frétt af heimasíðu skólans 😊

Þriðjudaginn 8. september fóru nemendur í 8. og 9. bekk í dagsferð í Landmannalaugar. Ferðin var í boði Kiwanismanna sem greiddu allan kostnað með ágóða af jólaskókassaverkefni klúbbsins.

Í morgun fengu allir nemendur skólans einstakt tækifæri til að heimsækja varðskipið Þór sem liggur nú við höfn í Þorláks...
04/09/2026

Í morgun fengu allir nemendur skólans einstakt tækifæri til að heimsækja varðskipið Þór sem liggur nú við höfn í Þorlákshöfn. Sjá frétt af heimasíðu skólans :)

Í morgun fengu allir nemendur einstakt tækifæri til að heimsækja varðskipið Þór, sem liggur nú við höfn í Þorlákshöfn. Heimsóknin var í tilefni af 100 ára afmæli Landhelgisgæslu Íslands, en af því tilefni hefur Landhelgisgæslan boðið landsmönnum að koma um borð í varð...

Þá líður senn að skólasetningu Grunnskólans í Þorlákshöfn eftir vonandi notalegt sumarfrí hjá öllum. Hlökkum til að hitt...
11/08/2026

Þá líður senn að skólasetningu Grunnskólans í Þorlákshöfn eftir vonandi notalegt sumarfrí hjá öllum. Hlökkum til að hitta ykkur mánudaginn 24. ágúst :)

Hátíðlegur dagur í skólanum í gær þegar skólaárinu 2025-2026 var slitið 😊
10/06/2026

Hátíðlegur dagur í skólanum í gær þegar skólaárinu 2025-2026 var slitið 😊

Þriðjudaginn 10. júní fóru fram skólaslit Grunnskólans í Þorlákshöfn og þar með lauk enn einu viðburðaríku og farsælu skólaári.

Ágóði Þorpsins rennur til Umhyggju, félags sem vinnur að bættum hag langveikrabarna
09/06/2026

Ágóði Þorpsins rennur til Umhyggju, félags sem vinnur að bættum hag langveikrabarna

Á skólaslitum Grunnskólans í Þorlákshöfn í dag var afhentur styrkur að upphæð 250.000 krónur til Umhyggju, félags langveikra barna.

Address

Egilsbraut 35
Þorlákshöfn
815

Opening Hours

Monday 07:30 - 16:00
Tuesday 07:30 - 16:00
Wednesday 07:30 - 16:00
Thursday 07:30 - 16:00
Friday 07:30 - 16:00

Telephone

480 3850

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Grunnskólinn í Þorlákshöfn posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The School

Send a message to Grunnskólinn í Þorlákshöfn:

Shortcuts

Share