07/09/2013
Við þökkum fyrirlesurum, samræðustjórum og þátttakendum öllum fyrir frábæra tvo daga.
Ráðstefna á Hrafnseyri við Arnarfjörð, að Núpi í Dýrafirði og í Edinborgarhúsinu á Ísafirði 6. og 7. september 2013. Hvað er til ráða?
Í byrjun tveggja alda -
hugsjónir aldamótakynslóðarinnar bornar saman við
samtímann og þá framtíðarsýn sem við okkur blasir
Hvar stöndum við nú hvað varðar umhverfis- og samfélagsmótun og í hvað stefnir? Hvað getum við lært af þeirri hugmyndafræði og þeim aðferðum sem
beitt var í byrjun síðustu aldar?
„Stemmningin‟ var með tvennum hætti í byrjun þessara tveggja alda. Um aldamótin 1900 voru tæ
07/09/2013
Við þökkum fyrirlesurum, samræðustjórum og þátttakendum öllum fyrir frábæra tvo daga.
07/09/2013
Við þökkum fyrirlesurum, samræðustjórum og þátttakendum öllum fyrir frábæra tvo daga.
05/09/2013
http://www.bb.is/?PageID=26&NewsID=183656
„Þurfum að skilgreina okkur upp á nýtt“ - BB.is Ráðstefnan Í BYRJUN TVEGGJA ALDA fer fram dagana 6. og 7. september að Hrafnseyri í Arnarfirði, á fæðingarstað Rögnvaldar Ólafssonar að Núpi í Dýrafirði og í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. „Á ráðstefnunni kemur saman einvala lið, góð blanda af fólki bæði af utanaðkomandi og heimamönnum hér vestr...
Ekki gleyma að skrá ykkur - skráningarfresturinn hefur verið framlengdur til mánudagsins 2. september.
DAGSKRÁ :::::::::::::::
Fimmtudagskvöld 5. september – móttaka fyrir aðkomugesti
Vakin athygli á því að Edda Erlendsdóttir píanóleikari verður með tónleika í Bryggjusal Edinborgarhússins kl. 20:00 þetta kvöld
Föstudagur 6. September – Hrafnseyri við Arnarfjörð
09:35 Flug frá Reykjavík lendir á Ísafjarðarflugvelli
10:30 Rúta frá Hótel Ísafirði til Hrafnseyrar
12:00 hádegisverður í Burstabænum
13:00 Velkomin til Hrafnseyrar – Valdimar J Halldórsson
staðarhaldari og fundarstjóri dagsins
13:05 Hjálmar H Ragnarsson setur ráðstefnuna
13:20 Inngangur (forsaga) Elísabet Gunnarsdóttir
13:35 Fyrirlestur Guðmundar Hálfdanarsonar
14:05 Stutt hlé
14:15 Sigurður Pétursson – atvinnusaga
Ólína Þorvarðardóttir - hugmyndir
Einar E Sæmundssen – íslenskir garðar
15:00 Kaffihlé
15:30 Fyrirlestur Péturs H Ármannssonar
16:00 Umræður á palli – umræðustjóri Ólína Þorvarðardóttir
Þátttakendur: Guðmundur Hálfdanarson, Pétur H
Ármannsson, Einar E Sæmundsen, Sigurður Pétursson,
Hjálmar H Ragnarsson
16:45 Samantekt
17:00 Fundarhlé
17:30 Rútuferð frá Hrafnseyri að Núpi með viðkomu á Þingeyri
19:00 Kvöldverður og skemmtidagskrá á Núpi
Ræðumaður: Guðmundur Andri Thorsson
22:00 Rútuferð til Ísafjarðar
Laugardagur 7. september - Edinborgarhúsið
09:00 Velkomin í Edinborg – Elísabet Gunnarsdóttir
fundarstjóri dagsins
Efni gærdagsins rifjað upp - Sigurður Pétursson
09:20 Fyrirlestur Kjartans Árnasonar
09:40 Fyrirlestur Hjálmars Sveinssonar
10:00 Fyrirlestur Borghildar Sölveyjar Sturludóttur
10:20 Kaffihlé
10:40 Sigfús Guðfinnsson – Samfélagsbankar
Helgi B Thoroddsen – Betri borgarbragur
Dagný Arnarsdóttir – Kenningar í visthagfræði
11:20 Umræður á palli - umræðustjóri Egill Helgason
Þáttakendur: Guðmundur Andri Thorsson, Kjartan
Árnason, Hjálmar Sveinsson, Borghildur Sölvey
Sturludóttir, Helgi B Thoroddsen, Dagný Arnarsdóttir,
Sigfús Guðfinnsson, Peter Weiss
12:20 Hádegisverður
13:20 Stutt kynning á nokkrum athyglisverðum verkefnum
13:30 Samræður á borðum – Peter Weiss umræðustjóri
Efni ráðstefnunnar tekið fyrir i smærri hópum og lagðar
fram hugmyndir að næstu skrefum, hver eru helstu
málefnin sem vinna þarf að, hvaða aðferðum er
raunhæft að beita, hvert á að leita fanga o.s.frv.
14:15 Niðurstöður hópsamræðna kynntar
14:30 Samatekt og ráðstefnulok
15:30 Kynnisferð um nágrennið fyrir gesti ef óskað er
Einnig er vakin athygli á því að Þóra Einasdóttir
sópransöngkona verður með tónleika við undirleik
Jónasar Ingimundarsonar í Hömrum kl. 15:00 þennan
dag
17:00 Ísafjarðarflugvöllur – brottför til Reykjavíkur 17:35
Skráning ::::::::::::::::
Í byrjun tveggja alda Skráningarfrestur er til og með fimmtudeginum 29. ágúst og verða reikningar sendir út að skráningu lokinni. Reikninga skal greiða í síðasta lagi 3. september 2013. Ef einhverjar fyrirspurninr eru má koma þeim á framfæri á netfangið [email protected] eða hringja í síma 868 1845 eða í skilaboðum á kynnin...
14/08/2013
Í byrjun tveggja alda – dagskrá og skráning
Rammi dagskrár ::::::::::::::::
Fimmtudagskvöld 5. september
20:00 Móttaka á Ísafirði fyrir ráðstefnugesti
Föstudagur 6. september
10:30 Rútuferð frá Ísafirði til Hrafnseyrar
12:00 Hádegisverður í Burstabænum á Hrafnseyri
13:00 Ráðstefnan sett
13:20 Fyrirlestrar, styttri kynningar, samræðuhópar og pallborðsumræður.
Fjallað um hvað var í gangi á Íslandi í byrjun 20. aldar, hvaða hugmyndafræði réði ríkjum við umhverfismótun, hvaðan fyrirmyndirnar komu og hvaða viðfangsefni og áherslur var verið að vinna með. Tekin verða dæmi úr verkum Rögnvaldar og mótunarferli vestfirskra bæja og byggða
15:00 Kaffihlé og áframhaldandi umræður
17:00 Fundarhlé
17:30 Rútuferð frá Hrafnseyri að Núpi með viðkomu á Þingeyri
19:00 Kvöldverður og skemmtidagskrá á Núpi
22:30 Rútuferð til Ísafjarðar
Laugardagur 7. september
09:00 Efni gærdagsins rifjað upp og umræðuefni dagsins reifað
09:15 Fyrirlestrar, styttri kynningar, samræðuhópar og pallborðsumræður
Seinni ráðstefnudaginn verður megináhersla lögð á hvar við stöndum í byrjun 21. aldarinnar, hvernig þessi mál hafa þróast á Íslandi og hvaða hugmyndafræði ræður ferðinni nú. Reynt verður að bera saman þessi tvö tímabil og skilgreina hvernig þau eru ólík og hvað þau eiga sameiginlegt og hvaða lærdóm má draga af viðhorfum og vinnubrögðum „aldamótakynslóðarinnar‟ við mótun nýrrar framtíðarsýnar
11:00 Kaffihlé og áframhaldandi samræður
12:00 Hádegishlé
12:45 Áframhaldandi samræður
14:30 Samatekt og ráðstefnulok
15:30 Kynnisferðir um nágrennið fyrir aðkomugesti
Fyrirlesarar og samræðustjórar verða m.a. arkitektar, heimspekingar, mannfræðingar, sagnfræðingar, rithöfundar og samfélagsrýnar.
Meðal fyrirlesara á ráðstefnunni verða eftirtaldir (með fyrirvara um breytingar):
Guðmundur Hálfdánarson sagnfræðingur og prófessor
Kjartan Árnason arkitekt
Jóhann Páll Árnason prófessor emeritus í samfélagskenningum
Pétur H Ármannsson arkitekt og fræðimaður
Hjálmar Sveinsson heimspekingur
Ólína Þorvarðardóttir þjóðfræðingur
Sigrún Birgisdóttir arkitekt og deildarforseti hönnunar- og arkitektúrdeildar LHÍ
Júlíana Gottskálksdóttir listfræðingur
Valdimar J Halldórsson mannfræðingur
Páll Skúlason heimspekingur og prófessor
Sigurður Pétursson sagnfræðingur
Egill Helgason þáttastjórnandi m.m.
Elísabet Gunnarsdóttir arkitekt
Dagný Arnarsdóttir umhverfisfræðingur
Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur og samfélagsrýnir
Sigfús Guðfinnsson bakari
Peter Weiss norrænufræðingur
Borghildur Sölvey Sturludóttir arkitekt
Útgáfa :::::::::::::::::::
Að ráðstefnunni lokinni verður gefinn út bæklingur með fyrirlestrum og öðru efni sem tengist ráðstefnunni.
Skráning ::::::::::::::::::::
Skráningarfrestur er til og með fimmtudeginum 29. ágúst og verða reikningar sendir út að skráningu lokinni. Reikninga skal greiða í síðasta lagi 3. september 2013. Skráningaeyðublöð má finna á kynningarsíðu ráðstefnunnar www.facebook/ibyrjuntveggjaalda Einnig má senda fyrirspurn á netfangið [email protected] eða hringja í síma 868 1845.
Þátttökugjald ::::::::::::::::::::
A - Ráðstefnugjald er kr. 12.500,-
Innifalið er dagskrá báða dagana og bæklingur sem gefinn verður út um efni ráðstefnunnar að henni lokinni. Einnig er innifalinn hádegisverður og kaffiveitingar báða dagana og hátíðarkvöldverður (með fordrykk en aðrir drykkir ekki innifaldir) á föstudagskvöldinu. Rútuferðir frá Ísafirði til Hrafnseyrar, frá Hrafnseyri að Núpi og frá Núpi til Ísafjarðar föstudaginn 6. September eru einnig innifaldar í ráðstefnugjaldinu. Ráðstefnan hefst um hádegi föstudaginn 6. september og lýkur síðdegis laugardaginn 7. september.
Fyrir þá sem ekki sjá sér fært að sitja alla ráðstefnuna eru eftirtaldir möguleikar í boði:
B - Ráðstefnudagur 1 og 2 – bæklingur, rúta, hádegisverður og kaffi innifalið báða dagana
kr. 9.000,-
C - Ráðstefnudagur 1 eða 2 – bæklingur, rúta fyrri daginn, hádegisverður og kaffi innifalið
kr. 5.500,-
D – Hátíðarkvöldverður á Núpi - miða á hátíðarkvöldverðinn á Núpi föstudaginn 6. september er hægt að panta aukalega og kosta þeir kr. 5.700,- fyrir þriggja rétta málsverð með fordrykk og skemmtidagskrá.
Sérþarfir :::::::::::::::::::::
Sérþarfir varðandi mat óskast tilkynntar á netfangið [email protected] og verður reynt eftir fremsta megni að koma til móts við þarfir þeirra sem hafa ofnæmi eða óþol.
Gisting :::::::::::::::::
Gistingu sjá þátttakendur sjálfir um að bóka og greiða. Gert er ráð fyrir því að ráðstefnugestir gisti á Ísafirði. Hótel og gistiheimili á staðnum bjóða sérstakt tilboðsverð fyrir ráðstefnugesti, og eru þeir beðnir að geta þess við bókun að þeir taki þátt í ráðstefnunni.
Ferðamálti :::::::::::::::
Flug til og frá Ísafirði sjá þátttakendur sjálfir um að bóka og greiða. Flugfélag Ísland býður sérkjör á flugfargjaldi fyrir ráðstefnugesti, og eru þeir beðnir að geta þess við bókun að þeir taki þátt í ráðstefnunni. Fyrir þá sem vilja koma akandi má gera ráð fyrir að það taki rúma 5 tíma að keyra 455 KM malbikaða leiðina milli Reykjavíkur og Ísafjarðar.